Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2006, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2006
Fréttir DV
Tíndur Jónsson Attaði
sig ekki áþviað hann
héldi á risastórum hníf.
leiðinni mættu þeir fórnarlambi
sveðjuárásinnar. Tindur segir að
hann hafi ráðist á þá og um leið hafi
þeir byrjað að lemja hann og Tind-
ur hjó hann með sveðjunni þar til
úr blæddi.
Fíkniefni
fundustvið
húsleit
Lögreglan í Borgarnesi
fann talsvert magn af vímu-
efnum við húsleit á föstu-
daginn. Aðallega voru það
kannabisefni en einnig lítil-
ræði af amfetamíni.
Lögreglan gerði upptækan
riffil í eigu húsráðanda.
Málið er í rannsókn. Mikið
af vímuefnamálum kom til
kasta lögreglunnar í Borg-
arnesi um helgina.
Aöalmeðferð fór fram í máli Tinds Jónssonar sem er gefið að sök að hafa hoggið
pilt með sveðju. Tindur segir vopnið ekki hafa verið sveðju heldur risastóran hníf.
Hann hafi verið búinn að gleyma því að hann héldi á hnífnum og einungis talið sig
vera að gefa fórnarlambinu venjulegt kjaftshögg. Vitnisburður Gunnars Ólafssonar
fyrrverandi lögreglumanns fékk tvær mæður hinna ákærðu til þess að tárast.
Botnað á
Næsta bar
Búast má við dýrum
kveðskap, fagurgerðum
fyrripörtum og brilljant
botnum á Næsta bar annað
kvöld, 22. mars. Efnt verður
til hagyrðingakvölds á
barnum. Þar koma fram
íjórir snillingar á þessu
sviði,þeir Kristján Hreins-
son, Omar Ragnarsson,
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
og Sigurjón V. Jónsson. Auk
þess mun gestum gefast
tækifæri til að sýna snilld
sína. Dagskráin hefst
stundvíslega kl. 21.
„r>að ligguráað bjarga land-
inu, það liggur á að bjarga Is-
tendingum og það liggur á að
Ijúka þessu símtali áður en
síminn minn verður batterís-
laus," segir Andri Snær
Magnason rithöfundursem
nýlega
sendi
frá sér
bókina Draumalandið - Sjálfs-
hjálparbók handa hræddri
þjóð. Hann vinnur nú ötullega
sem endranærað því að
kynna þjóðina fyrirþeim hætt-
um sem hann telurliggja í
frekari stóriöjuframkvæmd-
um.
„Ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað ég var að gera,“ segir
Tindur Jónsson er aðalmeðferð fór fram í máli hans í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Tindur er ákærður fyrir tilraun til mann-
dráps með því að hafa hoggið pilt í höfuðið með sveðju í október
á síðasta ári. Tindur segist hafa verið undir áhrifum amfetamíns
þegar árásin var gerð. Hann hafi reynt að leita sér hjálpar vegna
skapofsans í sér.
mmammwm
Tindur Jónsson, ásamt Árna Þóri
Skúlasyni, Helga Mar Finnbogasyni
og Þorsteini Pálssyni, er ákærður
fyrir fjórar líkamsárásir.
Allar árásirnar eiga það sameig-
inlegt að hafa verið hrottalegar og
virðast bera keim skapofsa Tinds
sem hafði sig að mestu í frammi í
árásunum. Hann situr í gæsluvarð-
haldi og mun gera það þar til réttar-
höldunum lýkur.
Margt var um manninn í réttar-
salnum í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Þar voru mæður tveggja ákærðra
sem og aðstandendur fórnarlamba.
r gr
Gunnar Olafsson, fyrrverandi
lögreglumaður, bar vitni í gær í
einni af líkamsákærunum fjórum.
Hann sagði að Helgi Mar Finnboga-
son hefði slegið konu í andlitið með
vodkaflösku vegna deilna um læti
sem Helgi ásamt meðákærðu við-
höfðu í janúar á síðast ári fyrir
framan blokk sem þau bjuggu í.
Eiginmaður konunnar kom
henni til bjargar og segir Gunnar að
þá hafl Tindur ásamt félögum sín-
um slegið í hann og sparkað.
Þegar vitnisburðinum lauk tár-
uðust tvær mæður drengjanna sem
eru ákærðir.
Á amfetamíni
„Ég var á amfetamíni þegar
þetta gerðist," segir Tindur sem
ásamt félögum höfðu setið að
drykkju síðan klukkan átta þetta ör-
lagaríka kvöld. Árásin átti sér stað
upp úr miðnætti.
Tindur ásamt meðákærðu höfðu
farið úr partíinu til þess að lemja
annan pilt sem Helgi átti sökótt við.
Helga er gefið að hafa slegið piltinn
áður en þeir héldu aftur í partíið. Á
Risastór hnífur
„Ég áttaði mig ekki á því að ég
héldi enn á hnífnum," sagði Tindur
í Héraðsdómi og taldi sig eingöngu
að vera að kýla piltinn. Saksóknari
kom með heljarinnar sveðju sem
fannst á heimilinu þar sem átökin
upphófust sem sönnunargagn.
Tindur neitar að hafa verið með
þessa tilteknu sveðju: „Þetta var
ekki sveðja heldur risastór hnífur,"
sagði hann þegar saksóknari sýndi
honum vopnið.
Sveðjan hafði verið læst inni í
byssuskáp á heimilinu en sam-
kvæmt vitnisburði móður piltsins
sem bjó þar týndust lyklarnir að
skápnum og ekki er vitað hvar þeir
eru.
Þungur dómur
Tindur var á skilorði fyrir aðra
líkamsárás þegar árásin var gerð. Er
því ljóst að hann gæti fengið afar
þungan dóm fyrir gjörðir sínar. Við-
„Þetta var ekki
sveðja heldur
risastór hnífur."
urlög við tilraun til manndráps eru
allt að sex ára fangelsisvist.
Framhald aðalmeðferðar verður
í dag. valur@dv.is
m -
Gunnar Ólafsson fyrverandi
lögreglumaður Grættimæð-
ur ákærðu þegar hann bar vitni
FERMINGARDAGURINN MINN
Gestabók • Myndir • Skeyti
LITIÐ VIÐ í NÆSTUOG BIÐJII
UM UM FERMINGARDAGINN
MÚLALUNDUR $
FÆST I OLLUM HELSTU BLOMA-
OG BÓKAVERSLUNUM LANDSINS VINNUSTOFA SÍBS • Hátúni 10c • Pósthólf 5137 • 125 Reykjavík