Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2006, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2006, Qupperneq 11
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 11 m . y’”i A Jf 1 fpfj, £> siuöá* Þungurfótur Lögreglan á ísafirði hafði afskipti af nokkrum ökumönnum í liðinni viku vegna hraðakstur. Nokkrir þeirra sem hvað þyngsta fótinn höfðu eiga von á sektum vegna akstursins. Þá hafði lögreglan afskipti af nokkrum ökutækjum sem ekki hafa verið færð til lögbundinnar skoðunar. Þá hefur lögreglan á ísafirði aukið eftirlit með útivistar- reglubrotum ungmenna, eins meintri ölvun og þeim aðilum sem grunaðir eru um fikniefnameðhöndlun. Stúdentarfá aðgangskort í gær gátu stúdentar við Háskóla Islands skráð sig fyrir svonefndum stúdenta- kortum. Kort þessi veita stúdentum sólarhringsað- gang að byggingum skól- ans. Andri Heiðar Kristins- son, meðlimur hagsmuna- nefndar Stúdentaráðs og annar þeirra sem fór fyrir framkvæmdinni, segir að þetta geti orðið fjölmenn- asta sólarhrings aðgangs- kerfi landsins. „Já, ef allir stúdentar skrá sig getur kerfið orðið það fjölmenn- asta. Við erum mjög sátt með kerfið í heild og að- komu skólans að því." Menntaráð úthlutar Menntaráð Reykja- víkurborgar hefur út- hlutað um sjötíu millj- ónum króna til fræðslu- og þróunar- verkefna í leikskólum, gmnnskólum og tón- listarskólum fyrir skólaárið 2006-7. Framlög tíl leikskóla hafa aldrei verið hærri og námu ríflega 12 milljónum króna. Meðal þeirra sem fengu styrki vom Samtök áhugafólks um skólaþróun með 150 þús- und krónur og Myndhöggv- arafélagið í Reykjavík með 1.163.000 krónur. Dagsbrún keypti Senu Dagsbrún kynnti afkomu sína í gær, um 720 mifljónir í hagnað. Við sama tækifæri tilkynnti fyrirtækið kaup sín á Senu, sem fylgir tónlistar- útgáfa, umboð fyrir tölvu- leiki, tónlist og kvikmyndir, rekstur Regnboga og Smárabíós og Sýrland- hljóðverin. Einnig fyrirtækið D3, sem sér meðal annars um Tónlist.is. Dagur Group átti Senu en Dagsbrún greiddi 1600 milljónir króna í reiðufé og um 270 millj- ónir króna í hlutafé. Dagur er nú alfarið verslunarfyrir- tæki, með BT verslanimar, Skífuna, Sony Center og Hljóðfærahús Reykjavíkur. Þess skal getið að Dagsbrún er eigandi 365 prentmiðla, útgáfufyrirtækis DV. Lögreglan hefur hætt rannsókn á meintri líkamsárás Björns Elíasar Halldórssonar gegn Þóri Karli Jónassyni vegna skorts á sönnunargögnum. Þórir bar Björn þungum sökum fyrir áramót. Hann sagði meðal annars að Björn hafi sparkað í magann á honum vegna deilna þeirra um bílastæði fatlaðra. Björn Elías hélt sakleysi sínu hins vegar fram í DV og segir að nú hafi réttlætið náð fram að ganga. Björn Elías Það sem Þórirsagði um mig I fjölmiðlum Ivarlygi. J) i g í hj -J 1 „Þetta sýnir bara að það sem ég sagði í DV var hundrað prósent rétt. Ég kom aldrei við þennan kall,“ segir Björn Elías Halldórs- son sem í desember var í fréttum vegna ásakanna Þóris Karls Jónassonar um að Björn hafi ráðist á hann vegna deilna um bif- reiðstæði fyrir fatlaða. Þórir lagði fram kæru vegna málsins en Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur fallið frá rannókn vegna skorts á sönnunargögnum. Um mánaðarmótin nóvember- desember sagði Þórir Karl Jónasson, fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar og frambjóðandi í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í Reykjavík, þangað til nú um helgina, frá því að ungur maður hafi ráðist á sig fyrir utan matvöruversluninna Europris í Dugguvogi. I viðtölum við fjölmiðla sagði Þórir að maðurinn ungi hafi sparkað í magann á sér. Þórir sagðist hafa lagt fram kæru og að fjölmörg vitni hefðu verið að atburðinum. Vitnin myndu öll bera vitni um atburðinn í réttarsal. Vísaði ásökun- um á bug Eftir þungar ásak- anir Þóris í fjölmiðlum hafði DV upp á drengnum unga og bar þær undir hann. Drengurinn reyndist heita Björn Elías Halldórsson og vera sjó- „Það kom mér á óvart því það sem hann sagði um mig i fjöl- miðlum var tóm lygi." maður. Hann staðfesti við DV að hafa deilt við Þóri vegna þess að hann hafi lagt í stæði ætluðu fötluð- um ökumönnum. Hann vísaði því hn algjörlega á bug að hafa ráðist á Þóri. Sagði hon- um að drulla sér í burtu „Þegar ég kom út var þessi maður indbrjál- aður yfir því að ég hefði lagt í þetta stæði. Hann bakkaði svo bíinum sínum í veg fyrir bílinn minn svo ég komst ekki út úr stæðinu," sagði Björn á sínum tíma í viðtali við DV. Björn viðurkenndi að hafa misst þolinmæðina og látið Þóri Karl fá það óþvegið. „Ég sagði honum að drulla bílnum í burtu svo ég gæti bakkað út. Annars mundi ég bakka yfir bílinn. Það gerði hann. Ég veit ekki hvað hann var að æsa sig svona mikið yfir því að ég hafi lagt í þetta stæði. Hann er ekki einu sinni í hjólastól," sagði Björn Eh'as um mál- ið. Honum var heitt í hamsi enda borinn þungum sökum af Þóri. Hið sanna kom í Ijós Eftir að Þórir Karl lagði fram kæru hóf lögregla að rannsaka málið. Þeirri rannsókn er nú lokið. Með bréfi til Björns Elíasar, dag- sett þann 3. febrúar, var honum tilkynnt að vegna skorts á sönn- unargögnum hefði málið verið látið niður falla. Björn er því laus allra mála. Hann lítur svo á að réttlætið hafi náð fram að ganga. DV ræddi við Björn Elí- as í gær: „Það var náttúrulega leiðinlegt að lenda í deilum við þennan mann. Mér var sagt að hann nyti virðingar í samfélaginu. Það kom mér á óvart því það sem hann sagði um mig í ijöl- miðlum var tóm lygi. Mannorð mitt beið mikinn hnekki af þessu en nú hefur hið sanna komið í ljós," sagði Björn Elías sigri hrósandi Hyggst kæra til ríkissak- soknara „Þetta eru vonbrigði," segir Þórir Karl Jónasson um málið. Vonbrigðin koma á erfiðum tíma fyrir Þóri sem dró sig úr prófkjöri Samfylkingar- innar í Reykjavík nú um helgina eft- ir að hafa játað að hafa framvísað fölusuðum Contalgen lyfseðli. Það mál bíður niðurstöðu hjá Héraðs- dómi Reykjavíkur. Þórir ætlar reyndar ekki að sætta sig við niðurstöðu Lög- reglustjórans í Reykjavík í lík- amsárásarmái- inu. Hann segist ætla að að kæra hana til Ríkis- saksóknara. „Ég mun krefjast þess að þessu máli verði fylgt eftir. Ég vill láta reyna á þetta fyrir dómsstólum," segir Þórir Karl. andri@dv.is Fornminjarnar í Aðalstræti Sagður svíkja og stela út af greiðslukorti Vínanda hellt á hús Ingólfs Kjallara Hótel Reykjavík Centrum í Aðalstræti hefur verið lokað fram á vor. í kjallaranum eru rústir landnáms- skálans, þar sem talið er að Ingólfur Amarson hafi fest búsetu sína eftir að hann nam hér land. Að undanfömu hefur staðið yfir umfangsmikill for- leifauppgröftur í kjallaranum. í gær var fjölmiðlum gefinn kostur á að bera framkvæmdimar augum. Eftir fundinn var kjailaran- um lokað og verður hann ekki opnaður aft- ur fyrr en í vor. Ástæðan fyrir lokun- inni er sú að á morgunn stend- ur til að hella umtalsverðu magni af vínanda yfir forminjam- ar til þess að þær varð- veitist betur. DV sagði frá því í haust að íbúar í grjótaþorpinu Landnámsskálinn Honum var lokað ígær. I dag verður vini helltyfír hann. væm þó ekki ailir sáttir. Hefðu þeir til að mynda áhyggjur af AA-fundum sem"‘ reglulega em haldnir í Tjamargötu þama rétt hjá. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri í Reykjavík sagði I samtali við DV í haust að enginn hætta væri á ferðum „Þetta er meira en ein flaska sem fer þarna niður en öllumi|p:|ú að vera óhætt," sttgöi “'slökkviliðs- Bankaræningi ákærður fyrir fjársvik Mál Jóns Þorra Jónssonar, sem gefið er að sök að hafa svikið út vömr og þjónustu fyrir tæplega 422 þúsund krónur, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Jón á að hafa látið skuldfæra heimildarlaust á greiðslukortareikn- ing annars manns í ágúst 2004. Jón Þorri var dæmdur í desember 2004 fyrir vopnað banka- rán í útibúi Búnaðarbank- ans á Vesturgötu. Jón Þorri sagði að handrukkar- ar hefðu neytt hann til að fremja bankaránið. „Ég sagði það bara af því að ég 4 vissi að sú skýring yröi auðveld. Auðvitað var þetta ekki rétt," sagði Jón o Jón Þorri Jóns- son Framdi banka■ rán í vesturbænum Héraðsdómur Reykjavíkur Jón Þorri ákæður fyrir fjársvik. þorri sfðar í viðtali við DV um ástæð- ur þess að hann framdi bankaránið. Þrátt fyrir að hann varð uppvís að því að vera tvísaga þá hélt hann sig allan tímann við handrukkarasöguna í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón Þorri var dæmdur í tveggja ára fangelsi vegna bankaránsins en Hæstiréttur mildaði dóminn niður í 15 mánuði. Fjársvikamálið bíður aðalmeð- ferðar. valur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.