Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 Fréttir DV Sandkorn Jakob Bjarnar Grétarsson • Stjórnmála- baráttan á Skag- anum ætlar að verða með skrautlegra móti. Gísli S. Einars- son söðlaði um og gekk til liðs við Sjálfstæð- isflokkinn sem bæjarstjóraefni. Hann vantaði vinnu og opinberaði þannig eðli íslenskra stjórnmála. Og nokkur umræða varð um hina árlegu vísindaferð ungra sjálfstæð- ismanna á Akranesi á vef Akranes- bæjar. Vísindaferðin er einmitt í dag en vísindaferð er annað orð yfir fylleríisferð líkt og alkunna er. Frjálslyndir á Skaganum fettu fingur út í þetta og sögðu greini- legt að nú ætti að kaupa atkvæði með brennivíni líkt og tíðkast hef- ur í ungliðastarfinu. En ungir og góðglaðir sjallar á Skaganum fara sínu fram og skunda í höfuðstaðinn þar sem þeir ætla meðal annars að hitta Gísla Martein í Valhöll... • Tökum Mýr- arinnar, í leik- stjórn Baltas- ars Kormáks, lýkur um mánaðarmót- in. Hefur allt gengið sam- kvæmt áætlun en tökustaðir hafa að mestu verið á Suðurnesjum auk Reykja- víkur. Ekki verður drollað með að fullvinna myndina en fyrirhugað er að frumsýna hana í haust eða fyrir jólin. Elísabet Rónaldsdóttir kvik- myndagerðarmaður hefur feng- ið það hlutverk að klippa myndina en það verður sjálfur Mugison sem verður með tónlistina. Hann virðist nú hirðskáld Baltasars því Mugison var einnig með tónlistina við Little Trip to Heaven... • David Trads, rit- stjóri danska Fréttablaðs- ins, var hér á dögunum að kynna sér hina íslensku fyrirmynd og markað- inn hér, dró ekki fjöður yfir að útgáfan hafi mætt veruleg- um fordómum og jafnvel mótbyr í Danmörku. Sá sem lóðsaði Trads um hér á landi er enginn annar en Mikael Torfason en hann starf- ar nú sem hægri hönd Gunnars Smára Egilssonar forstjóra Dag- brúnar við að koma þessu á kopp- inn í Köben... • Tómas Tóm- asson bassa- leikari Stuð- manna sendi frá sér bók um síðustu jól: Sögur Tómasar frænda. Þar er að finna ýms- ar kúnstugar skemmtisögur úr tónlistarbransanum. Tómas er nú að safna sögum í næsta eintak en af nægu er að taka þegar uppá- tæki fjörugra ballgesta og ævintýra- gjarnra poppara eru annars veg- ar. Fyrirhugað er að bæta enn í og mun skrásetjarinn Friðrik Indriða- son leggja sitt af mörkum með sög- um úr blaðamannaheimum. Munu þær sögur svakalegri ef eitthvað er enda var blaðamannastéttin lengi sú svallsamasta... Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Sigurður Ásgrímsson, yfirmaður sprengjudeildar Gæslunnar, líta nú til danska hersins í von um að fá 50 kalibera vélbyss- ur úr vopnabúri hans og setja um borð í íslensku varðskipin. Gæslan vill danskar vélbyssur í varðskipin Sigurður Ásgrímsson Yfirmaður sprengjudeildar Gæslunnar. „Við lifum í breyttum heimi og ógnirnar eruaðrar en áður." Landhelgisgæslan stendur í viðræðum við danska herinn um að fá til afnota 50 kalibera vélbyssur til að setja upp í varðskip sín og mæta þannig nýjum ógnum sem steðja að á hafi úti. „Þetta er í athugun og í farvatninu,'' segir Sigurður Ásgrímsson, yfirmaður sprengjudeildar Landhelgisgæslunn- ar, sem eins og oft áður lítur til danska hersins þegar aðstoðar er þörf. Segir Stefán samskiptin við danska herinn alltaf hafa verið góð og verði svo von- andi í þessu tilviki. „Aðstæður í heiminum hafa breyst svo mikið og annars konar ógn steðjar að nú en áður. Til dæmis sú sem birt- ist í aðferðum hryðjuverkamanna að nota hraðskreiða báta, fyllta sprengi- efni, sem stefnt er á skotmörk. Gegn slíku duga ekki venjulegar fallbyssur eins og þær sem eru í varðskipunum í dag. Þá þurfum við vélbyssur," segir Sigurður Ásgrímsson. Fljótlegt og handhægt Vélbyssurmar sem hér um ræð- ir em 50 kalibera og settar upp á þrí- fót fyrir notkun. Segir Stefán að hug- myndin sé að geyma þær í læstum skápum um borð í varðskipunum og skella þeim svo upp þegar þarf: „Það er fljódegt og útheimtir ekki mikinn mannskap," segir hann. Breyttur heimur Einnig er til þess litið ef varðskipsmenn, með að- stoð víkingasveitar, þyrftu að fara um borð í skip á hafi úti kæmu vélbyssumnar sér vel sem ógn og til að verja menn þegar farið er á milli skipa. Eiginlega séu vélbyss- umar nauðsynlegar þegar allt sé talið og sá veruleiki sem menn búi við í dag blasi ______ við: „Við lifum í breyttum heimi og ógnirnar eru aðr- ar en áður," segir Stefán. „Við emm bara að reyna að vera við öllu búnir og þess vegna emm við að vinna í þessu." Georg Lárusson Forstjórinn vill vera við öllu búinn og sýna nauðsynlegt frumkvæði i samstarfi við danska herinn. i varðskipið Týr Hryðju- verkamenn nota hrað- skreiða báta, fyllta sprengiefni, sem stefnterá „Við erum bara að reyna að vera við öllu búnir og þess vegná erum við að vinna í þessu " Dönsk gjöf? Vélbyssumar sem hér um ræð- ir, 50 kalibera, vom mikið notaðar af bandaríska hernum í stríðinu í Afgan- istan og dugðu þar vel í eyðimörkinni. Dönsku vélbyssurnar, sem Landhelg- isgæslan heftir nú augastað á, eru í vopnabúri danska hersins sem end- urnýjar birgðir sínar reglulega líkt og allir herir sem vilja rísa undir nafni og vera ávallt viðbúnir. Má jaíhvel búast við að dönsk hermálayfirvöld gefi ís- lendingum byssurnar því þótt þær séu komnar til ára sinna myndu þær nýtast vel um borð í íslensloim varð- skipum og gera þau hæfari til að fást við þá ógn sem nú blasir við á hafi úti og brostið getur á fyrirvararlítið. „Þetta er eina vopnið sem dugar," segir Sigurður Ásgrímsson. c\ , Danskur liðþjálfi með SjÁ 50 kalibera vélbyssu - Þetta eru byssurnar sem h| Landhelgisgæslan hefur H augastaðá. Aukið eftirlit með fikniefnum og heimsóknum er á dagskránni hjá stjórnendum fangelsa. Enginn fangavörður tekinn með fíkniefni Litla Hraun Fangelsið hefur verið töluvertifréttum eftirað fram kom iHraunbúanum, blaði fanga á Litla-Hrauni, að einhverjir fangar þénuðu alltað 400 þúsund krónum á mánuði fyrir að selja dóp inni I fangelsinu. „Það hefur verið um eitt tilvik að ræða þar sem að fangavörður var sendur í launalaust frí vegna gruns um aðild að fíkiniefnainnflutningi," segir Kristján Stefánsson, forstöðu- maður Litla Iirauns. „En það kom ekkert út úr því svo það hefur enginn starfsmaður ver- ið viðriðinn fíkniefnamál á Litla Hrauni," bætir hann við. Vinsælustu fíkniefnin á Litla Hrauni eru hass, spítt og stera- töflur. Ef fangi verður uppvís að vörslu slíkra efni þá er honum refsað með því til dæmis að taka af honum sjónvarp- ið. „Þetta er að finnast hér og þar um fangels- ið. Við beitum fanga viðurlög- um við brot- um og reglum fangelsisins en það fer eftir því hvort þetta er fyrsta brot eða ítrekað brot hvað við ger- um," segir Kristján. „Fangar geta til dæmis verið sviptir aukabúnaði, svo sem sjón- varpi, tölvum og hljómtækjum. Síð- an er einnig hægt að takmarka heim- sóknir." "Það er mjög varlega farið með afleysingafólk," segir Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fang- elsismálastofnunar ríkis- ins. „Ferill er kannaður ít- arlega og reynt að vanda til vals manna alveg sérstak- lega vel. Það hefur alltaf verið gert hérna og það breytist ekk- ert." Fíkniefnin ber- ast í fangelsið með vinum, vanda- mönnum og fjölskyldu fanga en Val- týr segir fjöl- skyldumeðlimi oft undir þrýstingi. „Fanginn er að telja þeim trú um að þeir þurfi þetta lyf eða efni og stundum láta fjölskyldumeðlimir undan slíkum þrýstingi." Ein af þeim leiðum til að minnka fíkniefnanotkun í fangelsinu er að koma föngunum í meðferð. Nú er komið inn í fjárlagatillögur bygging nýs fangelsis sem mun einmitt stór- auka meðferðarúrræði fyrir fanga. „Þetta er svokallað Hólmsheið- arfangelsi og það verður meðferð- arfangelsi þar sem við getum verið með sérstakar afmarkaðar og ein- angraðar deildir. Ef allt gengur eft- ir þá getum við séð það fangelsi árið 2009,“segir Valtýr. atli@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.