Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2006, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2006, Page 27
IJV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 27 Lesendur Úr bloggheimum Berthold og Mutombo „Þegar ég var íþriðja bekk snerist líf- ið um að eiga Thomas Berthold fót- boltamynd eða Dikembe Mutombo körfu- boltamynd. Það var allt frekar einfalt (nema efmann vant- aði áðurnefndar myndir). Allir voru vitlausir og tiltölulega áhyggjulausir. Ekki hægt að klúðra hlutunum á þessum aldri. Efmaður teiknaði mynd var alltaf sagt:„Þú lit- ar fínt, Kristmundur"." Krissi - godunofninvoruupptek- in.blogspot.com Röðin á Sirkus... „Já, Sirkus. Við ákváðum að prófa að fara á Sirkus. Sú til- raun misheppn- aðist hrapallega. Beisiklí, þá biðum við í óskipulögð- ustu biðröð á fslandi í sirka 30-40 mínútur. Biðröð er í raun rangnefni, því þetta var biðhrúga. Ekkert skipu- lag. Þeir frekustu komust áfram. Dyravörðurinn var stelpa, sem er at- hyglisverð tilbreyting. Mér heyrðist tónlistin vera ágæt, en ég heyrði hana bara rétt þegar hurðin opnað- ist á sirka fimm mínútna fresti. Við gáfumst upp eftir 40 mínútur í rign- ingunni. Get ekki ímyndað mér að staðurinn sé virði lengri biðar." Einar Örn Einarsson - eoe.is Lag vikunnar „Þemað I lagi vikunnar íþessum mánuði er rigning. En _ það eru til fjölmörg lög þar sem sungið er um rigningu. Og svo tengist þetta líka veðurfarinu undanfarna daga. En fyrsta lagið í febrúar er flutt af hljómsveitinni Creedence Clearwater Revival og heitir Have you ever seen the rain." Atli Týr Ægisson - atli.askja.org Þennan dag anð 1974 kom Concorde-þota í fyrsta sinn til íslands og lenti í Keflavík. Hún flaug á tvöföldum hljóðhraða á leiðinni frá Frakklandi. Bítlaæðið heltekur Bandaríkin í dag eru 42 ár síðan vél Pan Am- flugfélagsins lenti á Kennedy-flugvelli f New York með fjóra meðlimi Bítl- anna um borð. Þetta markaði upp- hafið að fyrstu heimsókn þeirra til Bandaríkjanna og að bítlaæðinu sem greip unga fólkið í landinu. Þeir höfðu komist í fyrsta sæti vinsældalista í Bandaríkjunum sex dögum fyrr með laginu „I Want to Hold Your Hand". Bítlamir, sem þá voru um tvítugt, heilluðu kvenpeninginn allverulega með ferskum stíl sínum og breyttu tónlistinni til frambúðar. 3000 öskr- andi aðdáendur tóku á móti þeim á flugvellinum og lá við uppþoti þegar þeir stigu út úr flugvélinni. Tveimur dögum síðar komu þeir í þátt Eds Sullivan. Það er áætlað að um 40% þjóðarinnar, 73 miiljónir, fylgdust með útsendingunni og er sagt að glæpum hafi tímabundið fækkað verulega á sýningartíma þátt- arins. Þeir félagar komu tvisvar fram í þáttum Eds Sullivan og em þættimir í öðm og þriðja sæti yfir mesta áhorf í Bandaríkjunum fyrr og síðar. Aðeins lokaþáttur MASH-þáttanna hefur náð meira áhorfi í bandansku sjón- varpi. Bitlarnir á JFK flugvelli 7. febrúar 1964. Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Reiði í austri, heimska í vestri GeirÁgústsson fjallar um samvisku- bit okkar allra. Frjálshyggjumaðurinn segir Bjöm Ragnarsson skrííai: Það er ömurlegt að fylgjast með fréttum af reiði múslima og heimsku Vesturlandabúa vegna birtingu skopmynda af Múhameð spámanni. Vesturlandabúar skemmta sér konunglega með því að pirra múslimana sem bíða eftir tækifærum til að ráðast á þá á móti. Fjölmiðlar á Vesturlöndum æra óstöðugan lýðinn í austri með Lesendur því að birta skopmyndirnar eins oft og víða og mögulegt er til þess að hann gangi örugglega af göfl- unum. Þannig geta fjölmiðlar á Vesturlöndum fyllt fréttasíður sín- ar með enn frekari ódæðisverkum múslima og alið enn frekar á hatri í þeirra garð. Sá vægir sem vitið hefur meira. Ég legg því til að hinn vestræni heimur, sem gefur sig út fyrir að vera æðri, snjallari og klárari en aðrir hlutar þessa heims, víki til hliðar og hætti að hamast á múslimum. Það er eina leiðin til Engin belti Strætisvagnafarþegi hríngdi: Ég tek reglulega strætó og hef furðáð mig á því hvers vegna það eru eíigin belti í vögnunum. í gær sat ég í einum vagninum sem snar- hemlaði með þeim afleiðingum að ég rak hendurnar f. Nögl brotnaði og fingur mörðust. Ég er líka ákaf- lega ósátt með þjónustu bílstjór- ans. Ég spurði hann hvenær menn hygðust setja belti í strætisvagn- anna. Hann svaraði, að því er virt- ist, ánægður með sig: „Aldrei!" Ég fæ einfaldlega ekki skilið hvers vegna það eru engin belti í að ljúka þessum leiðindum og róa friðs á á milli þessara tveggja ólíku múslimana. Það er eina leiðin til heima. í strætó stræó. Ein skýring sem menn gætu gefið upp væri sú að fólk er að ferð- ast stuttar vegalengdir og að það taki því ekki að festa belti á meðan. En að mínu mati ganga þau rök ekki langt. Það er ávallt hætta í um- ferðinni sama hversu stutt eða langt fólk er að ferðast. Reyndar er gott að belti séu í vagninum sem fer á Akranes, en það má bæta við beltum í vagnana sem ganga innan borgarmarkanna. Vantar belti / strætisvögnun- um eru engin beiti. Ekki hlusta á vinstrimenn Ríkum Vesturlandabúum líður sjaldan betur en þegar þeir geta haft slæma samvisku yfir einhverju. Ekki er verra ef slæma samviskan er hreinlega til komin vegna lífsstíls okkar eins og hann leggur sig. Okk- ur er talin trú um að fátækt annars fólks hljóti að vera ríkidæmi okkar að kenna. Okkur er sagt að af því við getum keyrt um í bílum og búið í hlýju húsnæði muni loftslag larðar taka heljarstökk inn í ýmist miklar hitasveiflur eða mikil kuldaskeið og valda bæði hungursneyðum og far- sóttum. Sem betur fer er þetta ekki rétt. Ekki er rúm til að útskýra það nán- ar hér, en lífsstíll okkar og eldsneyt- isbrennsla er ekki að ögra loftslagi plánetu okkar. Vinstrimenn trúa því hins vegar í einlægni að ef þeir fá að skipuleggja orkunotkun okkar (auk þess að stjóma tekjum okkar, vfmuefnanotkun og skoðunum á kvenfólki og blökkumönnum) þá geti þeir gert gagn. Marx, Lem'n og Castro eiga allir skylda hugsanavillu sameiginlega. Ekki kaupa boðskap- inn! Vertu þú sjálf(ur), hættu að hafa samviskubit, beittu raunsæi frekar en tilfinningarökum og þá mun þér og öðrurn vegna best. Horfir á heildarmyndina í tilverunni „Þetta snýst ekkert um Silvíu Nótt, lagið eða höfund þess," segir Kristján Hreinsson skáld sem nýlega kærði útvarpsstjóra fyrir að hafa leyft lagi Silvíu Nóttar að halda áfram þátttöku í forvali Eurovision-keppninnar. „Þetta snýst bara um það að ein- hvetjir fái ekki að fara á stangarstökki yfir eitthvað sem aðrir þurfa venju- Iega atrennu til. Mér finnst persónan Silvía Nótt frábær og lagið mjög fi'nt verð ég að segja. Hún á hrós skilið sem listamaður, en það segir mér lika að hún verði að axla ábyrgð sem slíkur og fara að reglum," skýrir Kristján sjónarmið sitt. Kristján á texta þriggja laga sem öll hafa komist áfram í forvali keppn- innar: Mynd af þér, Útópía og 100% hamingja. „Ég hef reyndar alltaf verið skrif- andi," segir Kristján. „Enda eru hag- mæltir menn og konur í báðum ætt- um. Ég á til dæmis vísur og texta frá því ég var krakki. Ég gaf út fjórar bækur á síðasta ári og er alltaf að - maður vaknar kannski á nætuma til að koma niður hugmynd á blað. Þessar pælingar geta verið allt á milli þess að vera absúrd og ofboðslega raunsæislegar. Ég skrifaði þetta alltaf niður í þessar litlu dagbækur sem maður fékk héma í gamla daga," segir Kristján með nostalgískum tóni. Kristján límr raunsæjum augum á tilveruna og telur sig lifa í núinu, en með víðsýni að leiðarljósi. Að sögn Kristján snýst lífið um það fyrir honum að flokka hug- myndir: „Ekki endilega í góðar og slæmar, heldur hvenær þær geti nýst mér í einhverju. Ég reikna heldur veraldarsöguna ekki í einhverjum ár- þúsundum eða hundruðum. í dag emm við að rífast um olíu sem varð „Stóru werömætín í tífínu eru fagrar hugmyndir og hug~ sjónir sem draga okkur áfram." til þegar einhverjar risaeðlur dóu út, en á morgun verðum við farin að ríf- ast um moldina sem þessar bækur mínar verða að í tímans rás. Stóm verðmætin í lífinu em fagrar hug- myndir og hugsjónir sem draga okk- ur áfram. Restin er hjóm eitt. Maður verður að líta á stóm myndina í til- verunni. Það er nefnilega ekki hægt að skoða hið smáa í veröldinni nema taka mið af heildarmyndiimi." Kristján Hreinsson er fæddur í Reykjavík 7. janúar 1957 en ólst upp i Kópa- vogi. Hann er sonur hjónanna Hreins Ágúst Steindórssonar og Guðrúnar Ólafsdóttur. Hann byrjaði ungur að yrkja og sendi frá sér fyrstu bókina á ung- lingsárunum og hefur síðan samíð fjöldann allan af Ijóðum, söngtextum og leikritum. Hann nam einnig leikhúsfræði við háskólann í Bergen í nokkur ár. I •-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.