Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006
Fréttir DV
Vara við dóm-
stólafrumvarpi
Á nýafstöðnum aðal-
fundi Blaðamannafélags ís-
lands var samþykkt ályktun
þar sem varað var við svo-
kölluðu dómstólafrumvarpi
Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra. Sú þróun
að upplýsingar til almenn-
ings séu takmarkaðar er að
mati fundarins varhuga-
verð. Fjórir nýir stjórnar-
menn voru kjörnir í stjórn
félagsins á fundinum. Jó-
hannes Kr. Kristjánsson af
NFS, Sigurður Már Jónsson
afViðskiptablaðinu, Þor-
valdur Örn Kristmundsson
formaður Blaðaljósmynd-
arafélagsins og ljósmyndari
á Morgunblaðinu og Þóra
Kristín Ásgeirsdóttir af NFS.
Svifryk til
vandræða
Svifryk fór tíu sinnum yfir
heilsuvemdarmörk í mars
síðastliðnum og hefur farið
fjórum sinnum yfir núna
í apríl. Hæst voru klukku-
stundargildin þann 14. apríl.
f febrúar fór svifryk fjórum
sinnum yfir heilsuvemd-
armörk og einu sinni í jan-
úar en þann mánuð var úr-
koma alla daga. Mars var
þurrviðrasamur en meira
ber á uppspændu malbiki í
frostí og rakalitlu loftí. Árið
2005 fór svifryk 21 sinni yfir
heilsuverndarmörk en hefúr
nú þegar farið 19 sinnum yfir
mörkin á þessu ári.
Enn ein svört
skýrsla
Dagblaðið Bör-
sen birti í gær út-
drátt úr enn einni
svartri skýrslu um
íslenskt efnahags-
líf, að þessu sinni
frá Danske Bank.
Greining bank-
ans segir að framundan sé
alvarlegt samdráttarskeið í
íslensku efnahagslífi, krón-
an muni halda áfram að
falla og hlutabréf að lækka
í verði. Fram kemur einnig
að þótt Seðlabankinn fari
með stýrivexti í 16% eins og
Davíð Oddsson bankastjóri
hefur boðað er ekki víst að
það dugi til.
„Það er að hlýna hér þannig
að við erum að vona að það
sé að koma vor/'segir Hjörtur
Arnason, hóteleigandi í
Borgarnesi. „Hér
ermikill
uppgangurog
mikið að gera þannig aö við
erum ánægð hér í Borgarnesi
um þessar mundir. Það er
helst að okkur vanti fólk í
vinnu."
Landssíminn
íbúar við Strandgötu og Mjósund í Hafnarfirði eru ekki ánægðir með byggingarfram-
kvæmdir sem skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á lóð Strandgötu 39.
íbúarnir eru búnir að kæra Hafnarfjarðarbæ fyrir skemmdir á húsum og lóðum. Flórent
Sæmundsson sem býr við Mjósund 1 ætlaði að setja upp heitan pott í garðinum hjá sér en
komst að því að nýbyggingin fer inn á lóð hans þar sem potturinn átti að standa.
Flórent Sæmundsson
húseigandi bendir á
staðinn þar sem heiti pott-
urinn átti að vera „Þetta eru
fáránleg vinnubrögð og
bxjaryfirvöldum er aiveg
sama."
Húsið hans Flórentsog
heiti potturinn sést til
hægri við húsiðá
myndinni sést hvernig búið
er að eyöileggja lóð Flórens
Krist-
ján segir
að þeg-
ar unnið
er sam-
Á laugardagsmorgni, þann 8. apríl, hóíust framkvæmdir við nið-
urrif byggingar á lóð Strandgötu 39 og byggingu nýbyggingar.
íbúar í nágrenninu urðu þess varir á óskemmtilegan hátt því heill
bflskúrsveggur var eyðilagður, girðingar lóða brotnar, loftnets-
staur brotinn og snúrur í sundur, sprungur á íbúðum komu ffam
og rabbarbaragarður eyðilagður. Nágrannarnir vissu um fram-
kvæmdirnar en óraði ekki fyrir hversu mikil eyðilegging yrði í
kjölfar þeirra.
framkvæmdimar væru að hefjast og
nágrannarnir hérna eru mjög reið-
ir út í bæjaryfirvöld enda erum við
búin að kæra Hafnarfjarðarbæ fyr-
ir þessi hræðilegu vinnubrögð og
þær skemmdir sem þau hafa vald-
ið," segir Flórent. Hann segir að allt
sem snúi að þessum ffamkvæmdum
sé fáránlegt og ekki eðlilega að hlut-
unum staðið.
„Mér finnst ansi dapurlegt hvern-
ig staðið er að þessum framkvæmd-
um," segir Flórent Sæmundsson,
húseigandi í Mjósundi 1, sem lentí
í því að garðurinn hans var að hluta
til eyðilagður, grindverk brotíð, sjón-
varpsloftnetsstaur einnig og rabbar-
baragarðurinn hans eyðilagður. „Ég
er búinn að kaupa mér heitan pott tíl
að setja upp í garðinum en það verð-
ur eklci hægt því þeir ætla að byggja á
hluta lóðar minnar þar sem pottur-
inn átti að standa," segir Flórent.
Hræðileg vinnubrögð
„Ég held að byggingafulltrúi
Hafnarfjarðar yrði ekki ánægður ef
ég myndi mæta á lóðina við hús-
ið hans og rústa henni eins og gert
var við mína lóð," segir Flórent Sæ-
mundsson sem á laugardagsmorgni
lenti í því að vinnuvélar mættu til
vinnu við niðurrif á húsinu við hlið-
ina á hans og eyðilögðu lóðina hans.
„Okkur var ekki tilkynnt um að
Bílskúr eigenda Strandgötu
37 Svona leit bllskúrinn út þegar
búið var að rífa húsið í burtu.
Mannleg mistök
„Þetta eru mannleg mistök sem
voru gerð við hönnun og yfirferð
gagna," segir Kristján Þórarinsson
byggingafulltrúi Hafnafjarðar. „Þetta
verður allt skoðað og metið en það
kemur oft sitthvað í Ijós þegar vegg-
ur er rifinn frá öðrum vegg og hugs-
anlega voru sprungur þar fyrir," segir
Kristján. Hann segir að þessar ffarn-
kvæmdir hafi verið í deiliskipulagi
og fýrir allnokkru var allt miðbæjar-
skipulag Hafnarfjarðar kynnt fyrir al-
menningi.
kvæmt gildandi deiliskipu-
lagi sé nágrönnum ekki til-
kynnt sérstaklega þegar
framkvæmdir hefjast en all-
ar upplýsingar varðandi
samþykki og framkvæmdir
Hafnarfjarðarbæjar liggi fyr-
ir á netinu. „Þetta mál verð-
ur tekið fyrir á
fundi og vænt-
anlega verða
leiðrétt mistök
í hönnun og
yfirferð gagna
vegna skekkjunnar upp á
0,75 fermetra," segir Kristján.
Hann segir að vegna þessar-
ar skekkju hafi verið gert ráð
fyrir meira plássi á lóð ná-
grannans en það muni allt
verða leiðrétt.
Unglingur á gröfunni
Samkvæmt íbúa í næsta húsi við
framkvæmdirnar við Strandgötu
39 var það mjög ungur maður sem
stjórnaði gröfúnni sem húsið var rif-
ið niður með og telur hann að líklega
hafi ungi maðurinn ekki haft mikla
reynslu við að vinna svona verk því
-
Veröndin á Strandgötu 37
Handriöið varrifíð i burtu með
gröfunni og eftir standa rústirnar.
hann hafi rifið burt vegg á bílskúr,
handrið á verönd, girðingu lóðar,
bortið loftnetsstaur, eyðilagt þvotta-
snúrustaura og tætt upp garð ná-
grannans. jakobina@dv.is
Mikið að gera á Ferðalangi á heimaslóð
Um 500 börn fóru á hestbak
Ferðahátíðin Ferðalangur á
heimaslóð var mjög vel sótt sumar-
daginn fyrsta en þetta er í þriðja sinn
sem aðilar í ferðaþjónustu bjóða al-
menningi að taka þátt í fjölbreyttri af-
þreyingu ferðaþjónustunnar á þess-
um degi. Samkvæmt upplýsingum
frá Dóru Magnúsdóttur, markaðs-
stjóra ferðamála, var mikil þátttaka
í helstu dagskrárliðum Ferðalangs.
Til dæmis notuðu um 500 börn tæki-
færið til að skella sér á hestbak.
Sjö aukaferðir í Siglingu um
sundin var ýtt úr vör við Reykjavík-
urhöfn og dð sögn Dóru er ljóst að
mikJll áhugi er á siglingum og síð-
degis í gær var líf og fjör við höfn-
ina.
Starfsfólk íshesta hefur aldrei séð
annað eins og telur að teymt hafi
verið undir 500 börnum auk mik-
illar þátttöku í hefðbundna reiðtúra
og aðra dagskrárliði í Hafnarfirði.
Um það bil 250 manns hafa tekið
þátt í Skemmtiferðum á heimaslóð
með hópbílafýrirtækjum út fyr-
ir jaðar höfuðborgarsvæðisins. Að
auki var uppselt í útsýnisflug yfir
höfuðborgarsvæðið með Flugfélagi
íslands, afbragðs góð þátttaka hef-
ur verið í gönguferðum og hlaupum
sem eru á dagskráliðnum Hraustur
ferðalangur, mikið um heimsókn
á ýmis söfn á höfuðborgarsvæðinu
öllu og Símaleikur Ferðalangs hefur
að sama skapi vakið athygli á ýms-
um styttum og byggingum í miðbæ
Reykjavíkur.
Markmið Ferðalangs á heima-
slóð er að hvetja almenning til að
kynnast fjölbreyttni ferðaþjón-
ustunnar á heimaslóð og skoða
umhverfi sitt með augum ferða-
mannsins. Allir dagskrárliðir Ferða-
langsins voru með verulegum af-
slætti eða ókeypis.