Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Side 16
16 FÖSTUDAGUR21. APRÍL 2006
Sport DV
Gunnarog
félagar
töpuðu
Fyrir skömmu höfnuðu íslenskir eigendur enska knattspyrnufélagsins Stoke City til-
boði í þeirra hlut í félaginu sem hljóðaði upp á 560 milljónir króna. Talsvert meira þarf
til þannig að „Stoke-ævintýrið“ svokallaða komi út réttum megin við núllið.
Gunnar Heiðar Þor-
valdsson og félagar í Halm-
stad töpuðu í gær íyrir
Elfsborg á heimavelli
í sænsku úrvalsdeild-
inni en tveir leik-
ir fóru fram í gær í
keppninni. Gunn-
ar Heiðar spil-
aði allan leikinn
fyrir Halmstad en
hann er sem kunn-
ugt er búinn að semja
við þýska liðið Hann-
over 96 og heldur þang-
að í sumar. í hinum leik
kvöldsins vann Djurgárden
lið Kalmar á útivelli, 1-0,
en hvorki Sölvi Geir Otte-
sen né Kári Árnason voru
með sænska meistaraliðinu
vegna meiðsla. Þá komust
Islendingaliðin Hammarby
og Malmö áfram í sænsku
bikarkeppninni í gærkvöld.
Boro slapp vel
Middlesbrough komst
ágætlega frá fyrri viður-
eign sinni gegn Steueu frá
Búkarest í undanúrslitum
Evrópukeppni félagsliða í
gærkvöld en leikurinn fór
fram í Rúmeníu. Nicolae
Dida skoraði eina mark
leiksins á 30. mínútu fyrir
heimamenn en þeir ensku
geta þakkað markverði sín-
um, Mark Schwarzer, að
ekki fór verr. Schalke og
Sevilla gerðu markalaust
jafntefli í hinum undanúr-
slitaleiknum sem fór fram í
Þýskalandi.
Fram vann KR
Lokaumferðin í 1. og 2.
riðli í deildarbikarkeppni
karla, A-
deild, fór
fram í gær.
Fram vann
3-2 sigur á
KR en hvor-
ugt liðið átti
þó mögu-
leika á sæti í
undanúrslitunum. Þar mun
FH mæta Þór en íslands-
meistararnir unnu í gær ör-
uggan sigur á Fjölni, 5-2, á
meðan Þór vann góðan 1-0
sigur á Víkingi R. í hinum
undanúrslitunum mæt-
ir Keflavík liði ÍBV en síð-
arnefnda liðið vann í gær
Þrótt R., 1-0, en Keflavík
gerði 1-1 jafntefli við ÍA.
„Allt er til sölu ef rétt er boðiðsagði Magnús Kristinsson í sam-
tali við DV sport í gær. Meira vildi hann ekki tjá sig um málefni
Stoke City en Magnús er aðaleigandi Stoke Holding, eignarfélags
Stoke City. Nýlega barst félaginu tilboð frá Bretanum Peter Coat-
es sem var hafnað. Hljómaði það upp á fjórar milljónir punda en
Gunnar Þór segir að Stoke Hofding þurfí tíu milljónir punda, 1,4
milljarða króna, til að koma út á sléttu.
Sj ö ár eru liðin síðan Stoke Hold -
ing bauð Peter Coates 3,5 milljónir
punda í sinn hlut í Stoke City. Sá
hlutur er 66% og fyrir stuttu síð-
an barst tilboð frá Coates upp á 4
milljónir punda fyrir sinn gamla
hlut.
Stoke Holding hefur hins vegar
gegn útgáfu skuldabréfa lánað fé-
laginu rúmar fimm miljónir punda
og hefur hlutur þess batnað mikið
síðan þá. Skuldir Stoke City við ut-
anaðkomandi aðila hefur minnk-
að úr þremur milljónum í tæplega
eina og þriggja milljóna punda
skuld félagsins sem byggði Brittan-
ia-leikvanginn er nú að fullu greidd
en Stoke City á helmingshlut í því
félagi.
„Efmenn fá ekki ásætt-
anlegt verð halda
menn bara áfram og
reyna þá annaðhvort
að klára verkefnið eða
bíða þess að einhver
annarsé tilbúinn að
borga betra verð."
Vill afskrifa skuldirnar
Peter Coates vill hins vegar
að Stoke Holding afskrifi skuldir
Stoke City gegn því að kaupa hluta-
fé Islendinganna á fjórar milljón-
Glæsilegur leikvangur Brittania-
leikvangurinn er stórglæsilegt mannvirki og
heimavöllur Stoke City. Nordic Photos/Getty
ir punda. Því var hafnað og seg-
ir Gunnar Þór Gíslason að það sé
stórt bil á milli tilboðsins og þeirr-
ar upphæðar sem Stoke Holding
þurfi til að koma út á sléttu. „Það
þyrfti sennilega að fá tíu milljónir
punda til að standa nokkurn veg-
inn á sléttu. Ég tel það ekki ásætt-
anle'gt að afskrifa svo miklar skuld-
ir. Það deilir enginn um að staða
félagsins hefur batnað mikið á
undanförnum árum, bæði erum
við með miklu betri og verðmætari
leikmannahóp og vitanlega einni
deild ofar."
Sjálfsögð kurteisi
Eins og Magnús benti á er fé-
lagið til sölu fyrir rétta upphæð en
Gunnar bætir við að félagið hafi
ekki leitað tilboða. „Þessi aðili hef-
ur í tvígang sýnt áhuga á að kaupa
félagið og er það sjálfsagt mál að
athuga hvað hann hefur fram að
færa. Það er sjálfsögð kurteisi."
Og hann segir aðspurður að það
sé vilji til að halda áfram að reka fé-
lagið. „Ef menn fá ekki ásættanlegt
verð halda menn bara áfram og
reyna þá annaðhvort að klára verk-
efnið eða bíða þess að einhver ann-
ar sé tilbúinn að borga betra verð.“
eirikurst@dv.is
NIOTTU LIFSiNS
með HFILBRIGÐUM
LIFSSTIL
Carl Dickinson og Keith Tomas spila með Víkingum í sumar
Tveir leikmenn Stoke til Víkings
Enska 1. deildarliðið Stoke City,
sem er í eigu íslendinga, hefur kom-
ist að samkomulagi við Landsbanka-
deildarlið Víkings um að tveir af
yngri leikmönnum félagsins spili
hér á landi í sumar. Um er að ræða
varnarmanninn Carl Dickinson og
framherjann Keith Thomas en báðir
hafa þeir undanfarið átt við meiðsli
að stríða. Dickinson hefur þó spil-
að nokkra leiki með aðal-
liði Stoke í vetur en báðir
verða þeir hjá Vfkingum
út júnímánuð.
Johan Boskamp,
knattspymustjóri Stoke
City, sagði í samtali við
heimasíðu félags-
ins að vistin hjá
Magnús Gylfason
Þjálfari Víkingasem fær
góðan liSstyrk I sumar.
DV-mynd Vilhelm
Víkingum verði
kærkomin fyrir
þá félaga. „Báð-
ir voru þeir frá í hálft ár í vetur vegna
fótbrota og þeir þurfa frekar að spila
nú í sumar en að taka sér enn meiri
hvíld. Ég bind því vonir við að þeir
afli sér góðrar reynslu á Islandi og
komi sterkir inn í undirbúningstíma-
bilið."
Gunnar Þór Gíslason, stjórnar-
formaður Stoke City, staðfesti þetta
í samtali við DV sport í gær og sagði
að hann vildi að þeir félagar kæmu
aftur til Stoke í byrjun júní til að taka
þátt í undirbúningstímabili Iiðsins af
fullum krafti. Nú þegar hefur verið
ákveðið að félagið fafi í æfingaferð til
Hollands og Belgíu í sumar.
Dickinson er vinstri bakvörður
sem hefur spilað nokkra leiki með
aðalliði Stoke að undan-
förnu og staðið-sig vel.
Keith Tliomas hefur vakið
verðskuldaða athygli í vet-
ur bæði með unglinga- og varaliði
félagsins en báðir eru þeir nítján ára
gamlir.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
ungmenni frá Stoke City hafa verið
lánaðir til íslenskra liða. Fyrir tveim-
ur árum komu þeir Richard Keogh
og Jermaine Pal-
mer til landsins
og léku með . ,
Víkingum og Jft
sumarið 2001
komu þeir 'S
Lewis Neal og
Marc Good-
fellow til ÍBV.
eirikurst@dv.is
johan Boskamp Knattspyrnu■
stióri Stoke vonar að tvímenning-
arnir hafi gott af fslarídsdvölmni.
Nordic Photos/Getty