Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 21. APRlL 2006 Fréttir DV Enginn þvott- uráíslandi * Björn Friðfinnsson, for- maður samstarfsnefndar um aðgerðir gegn pen- ingaþvætti, segir að erlend ' dagblöð og vefsíður hafi rangt eftir sér í fréttum sem birtust í gær þess efnis að mikið af nýfengnum auði á íslandi sé fenginn með pen- ingaþvætti á fjármunum frá Rússlandi. Björn segir að koma sérfræðinganefnd- ar á sviði peningaþvættis til íslands tengist þessum fréttum ekki, heldur sé hún hluti af reglulegum heim- sóknum nefndarinnar til landsins. „Hjá mér liggur á að skapa frið og sátt í nýrri sókn," segir séra Skúli S. Ólafsson sóknarprestur í Keflavíkurprestakalli. „Svo liggur sumrinu á og mér að njóta þess." Þrír af þeim íjórum sem handteknir voru í stóra BMW-málinu á skírdag hafa annað- hvort játað eða gefið í skyn að þeir vilji leysa frá skjóðunni. Höfuðpaurinn þegir enn en erfitt verður fyrir hann að neita þar sem lögreglan hleraði BMW-bílinn sem fíkniefnin voru falin í. Þrír aí tjórnm játa í stóra BMW-mólimi Flestöll kurl virðast því vera komin til grafar í stóra BMW-málinu þótt angar þess muni eflaust teygja sig lengra eftir því sem á líður. Yfirheyrslur lögreglunnar yfir þeim fjórum, sem handteknir voru á skírdag með 22 kíló af amfetamíni og hassi í BMW-bifreið á Krókhálsi, hafa gengið vel og hafa þrír vitorðsmannanna játað eða gefið í skyn að þeir muni játa. DV hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að þrír af þeim íjórum, sem handteknir voru í iðnaðarhúsnæði við Krókháls á skírdag með 22 kíló af amfetamíni og hassi falin í bens- íntanki BMW-bifreiðar, hafi annað hvort játað aðild sína að málinu eða muni gera það í dag eða á morgun. Þrír opna sig Lögreglan hefur haldið íjór- menningunum í einangrun frá því að handtakan fór fram. Sam- kvæmt heimildum DV hefur bfla- salinn Hörður Hilmarsson þegar játað aðild að málinu en vinirnir Ár- sæll Snorrason og Hollendingurinn Rotterdam zHér kynntust þeirJohan Handrick og Ársæll Snorrason sem báðir sitja núi gæsluvarðhaldi og búa sig undir að játa aðild sína að stóra BMWmálinu Johan Handrick hafa gefið það út að þeir muni játa og leysa frá skjóðunni um aðfld sína að málinu. Höfuðpaurinn þegir Heimildir DV herma að höfuð- paur þessa máls og reyndar einn af höfuðpaurum stærsta dóphrings fs- lands, Ólafur Ágúst Ægisson, hafi ekkert sagt við yfirheyrslur og ætli ekki að gefa sig jafn auðveldlega og félagar hans þrír. Eins og DV greindi frá á miðvikudag er Olafur Ágúst höfuðpaur dóphringsins ásamt fé- laga sínum Sverri Þór Gúnnarssyni en þeir voru aðalmennirnir í stóra fflcniefnamálinu árið 2000. Sérfræðingurfrá Hollandi DV hefur öruggar heinildir fyrir því að Hollendingurinn Johan Hand- rick hafi verið keyptur til verksins vegna sérfræðiþekkingar sinnar á að koma fíkniefnunum fyrir og ná þeim úr bensíntanki. Hann kom til lands- ins sama dag og lögreglan lét til skar- ar skríða en vinskapur hans og Ár- sæls nær langt aftur. Sömu heimildir herma að aðkoma Ársæls að mál- inu hafi verið að koma Ólafi Ágústi í tengsl við sérffæðinginn Johan. • BPBnPÍSS Hlerunarbúnaður í bílnum Samkvæmt heimildum DV var lögreglan afar vel undirbúin þeg- ar Hörður Hilmarsson bílasali leysti BMW-bílinn út. Komið hafði ver- ið fyrir hlerunarbúnaði í bflnum þannig að lögreglan heyrði alit sem fór manna á milli í bflnum frá því að hann var leystur út úr tollinum þar til wal mennimir fjórir, Ólafur Ágúst, Ársæll, Hörður og Hollendingurinn Johan voru handteknir. Öll þeirra samskipti í bflnum eru skráð og skjalfest í bókum lögreglunnar og því erfitt fyrir hina handteknu menn að neita aðild að málinu. andri@dv.is oskar@dv.is Fermingartilboð Kynnum nýjar gerðir af rúmum með 20% kynningarafslætti. Rafstillanleg rúm 120x200sm með svæðaskiptri pokafjaðradýnu Réttverðkr. 118.000. Tilboðsverð kr. 94.400.- c rúmco lanaholtsveol 111,104 Rvk. Sími 568 7900 Hanson rúm með fjaðrandi rumbotni, svæðaskiptri pokafjaöradýnu og lúxus yfirdýnu með hrosshárum (án höfðagafls). 120x200. Verðkr. 110.600. Tllboðsverð kr. 88.480.- Opið: virka daga 11-18 • laugardaga 11-16. Skammhlaup á skemmtistað Rjúkandi stuð á Kaffibarnum ,■ t •• ' '! • ’ ■ ! i ‘ • ‘ Litíu mátti muna á föstudeg- inum langa að eldur brytist út á Kaffibarnum þegar bjór helltist yfir rafmagnstæki á barnum og plötu- snúðagræjur. Orsök óhappsins má rekja til stúlku sem virðist hafa misst bjórinn sinn yfir barborðið með þeim afleiðingum að skammhlaup varð og rafmagnið fór af, stuttu síð- ar varð að loka staðnum og kalla á slökkviliðið. „Það rauk úr græjunum," seg- ir Steinunn Arnardóttir sem mynd- ar ásamt vinkonu sinni plötusnúð- adúettinn SilliE&StoniE. Hún segir að einhver ólánssöm stúlka hafi misst bjórinn sinn yfir millistykld sem varð til þess að rafmagnið fór af. Skammhlaupið eyðilagði sam- kvæmt heimildum afgreiðslukass- ann og kaffivélina en mikill fjöldi Steinunn Arnardóttir Steinunn og Silja, eldheitir plötusnúðar. var inni á staðnum og varð að dúsa í myrkrinu í þó nokkurn tíma. „Þetta var í raun bara eins og góð kvöld eru á Kaffibarnum," seg- ir Steinunn hlæjandi og bætir við að stúlkugreyið hafi sennilega ekki einu sinni tekið eftir því hvert bjór- inn hennar fór og því enginn sér- stakur skömmustusvipur á henni eftir á. Loka þurfti staðnum í kjölfarið en stemningin var þó góð. Að sögn gesta var brunalykt eftir herlegheit- in en heimildir segja að rokið hafi úr rafmagnstöflunni og starfsfólk ekki viljað taka þá áhættu að yfir- gefa timburhúsið án þess að kalla á slökkviliðið. Steinunn telur ekki um guðlega íhlutun að ræða vegna tímasetn- ingarinnar og bætir við að lokum: „Þetta er nú ekki það versta sem maður hefur lent í." vatur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.