Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2006, Blaðsíða 15
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 15
Lögreglumaður skotinn Rétt fyrir
utan Brass Door mótelid varJim
Sell skotinn. Eigandi mótelsins sá
Sell liggja i blódpolli.
„Ég var að horfa á veðurfrétt-
irnar í sjónvarpinu þegar ég heyrði
hvell," lýsir Hoyne. „Ég hélt fýrst
að þetta væri í einhverjum bíl en
þegar ég heyrði tvo eins hvelli í
viðbót rann það upp fyrir mér að
þetta voru skothvellir. Ég leit út
um gluggann og sá lögreglubíl fyr-
ir aftan græna bifreið. Ég sá hvern-
ig grænu bifreiðinni var bakkað
inn í lögreglubflinn og svo keyrt í
burtu. Þá sá ég lögreglumanninn
liggjandi og hvernig blóðið gusað-
ist út úr sári á háisi hans. Ég vissi
strax að honum varð ekki
bjargað."
Koma aftur eftir byssunni
Hoyne hringdi á lögregluna og
tilkynnti skotárásina. Hún segir
Roþida hafa keyrt i burtu en svo
snúið við og komið aftur.
„Hann var að sækja byssuna
sína. Hann hafði skilið hana eftir
við hliðina á lfldnu. Hann stökk út
úr bflnum sínum, sótti byssuna og
stökk aftur inn í bflinn. Svo keyrði
hann á brott í flýti," segir Hoyne.
Skotbardagi við lögreglu
í bænum Norfork, sem er í um
35 kflómetra fjarlægð frá Gassville,
settu lögreglumenn upp vega-
tálma. Hann dugði ekki til þess að
stöðva Robida en naglar sem lög-
reglan hafði dreift á götuna
sprengdu þó tvö dekk á bfl Robida.
Hann missti þá stjórn á bflnum,
keyrði á nokkra kyrrstæða bfla og
snerist í hálfhring. Hann byrjaði
þá að skjóta að lögreglumönnun-
um.
Lögreglumennirnir svöruðu í
sömu mynt og hæfðu Robida
tvisvar í höfuðið og lést hann
stuttu seinna. Bailey fannst einnig
látin í bfl Robida og telja löreglu-
menn að Robida hafi myrt hana.
Enn er ekki vitað með vissu
hvers vegna Robida réðst á menn-
ina inn á Puzzle Lounge barnum.
Lögreglumenn hafa fundið ýmis
rit heima hjá Robida sem nýnas-
istar hafa gefið út og er það talið
lfldegasta skýringin að svo stöddu.
Isabelle Dinoire fékk nýtt andlit grætt á sig
Nú hef ég andlit eins og aðrir
Isabelle Dinoire, 38 ára gömul
húsmóðir frá Frakklandi, hefur nú
komið fram í fjölmiðlum í fyrsta
skipti eftir að hafa fengið grætt á sig
nýtt andht 27. nóvember á síðasta
ári.
Dinoire missti andlitið bókstaf-
lega eftir að labrador hundur henn-
ar réðst á hana í júní á síðasta ári.
Hundurinn réðst á hana á meðan
hún svaf.
Dinoire segir að ágræðslan hafi
veitt sér sjálfstraust til þess að um-
gangast ókunnuga.
„Núna hef ég andlit, eins og aðr-
ir," sagði Dinoire á blaðamanna-
fundi í gær. Hún segir þetta vera allt
annað líf. „Nú get ég opnað munn-
inn minn og borðað. Eg get einnig
notað varir mínar og nef. Samt sem
áður verð ég að halda áfram að æfa
mig, þjálfa vöðvana í andlitinu og
taka lyf.“
Andlitið sem grætt var á Dinoire
var af heiladauðri manneskju frá
Lille í Frakklandi. Mikil áhætta fylgir
slflcri aðgerð, líkaminn getur hafnað
andlitinu. Einnig mun þetta auka
lflcur á krabbameini. Dinoire tók
áhættuna og enn er ekki vitað
hvernig niðurstaðan verður.
Aðal þjónustuaðili Bernhards og Ingvars Helgasonar.
Dalvegi 16b • Sírni 517 1800
icefiimur@icefilmur.is • www.icefilmur.is