Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2006, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006
Sport DV
Sjö borgir vilja
0L2014
Nú síðar í mánuðinum
hefjast vetrarólympíuleik-
arnir í Tórínó á Ítalíu en nú
fyrir skömmu staðfestu sjö
borgir víðs vegar um heim-
inn ósk sína um að fá að
halda vetrarólympíuleikana
árið 2014. Þær eru Sochi í
Rússlandi, Salzburg í Aust-
urríki, Jaca á Spáni, Almaty í
Kasakstan, PyeongChang í
Suður-Kóreu, Sófi'a í Búlgar-
íu og Borjomi í Georgíu.
Ákvörðun Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar um hvaða
borg hreppir hnossið verður
tilkynnt í júlí á næsta ári.
Liverpool
áfrýjar ekki
Enska úrvals-
deildarliðið Liver-
pool mun ekki áfrýja
rauða spjaldinu sem
Jose Reina fékk í leik
Iiverpool og Chel-
sea á sunnudag.
Reina braut fyrst á
Eiði Smára
Guðjohnsen og lenti
svo i stimpingum
við Arjen Robben
með fyrrgreindum
afleiðingum. Jerzy
Dudek hefur verið úti í kuld-
anum hjá Rafael Benitez
knattspymustjóra og vildi
helst losna frá félaginu í síð-
asta tækifæri. Hann gæti nú
fengið tækifærið langþráða,
ýmist í markinu eða sem
varamaður Scott Carson.
Barton
sérað sér
Joey Barton, 23 ára mið-
vallarleikmaður hjá
Manchester City, sér nú eft-
ir því að hafa lagt fram
beiðni um að verða seldur
frá félaginu í síðustu viku,
eftir að hann hafnaði samn-
ingstilboði félagsins. City
hafnaði þessari bón og nú
vonast Barton til að hann
geti skrifað undir nýjan
samning í vikunni. „Von-
andi að gjörðir mínar á vell-
inum og utan hans afsanni
þær kenningar að ég vilji
ekki leika með félaginu. Ég
var ef til vill of fljótfær þegar
ég lagði ffam beiðnina í síð-
ustu viku."
Keflavík sló bikarmeistara Njarðvíkur út úr undanúrslitum bikarsins
Undanúrslit bikarkeppni KKI og Lýsingar fóru fram um helgina og
nú er ljóst hvaða lið mætast í bikarúrslitaleikjunum 18. febrúar
næstkomandi. Grindavík mætir Keflavík í karlaflokki og ÍS í kvenna-
flokki og getur því orðið Qórða félagið til þess að vinna tvöfalt.
jj
I Rosaleg Jercia Watson
I Þefur oft fariö illa meö
| Keflavíkurliðið I viöur-
| eignum liöanna f vetur.
DV-myndVallil
f miklu stuöi gegn
| Skallagrími Jeremiah
I Johnson átti stórleik I und-
1 anúrslitaleiknum, skoraði
137 st/g oggaf7 stoðsend-
I ingar. DV-myndStefánI
.......................................»
Grindavík á í fyrsta sinn tvö lið í bikarúrslitum körfuboltans
eftir að karla og kvennalið félagsins tryggðu sér farseðilinn
í Laugardalshöllina með góðum sigrum í undanúrslitaleikj-
um sínum á sunnudagskvöldið. Karlalið Grindavíkur mæt-
ir Keflavík í úrslitaleiknum en kvennaliðið spilar við IS. Það
er líka ljóst að bikarmeistarar síðasta árs ná ekki að verja
titilinn, kvennalið Hauka datt út úr átta liða úrslitunum og
karlalið Njarðvíkur tapaði í hörkuleik gegn nágrönnum sín-
um í Keflavík í gær.
«ist«isit
Karlalið Grindavíkur hefur
unnið bikarinn í öll þrjú skipt-
in sem liðið hefur komist í
Höllina, 1995 vann liðið
Njarðvík, 1998 vann liðið
KFÍ og 2000 vann liðið KR
en það ólíkt komið með
kvennaliðinu sem hefur
tapað í báðum heim-
sóknum sínum í Höllina,
1994 gegn Keflavík og
[ svo f fyrra gegn Hauk-
um. Það hafa aðeins
þrjú félög, KR, Keflavík
og ÍS, náð að vinna
tvöfaldan sigur og
gætu Grindvíking-
ar bæst í hóp
þeirra verði lið
þeirra sigursæl í
Höllinni 18. febrúar
næstkomandi.
.
® Réðu ekkert
við Jeremiah
Grindvík-
ingar unnu 10
stiga sigur á
Skallagrímsmönn-
um í Grindavík, 97-
87, en Borgnesingar voru að
reyna að komast í fyrsta bikar-
úrslitaleikinn í sögu félagsins.
Skallagrímsmenn réðu bara
ekkert við Jeremiah Johnson í
undanúrslitaleiknum. Johnson
var kominn með 20 stig og 5
stoðsendingar í hálfleik og
Grindvíkingar með 15 stiga for-
skot, 50-35. Borgnesingar náðu
að minnka muninn niður í átta
stig en tveir þristar í röð frá
Helga Jónasi Guðfinnssyni
komu Grindvíkingum aftur í
gott forskot og þeir gerðu síðan
út um leikinn á vítalínunni í
Qórða leikhlutanum. Johnson
endaði leikinn með 37 stig en
það gladdi líka Grindvíkinga að
Helgi Jónas Guðfinnsson skor-
aði 18 stig og sýndi að hann get-
ur hjálpað mikið til við að landa
titilinum í vetur.
Jerica var ótrúleg
Jerica Watson átti enn einn
stórleikinn gegn Keflavík í vetur
þegar kvennalið Grindavíkur
tryggði sér sæti í bikarúrslitun-
um annað árið í röð. Watson
var með 41 stig, 21 frákast og 5
varin skot í 68-62 sigri Grinda-
víkur á íslandsmeisturum
Keflavíkur í Keflavík. Watson
nýtti 18 af 27 skotum sínum og
skoraði aðeins 4 af stigum sín-
um af vítalínunni. Keflavík
komst sjö stigum yfir, 31-24, í
upphafi seinni hálfleiks en
Watson svaraði með 26 stigum
á næstu 14 mínútum og kom
Grindavík mest 14 stigum yfir,
62-48, en Keflavík náði að kom
muninum minnst niður í 4 stig
á lokakaflanum áður en Watson
kórónaði leik sinn með því að
skora síðustu körfuna.
ooj@dv.is
FKKIMISSA
19.15 Heil umferð í
DHL-deild kvenna.
HK-Haukar, FH-Vfk-
ingur, KA/Þór-Valur,
Grótta-Fram,
ÍBV-Stjarnan.
19.35 Birming-
|»# y ham-Éeading í ensku
bikarkeppninni í
beinni á Sýn.
&=rn
23.40 Ensku 1. deildar-
mörkin á Sýn.
Komnir með nóg af því að tapa fyrir Njarðvík í vetur
Karlalið Keflavíkur er komið í Höll-
ina í 9. sinn eftir fjögurra stiga sigur á
nágrönnum sínum í Njarðvík, 89-85, í
undanúrslitaleik bikarsins í Keflavík.
Keflvíkingar lentu strax 2-7 undir en
þá var eins og leikmenn liðsins hefðu
fengið nóg af því að tapa alltaf fyrir
Njarðvík en Njarðvík hafði unnið átta
síðustu leiki liðanna.
Keflavíkurliðið skoraði 10 stig í röð
(12-7), var komið með sjö stiga for-
skot eftir fyrsta leikWuta (32-25), 13
stiga forskot í hálfleik (56-43) og náði
mest 19 stiga forskoti (64-45) eftir að
hafa skorað 8 af fyrstu 10 stigum
seinni hálfleiks. Njarðvíkingar gáfust
þó ekki upp og vom búnir að koma
muninum niður í tvö stig í upphafi
fjórða leikhluta (72-70) en þeir náðu
aldrei að jafna leikinn og þriggja stiga
karfa fyrirliðans Gunnars Einarssonar
gulltryggði sigurinn í lokin.
A.J Moye var greinilega manna
ákafastur í að bæta fyrir tapið í Njarð-
vík um áramótin en hann var einmitt
dæmdur í þriggja leikja bann fyrir
olnbogaskot sem hann gaf Jeb Ivey í
þeim leik. Moye var með 33 stig, 10
fráköst og 4 stoðsendingar í leiknum
og nýtti auk þess skotin sín mjög vel
(65%). Jeb Ivey skoraði 30 stig fyrir
Njarðvík og Brenton Birmingham var
með 19 en miklu munaði fyrir Njarð-
vík að stóm mennirnir sem hafa oft
farið illa með Keflavíkurliðið í vetur
vom í villuvandræðum. Þeir Friðrik
Stefánsson, Egill Jónasson og Halldór
Rúnar Karlsson léku þannig aðeins í
samtals 47 mínútur og 53 sekúndur í
leikinum og uppskám á þeim tíma 13
villur.
Njarðvfkingar vom búnir að vinna
alla fimm leiki liðanna í vetur með yf-
irburðum og samtals skildu 119 stig
liðin þegar þau hófu leik á Sunnu-
brautinni á sunnudagskvöldið. Tveir
þessara ieikja vom í Reykjanesmót-
inu, einn í Meistarakeppninni, einn í
deildinni og einn í Hópbílabikarnum.
Bætti upp síðasta leik AJ Moye
burfti bæði að sætta við tap og leik-
bann ileiknum á undan og hann var
afar einbeittur í undanúrslitaleiknum
gegn Niarðvlk um helgina.