Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2006, Síða 25
DV Lífsstíll
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 25
Ást og fjölskylda
Þórunn Lárusdóttir er fædd
06.01.1973
Llfstala hennar er reiknuö út frá
fæöingardegi. Hún tekur til eig-
inleika sem eiga öðrum fremur
að móta lifÞórunnar.
Lífstala Þórunnar er 9
Eiginleikar sem tengjast þessari tölu
eru: Mannúð, örlæti, óeigingirni, skuld-
bindingar og sköpunargáfa - hættir til
að tapa áttum þegar ofmikið álag ein-
nnnHnH|
kennir starfhennar eða jafnvel einkalif.
Árstala leikkonunnar er6
Árstala erreiknuð útfrá fæðingardegi og
þvi ári sem við erum stödd á. Hún á að
gefa visbendingar um þau tækifæri og
hindranirsem árið færirokkur.
Ríkjandi þættir sexunni eru ást, fjölskylda,
heimili og ábyrgð. Sexan sýnireinnig að
Þórunn býryfir óbilandi krafti, hugsjón-
um og góðmennsku og er vissulega fær
um aðsetja marksittá heiminn.
Meðvituð og
bjartsýn
Helga Soffia Konráðsdóttir er 46 ára
í dag, 23. febrúar 2006.
„Konan er svo sannarlega bjartsýn
en henni finnst hún ef til vill standa í
sömu sporum og hún gerði fyrir hálfu
ári en svo er þó ekki og hún má ekki
gleyma því. Lífsreynsla hennar er sex
mánuðum lengri og þess vegna er
hún meðvitaðri en hún hefur áður
verið.“
Hjjll
Wmmm
MMMMMMHÍ
—PHI í
", I. ..l'- '
itfii'ÉM,
Vinabandið leikur fyrir gesti og af því tilefni hittum við Unnl Eyfells sem ljómar
af gleði og ánægju. Henni leiðist aldrei enda er hún músíkant af lífi og sál.
Brjálaö að gera hjá Vinabandinu
m
V
„Ég er eldhress,“ svarar Unnur aðspurð
hvernig hún hafi það og bætir við að mórall-
inn innan Vinabandsins sem hefur verið starf-
andi síðan 1967 sé firábær. „Þetta er ótrúlega
gaman og nóg um að vera. í gær spiluðum við
tO dæmis fyrir balli. Við erum alltaf að koma
fram. Við komum oftast saman hjá honum
Arngrími en bandið er jú alltaf að koma fram.
Við erum svo helvíti fær,“ segir hún og hlær
smitandi hlátri yndslega töfrandi og heldur
áfram: „Ég hef rödd og ákvað fyrir löngu að ég
skyldi nota hana í stað þess að sitja heima og
láta mér leiðast," segir Unnur og bætir við að í
Gerðubergi sé góður félagsskapur: „Þar er
mjög þægilegt, þroskað og gott fólk.“
Talið berst að heilsunni og Unnur segist
vera dugleg við að hreyfa sig. „Ég stirnda
sundleikfimi fjórum sinnum í viku en Gerðu-
berg gengur fyrir því ég get alltaf farið í sund.
Þegar kemur að trimminu er ég svolítið kæru-
laus að því leyti að ég vil ekki taka það eins og
það sé manískt því ég er alls ekki kærulaus
manneskja. Ég er músfkant og hef ánægju af
að syngja. Söngurinn gefur mér svo mikla
hugarró."
etiy@dv.iS
Á morgun, föstudaginn 24. febrúar, verður efnt til heilmikillar Breiðholtshátíðar á vegum
þjónustumiðstöðvar Breiðholts í Álfabakka. Tilefnið er Menningarhátíð eldri borgara.
Vinabandið Við trommur situr Ingi-
björg Svemsdóttur og eiginmaður hennar
Arngrimur Marteinsson með harmónikku.
Til vinstri Haraldur Hjálmarsson og Unnur
Eyfells sem Lífsstfll ræðir við. Til hægri Jón
Hilmar Gunnarsson og Guðrún S. Krist-
jánsdóttir (á myndina vantar Þorgrim
Kristmundsson og EinarMaqnússon.)
wmmmmzmmmmmsmm
wmmMmmmmmmmmmmmm
Vilborg Aldís
Ragnarsdóttir
Spski
Langt
fram á
sextándu
öld voru
grasalækn-
ingar nán-
ast eina
lækninga-
aðferðin
sem notast var við. Grasalækningar
eru meðal elstu lækningcihefða og
hafa þróast með mannkyninu frá
örófi alda. Nánast öll menningar-
samfélög eiga sér langa hefð í þess-
um efnum og var/er jafnan notast
við staðbundna flóru, þ.e. jurtir.
Fræði grasalækna
oft tengd hjátrú
Menn trúðu því líka að hver lík-
amshluti væri undir stjórn ákveð-
ins stjörnumerkis og hvert lækn-
ingargras undir stjóm ákveðinnar
reikistjörnu.
Nútímalæknavísindi eru að
mörgu leyti byggð á fræðum hinna
fomu grasalækna. Flest venjuleg lyf
sem framleidd em hjá lyfjafyrir-
tækjum innihalda raunar eftirlík-
ingar náttúrulegra efna og virku
efnin úr hinum ýmsu fornu nátt-
úrulyfjum em uppistöðuþáttur í
mörgum algengum lyfjum í dag.
Kínverjar, Japanar, Indverjar og
indíánar Norður- og Suður-Amer-
íku eiga sér langa hefð í grasalækn-
ingum. Talið er að hefðbundnar
kínverskar grasalækningar eigi sér
Hjátrú og grasalækningar
allt að 4000 ára sögu, bæði hafa
grasalækningar verið kenndar þar
með formlegum hætti en einnig er
til alþýðleg hefð grasalækninga í
Kína. Margar fjölskyldur búa til sín
eigin grasalyf og uppskriftir af þeim
ganga kynslóð fram af kynslóð. Hrá-
efnið er vanalega þurrkað og oft em
lagaðar súpur, seyði, eða efnið er
unnið í piÚur, duft, áburð, heilsu-
drykki eða te. í Kína og Japan hvetja
stjómvöld til notkunar á grasalyfj-
um og telst það eðlilegur þáttur í
heilsugæslukerfi þjóðarinnar.
Ævaforn læknalist
Á Indlandi em grasalækningar
hluti af hinni ævafomu ayur-
vedísku („vísindi lífsins“) læknalist
sem enn er víða stunduð. Þetta
kerfi er sagt vera eitt elsta og víð-
tækasta lækningakerfi í heimi.
Ræturnar liggja til fomindverskrar
menningar og heimspeki hindúa-
siðar. Margt er sameiginlegt með
ayurveda og kínverskri læknalist.
Samkvæmt ayurveda er maðurinn
smækkuð mynd alheimsins sem er
skipt í fimm frumefni, rúm, loft,
eld, vatn og jörð og í mannslíkam-
anum samsvara þau skilningarvit-
unum fimm, þ.e. heyrn og sjón og
snerti-, bragð- og lyktarskyni og
eins starfstækjunum fimm, hönd-
um og fótum og tal-, meltingar- og
kynfærum. Bæði í kínverskri
læknalist og ayurveda skipta hug-
myndir um lífsanda eða orku og
jafnvægi í líkamanum miklu máli
og er líkaminn talinn stjórnast af
óefnislegum kröftum sem tengjast
áþreifanlegu efni. Ayurvedískum
aðferðum er beitt um allt Indland
og víðsvegar í þróunarlöndunum
og eru þær viðurkenndar af Al-
þjóðaheÚbrigðismálastofnuninni.
Austrænar grasalækningar hafa
með rannsóknum í þúsundir ára
orðið að háþróaðri og flókinni
fræðigrein. í kínverskri læknalist
skiptir mataræði miklu máli við
meðferð sjúkdóma og austrænir
grasalæknar gefa fyrirmæli um
leiðréttingar á matarvenjum og
lífsháttum. Flestir grasalæknar
telja að líkaminn starfi ásamt sál-
inni og tilfinningunum að því að
viðhalda því jafnvægi sem er for-
senda góðrar heilsu og vellíðunar.
Samkvæmt þessari heildrænu af-
stöðu nota grasalæknar þekkingu
sína á eiginleikum plantna til að
koma jafnvægi í lífsorku sjúklinga
sína, þannig að líkami þeirra geti
læknað sig sjálfur. Læknavísindin
telja það að líkami og sál séu að-
skildar heildir. Brugðist er við sjúk-
dómum og meinsemdum með að-
gerðum sem eingöngu beinast að
einkennum og að hinum sjúka lík-
amshluta. í hefðbundum lækning-
um er gefið andhistamín við of-
næmi en i óhefðbundnum lækn-
ingum er leitast við að finna orsak-
ir vandans og snúast gegn þeim.
Allir grasalæknar viðurkenna að
skurðlækningar og lyfjagjafir séu
gagnlegar undir vissum kringum-
stæðum og að framfarir í nútíma-
læknavísindum geti styrkt grasa-
lækningar og öfugt.
í raun getur hver sem er búið til
áhrifarík grasalyf en svo er ekki
mælt með nema að viðkomandi búi
yfir sérþekkingu á þessum efnum
eða hafi fengið nákvæmar leiðbein-
ingar frá fagaðila. Lækningajurtir
fást í heilsuvöruverslunum og sér-
verslunum. Þær má kaupa í tepok-
um eða sem pillur, hylki, duft, seyði
og mixtúrur sem og áburði og
smyrsli, en fyrir alla muni skal bera
allan heilsufarsvanda undir lærðan
grasalækni eða venjulegan lækni
áður en meðhöndlun lyfjanna hefst.
Grös geta verið mjög kröftug og
í of stórum skömmtum geta þau
verið eitruð, því verður að með-
höndla þau rétt ef þau eiga að
koma að gagni.
Stjörnuspó
Vatnsberinn (20.jan.-1s. febr.)
Bestu eiginleikar þínir fela í
sér sérstöðu og eru ekki alltaf það sem
fólkið í kringum þig sér í fari þínu. Efldu
hæfileika þína sjálf/ur.
Fiskarnirr?9. fébr.-20. mars)
Þú ert minnt/ur á að leyfa
öðrum að leggja orð í belg næstu daga
af einhverjum ástæðum. Hlutleysi á
sannarlega rétt á sér en það ætti ekki
að vera ráðandi í lífi þínu. Ekki setja
möguleikum þínum takmörk.
®Hrúturinn (21.mars-19.aprn)
Ekki gleyma áætlunum þín-
um og gakktu fyrr en síðar í verkefni
sem þú hefur látið sitja á hakanum
lengi vel. Þér er ráðlagt að nota stolt
þitt á jákvæðan máta til að efla þitt
innra jafnvægi. Ekki ýta verkefnum líð-
andi stundar frá þér því þá áttu á
hættu að gleyma að takast á við þau.
NaUtið (20. april-20.mai)
Um þessar mundir hefur þú
geysilega þörf til að sýna þínum nán-
ustu mikla ást. Þú hefur tileinkað þér
að hætta að hugsa stöðugt til fortíðar
og eflir styrk þinn meðvitað með því að
upplifa nútímann frjáls og óháð/ur.
©WlbUMM (21.mal-21.júni)
Þú munt finna fyrir þægilegu
jafnvægi í dag og næstu daga ef þú til-
einkar þér milliveginn og innra jafn-
vægi. Ekki óttast framtíð þína því götur
þínar eru greiðfærar.
ffadbbm (22. júni-22.júli)
Ekki hika við að læra að koma
í veg fyrir að aðrir kenni þér það sem
þú þráir að kynnast þessa dagana.
Krabbinn vill sannarlega vera elskaður
og ætti að leyfa sér að upplifa sanna
| ást án skilyrða.
l]Óf\\b(23.júli-22.ágúst)
W
Skynjun þín er næm um
þessar mundir og þú áttar þig á að-
stæðum en væntir þess oftar en ekki
að aðrir geri slíkt hið sama. Leyfðu þér
að vera einlæg/ur.
Níey'ján (23. ágúst-22.sept.)
W Ef þú tilheyrir stjörnu meyju
ættir þú að hlusta á hjarta og huga
þegar kemur að tilfinningalegri ákvarð-
anatöku sem þú stendur frammi fyrir.
Hugsaðu fyrst og fremst um eigin hag.
Vogill (23. sept.-23. okt.)
Ekkert verður úr engu, kæra
vog. Hér birtist jákvæð spenna og
vellíðan sem virðist einkenna leið þína.
Hvað innri líðan þína varðar, er komið
að því að þú hugsir betur um þínar til-
finningar og óskir.
Sporðdrekinn fK0tr.-21.mr.)
f Ef þú ætlar þér að breyta
stöðu þinni og áherslum í lífinu ættir
þú að framkvæma drauma þína og
stuðla að almennri velllðan. Ef ástandið
helst óbreytt munt þú standa þar sem
þú ert í dag. Örlögin bíða eftir að þú
gangirtil verks.
Bogmaðurinn (22.n6v.-21.des.)
Næstu daga munt þú takast
á við verkefni sem þarfnast dugnaðar
af þinni hálfu og þér er ráðlagt að gefa
ekki eftir því hér er um tímabundið
verkefni að ræða. Árangurinn er alfarið
undir þér kominn.
hm
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
'mW Leggðu áherslu á að nýta
orkuna rétt. Þú mættir einnig leggja
þig betur fram við að hlúa að sjálfinu.
f SPÁMAÐUR.IS