Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Blaðsíða 13
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 21. APRlL 2006 1 3 Pólitískur prestur Bjöm Bjarna- son mun leggja það til við kirkju- þing að skipun- arvald ráðherra á sóknarprestum verði tekið úr hönd- um kirkjumálaráð- herra og sett í hendurnar á kirkjunni sjálfri. Þetta sagði Björn í viðtali við Víkurfrétt- ir en þeir höfðu samband við hann í kjölfar þess að sr. Skúli Ólafsson var skipað- ur sóknarprestur í Kefla- vík gegn vilja meirihluta sóknarbarna sem vildu sjá sr. Sigfús B. Ingvason gegna stöðunni. Bloggi lokað vegna eineltis Bloggsíðu Árna Guðmunds sonar, æskulýðs- fulltrúa í Haftiar- firði, var nú fyrir skömmu lokað vegna eineltis. í ljós kom að ekki var hægt að fara inn á vefsíðu æskulýðsfor- kólfsins og komu einung- is upp skilaboð frá tölvu- deild Hafnarfjarðarbæjar að síðunni hefði verið lokað þar sem að hún innihéldi óæskilegt efni. Skýringin reyndist þó ekki vera sú að Ámi hefði verið að leggja í einelti heldur var síðunni óvart lokað út af því að hann var samtengdur stóru tölvukerfi í Hafnarfirði en borið hefur á einelti í tölv- um í skólum bæjarins. Flokkur Alþýð- unnaríVest- mannaeyjum Flokkur alþýðunn- ar hefur verið stofnaður í Vestmanneyjum en hann samanstendur af Frjáls- lynda flokknum annars veg- ar og hins vegar óháðum úr bæjarfélaginu. Arnar G. Hjaltalín fer með oddvita- hlutverk flokksins og sagði hann í viðtali við eyjar.net að flokkurinn samanstæði af breiðum hópi fólks úr bæjarfélaginu. Annað sæti listans skipa Hanna Bima Jóhannsdóttir og það þriðja vermir Sara Hamilton. Kvenfélög sameinast Kvenfélag Geirdals og Kvenfélagið Liljan í Reyk- hólahreppi hafa ákveðið að sameinast en tvö félög hafa verið starfandi í hreppnum síðan 1987. Nýja kvenfé- lagið mun heita Kvenfélag- ið Katla og er þar vísað til þjóðsögunnar um Kötlu- draum sem gerist á Reyk- hólum. Kemur þetta fram á vefhreppsins, reykhólar. is. í stjórn hins nýja félags em þrjár konur og má segja að hver um sig sé fulltrúi síns svæðis en það eru þær Svanborg Guðbjörnsdóttir frá Kambi, Herdís Matthías- dóttir frá Reykhólum og Ingunn Jóna Jónsdóttir frá Þurranesi í Saurbæ. Fyrir tæpum tveimur vikum stöðvaði lögreglan á Keflavíkurflugvelli Frey Njarðarson með heróín og kókaín innvortis. Var það í fyrsta sinn sem lögreglan stöðvar innflutning á heróíni. Fáir gera sér grein fyrir því hvað svona efni kosta á götunni. inum. Lögregluembætti um allt land vinna að því að uppræta fíkniefha- starfsemi og daglega heyrum við fréttir í fjölmiðlum af fíkniefna- sölum eða fíkniefnaneytendum sem eru handteknir. Þeir eru þó fáir sem gera sér grein fyrir því hvað þessi efni kosta fyrir neyt- andann. Þeir sem vinna við forvarnarstarf- semi og við meðferð fíkniefnaneyt- enda var brugðið þegar þeir heyrðu af því að lögreglan á Keflavíkurflug- velli hefði stöðvað innflutning á heróíni, í fyrsta skiptið í sögu fíkni- efnamála á íslandi. Þórarinn Tyrf- ingsson, yfirlæknir SÁÁ var einn af þeim. Þetta ber að taka alvarlega „Það ber að taka allt svona mjög alvarlega en það verður líka að túlka það í samhengi við annað," segir Þórar- inn. „Samhengið er nátt úrulega það að mað- ur ætlar nú að mest af því heró- íni sem hefur komið til lands- ins í gegnum tíðina, allt frá áttunda ára- tugnum þeg- ar eitthvað af því barst frá Kristjaníu, hafl verið mjög lít- ið og bundið við einstakl- inga sem eru háðir þess- um efnum. Þeir eru þá að taka þetta með sér til landsins." Götuverðá fíkniefnum að þetta sé hluti af skipulagðri glæpastarfsemi sem er allt annar þáttur. í kjölfar hennar sæjum við væntanlega verslun og dreifingu á heróíni hér innanlands en það höf- um við ekki séð, en þetta eru ekki góðar fréttir," segir Þórarinn. Athugið að eftirfarandi listi miðast við töflu/gramm. Hass:2.500 kr. E-tafla: 2.500 kr. Gras: 3.000 kr. Amfetamín: 5.000 kr. Contalgin SOOmg: 10.000 kr. Kókaín: 17.000 kr. Heróin:25.000 kr. Sjúklingar tala um heroin ^ „Við höfum frétt af g £ þessu og sjúkling- Jt ar hafa sagt okk- ' . ■ ur frá þessu," ^ I segir Þórarinn I um heróín inn- I flutninginn. „Fg er alltaf svo §9 bjartsýnn maður, WB égvil ailtaftúlka ^ þessa atburði Æm þannig ^ þangað til Æ . ég er viss ms*. k. um Æi ~7T Freyr Njarðarson Vartekinn með heróín innvortis i Leifsstöð en hann er sá fyrsti sem er gómaður með það efni. dýrast Sjúklingar sem ækja meðferð hjá ÁÁ eru spurðir egar þeir koma til eðferðar hvort og hvaða- fíkniefni eir hafa keypt und- farnar tvær vikur. efa sjúklingarnir þá pp verðið á fíkniefn- Er þetta svo- ölluð verðkönnun og því er haldið utan um götuverð fíkniefna hér á landi. „Við höfum ekki fengið heró- ín í verðkönnun hjá okkur í nokkra mánuði svo ég get ekkert sagt um verðið," segir Þórarinn. Samkvæmt heimildum DV kostar gramm af heró- íni tæpar 25 þúsund krón- ur en það fer að sjálfsögðu eftir framboði eins og gengur og ger- ist í viðskipta- heiminum. Það ger- ir heróínið að dýrasta fíkniefninu á íslandi. Þórarinn Tyrfingsson Yfírlæknir SAA segist ekki enn -,já skipulagða starfsemimeð sölu á herólni hér á landi. ísland tæmdist af fólki yfir hátíðirnar Met í ferðalögum um páskana íslendingar hafa aldrei ferðast jafrt mikið um páskana eins og um nýaf- staðna páskahátíð. Þrjár af stærstu ferðaskrifstofum landsins seldu sex þúsund manns pakkaferðir til .. . hinna ýmsu áfangastaða og voru Kanaríeyjar vinsælasti áfanga- staðurinn. „Égmanekkieftir svona mikilli geggj- un í sölu eins og fýr- ir þessa páska," segir Guðbjörg Sandholt starfsmaður Heimsferða. „Við bættum við vélum til Kanarí og Costa del Sol og allt seldist upp og við fengum bara ekki fleiri vélar annars hefð- um við getað selt miklu fleiri ferðir," segir Guð- björg. „Við seldum helmingi fleiri ferðir en í fyrra," segir Helgi Jóhannsson for- stjóri Sumarferða. „Það var uppselt í allar páskaferðimar hjá okkur fýr- ir áramót en ég held að það hafi orðið breyting hjá fólki hvað varð- ar að vera fyrr á ferðinni að bóka ferðina sína. f fyrrasumar lenti fólk í því að allt var uppselt og sum- ir komust ekki til údanda í frí og fólk ætlaði ekki að trúa því að allt væri uppselt," segir Helgi. Hann segir að vinsælasti áfangastaður- inn hjá Sumaferðum um páskana hafi verið Ten- erife á Kanaríeyjum og nú þegar sé búið að selja 70 prósent af sum- arframboði Sumar- ferða. „Það hefur aldrei selst jafn mikið af ferð- Suðræn strönd og sólskinsblíða Eftir kaldan og dimman vetur vilja Islendingar komast f sól og setjast undir döðlupálma á suðrænni strönd. um á jafii stuttum tíma," segir Guðrún Sigurgeirsdóttir framleiðslustjóri Úr- vals Utsýnar. „Ég held að margt af því fólki sem fór í frí til útlanda um pásk- ana hafi viljað losna við allar skyldur og kvaðir. Fólk gat kúplað sig út og haft það rosalega gott í friinu,"segir Guð- rún. Kókaín Spltt og kókaln er vinsælt hjá ungu fólki sem villskemmta sérsem lengst. Verð hefur ekki hækkað Nægt framboð hefur verið á fíkni- efnum undanfarin ár og því verð á þeim lítíð breyst. Frekar lítið er um e-töflur á landinu eins og er en búist er við því að það breytíst í sumar. Það er árstíminn sem fólk neytir mest af e-töflum. Fleiri í kannabisræktun Hass og gras hefur verið til allt árið en framboð af grasi hefur aukist. Ástæða þess er talin vera sú að fleiri íslendingar eru farnir að stunda ræktun á kannabisplöntunni. Þar af leiðandi hefur innflutningur á efn- inu dregist saman. Fíkniefnafundir eins og þessi í Reykjavík, þegar lögreglan lagði hald á 22 kíló af amfetamíni og hassi, veldur því að verðið hækkar lítillega en það er aðeins tímabundið. Hin sorglega staðreynd er sú að þrátt fyrir góða vinnu lögreglu gegn fíkniefnum flæðir þetta um göturn- ar. Guðbjörg Sandholt hjá Heimsferðum Man ekki eftir þvlllkri sölu á páskaferðum eins og I ár. Allar ferðaskrifstofumar eru sam- mála um það að ástæðumar fýrir svona mikilli söluaukningu á páska- ferðunum sé fyrst og fremst sú að fólk hafi átt fleiri fridaga ef sumardagurinn fýrstí er talimt með. Síðan vom pásk- amir seinna í ár og veður þess vegna betra víða í Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.