Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2006, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006
Menning
Kundera um
skáldsöguna
JPV-útgáfa hefur sent frá sér
Tjöldin - ritgerð í sjö hlutum efdr
Milan Kundera, í þýðingu Friðriks
Rafnssonar.
í þessu
ritgerðasafhi, |
sem kom út
íParísífyrra,
fjallar Milan
Kundera um^i ■
evrópsku
skáld-
HÉg finn mér stól, kveiki mér í sígarettu,
tek langan djúpan sniók og horfi á menn-
ina sem sitja allt í kringum mig. Þeir eru
svartir, hvítir, gulir og brúnir. Þeir eru
stutthærðir og síðhærðir, með alskegg
og yfirvaraskegg. Þeir eru feitir og mjóir,
snyrtilega klæddir og illa klæddir. Þeir eru
harðir, lifaðir, útjaskaðir og örvæntingar-
fullir. Ógnandi, ruddalegir og geggjaðir
fíklar. Allir ólíkir og allir eins. Og þar sem
ég sit og reyki mína sígarettu hræðist ég þá
meira en orð fá lýst.
(James Frey, Mölbrotinn.)
' >"
/
,Maðurinn sem blekkti Opruh,“ hefur rithöfundurinn James Frey verið kallaður 1
Bandaríkjunum. Frey skrifaði bókina A Million Little Pieces um krakkfíkn sína og
meðferð á Hazeldan i Minnesota - grófa bók, fulla af ælu, ofbeldi og viðbjóði, en Oprah
Winfrey heillaðist óskaplega af henni og mælti með henni í bókaklúbbi sínum.
Milan Kundera Aðdáendur
hans fá hér sitthvað fyrirsinn
snúð; ritgerð I sjö hlutum.
söguna,
allt frá ís-
lendinga-
sögum
til sam-
tímahöfunda, og tengsl hennar
við skáldsagnahefð annars staðar,
svo sem í Suður-Ameríku og Jap-
an. Kundera leggur áherslu á að
skáldsagan sé sérstök listgrein,
ákveðið form þekkingarleitar sem
á að baki merka sögu, en býr líka
yfir ákveðnum sérkennum þar sem
kímni og húmor eru meðal lykil-
atriða.
Hann bendir á að skáldsagan
sé manninum mikilvæg til þess að
skilja flókinn nútímaheiminn, sjá í
gegnum „tjöld fyrirframtúlkunar-
innar," vita hvaðan hann kemur, í
hvaða samhengi hann lifir og hvert
stefhir.
Sigurjón vill gera
mynd um
Hólafeðga
Sigurjón Siglivatsson, nýbakað-
ur menningarverðlaunahafi DV f
kvikmyndalist, hefur staðið í samn-
ingaviðræðum við JPV-útgáfu og í
kjölfarið tryggt sér kvikmyndarétt á
Oxinni og jörðinni eftir Ólaf Gunn-
arsson.
„öxin og jörðin geyma þá best,"
eru orð sem réðu í senn örlögum
Hólafeðga og íslensku þjóðarinnar
á sextándu öld. Einn kaldan nóv-
embermorgun var Jón Arason
biskup hálshöggvinn ásamt son-
um sínum tveimur, Bimi og Ara.
Með þessu grimmdarlega ofbeld-
isverki hvarf öll mótspyma gegn
hinum nýja lúterska sið og danska
konungsvaldinu á fslandi.
öxin og jörðin er söguleg skáld-
saga um trú og efa, sjálfstæði og
kúgun þar sem fjöldi einstaklinga
stígur ljóslifandi fram úr þoku for-
tíðar. Ljós og skuggar koma fram á
þeirri mynd sem lifað hefur með
þjóðinni um píslarvættisdauða
Jóns biskups Arasonar.
öxin og jörðin kom fyrst út hjá
JPV árið 2003, fékk góðar viðtökur
og varð ein af metsölubókum árs-
ins. Húnhlautbæði
Bóksalaverðlaun-
in og íslensku
bókmennta-
verðlaunin. Það
verður gaman
að vita hvort
heimsbyggðin
sýnir kvikmynd-
innijafhmik-
inn áhuga og
íslendingar
bók-
Eins og með allar bækur sem
Oprah mælir með, þá jókst sala henn-
ar til muna og Frey velti sér uppúr
auðæfunum, enda líta margir Banda-
ríkjamenn á Opruh sem helstu fyrir-
mynd sína í lífinu.
Það fóru þó að renna á menn
tvær grímur þegar ýmsir rannsóknar-
blaðamenn byrjuðu að rýna í fortíð
Freys og komust að því að bókin, sem
sat á toppi sölulista svokallaðra Non-
fiction-bóka - sannsögulegra bóka -
reyndist alls ekki alveg sönn. Oprah
var skömmuð og Frey var úthrópað-
ur lygari og hann látinn éta ofan í
sig ýmislegt hvort sem
honum líkaði það bet-
ur eða verr. Meiraðsegja
voru skrifaðar bækur
gegn honum og gert grín
að honum í South Park-
teiknimyndaþáttunum!
Nú hefur bókaútgáfan
Sögur gefið bók Freys út
í íslenskri þýðingu fvars
Bjarklind, undir heit-
inu Mölbrotinn.
woarottM i
Mölbrotinn
Bók James Frey.
Ælt og skitið blóði
Bókin íjallar um Frey,
sem núna er 36 ára, og er
sögð í sjálfsævisögulegum
stíl. Þetta er höfundur sem hlífir ekki
sjálfum sér, heldur segir frá mesta
niðurlægingartímabili lífs síns. Þegar
hann ældi og skeit blóði á hverjum
degi. Þegar hann sveik og meiddi
afla sem komu nálægt honum. Þegar
hann var alkóhólisti, fíkill og glæpa-
maður.
Slíkar bókmenntir höfum við flest
Mölbrotinn
EftirJames Frey i þýðingu ívars
Bjarklind. Bókaútgáfan Sögur
2006.
Bókmenntir
lesið áður. Ég minni á Samhjálpar-
bækumar (sem iðulega vom aðeins
lesnar til hálfs, vegna þess að þær
urðu svo leiðinlegar um miðbikið,
þegar fíklarnir frelsuðust) auk fleiri
bóka á borð við Dýra-
garðsböm Kristjönu F.
Ekkert mál, eftir feðg-
ana Njarðvík, Drykkju
Ástarsögu, eftir Caro-
line Knapp og Lygasögu
Lindu Viihjálmsdóttur,
sem allar greina á ein-
lægan hátt frá baráttu
við alkóhólisma.
Frey gengur inn í
hefðina og segir fjálg-
lega frá skömm-
inni og niðurlæging-
unni, sjálfshatrinu og
* ógeðinu sem fylgir
ofneyslu áfengis og
eiturlyfja - og hann leyfir lesandanum
að fylgjast með því þegar hann kemur
smám saman aftur til sjálfs sín í með-
ferðinni á Hazeldan.
Hrossalækningar
Það sem er óvenjulegt við bókina
Mölbrotinn er að James Frey hafnar
hvers kyns guðstrú - og hann hafnar
AA-samtökunum eins og þau leggja
! Frey hjá Opruh
I Spjallþáttadrottningin
féll alveg fyrir Frey, en
I lenti fyrir vikið I
bölvuðu veseni.
sig. Hann vill ekki standa í pontu
og segja frá því sem hann hefur gert
af sér og hann viU ekki tileinka sér
tólfsporakerfið.
Þar vakna spumingar hjá lesanda,
vegna þess að Frey býður enga lausn í
staðinn. Að vísu kemur fram að hann
tileinkar sér óljósan taóisma, sem
hann eyðir þó ekki miklu púðri í að
útskýra. Má segja að Frey haldi sjálfur
alkóhólismanum í skefjum og noti
til þess hálfgerðar hrossalækningar,
vegna þess að hann tekur ekki leið-
sögn í meðferðinni. Eitt af því sem
hann gerir eftir sex vikna meðferð er
að fara rakleiðis á bar og bera fúllt
glas af áfengi upp að nefinu, en segja
við sjálfan sig eitthvað á þessa leið:
„Ég drekk þetta ekki! Nú er ég hættur,"
og ganga síðan út.
Ég hugsa að margir alkar í ævi-
langri glímu við sjúkdóminn yrðu
ansi fegnir ef þetta virkaði.
Gjaldgeng alkabók
Mölbrotinn er spennandi og ógn-
vænleg bók. Hún irígheldurj eins og
sagt er, en mér þótti hún aðeins oflöng
og eiginlega vekja fleiri spumingar en
hún svarar. Þýðing fvars Bjarklind er
vel gerð og fátt um hnökra. Honum
tekst ágætlega upp í því að ná hinum
sérkennilega stíl höfundarins, sem er
bæði tær og endurtekningasamur.
Mér er nokk sama um það hvort
James Frey hefur setíð inni í þrjá mán-
uði eða eitthvað skemur. Nokk sama
hvort lestarslysið sem hann sagð-
ist hafa átt aðild að var bara feik eða
ekki. Mér er eiginlega nokk sama.
Bókin Mölbrotinn fjallar um alkó-
hólisma og er fyllilega gjaldgeng sem
slík. Hún segir frá því stjórnleysi og
ótta sem alkóhólistar standa frammi
fyrir - og hún segir frá því hvernig
einn af þeim náði að vinna upp úr
skítnum. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Uppreisnin á barnaheimilinu var lesin í útvarp fyrir um þrjátíu árum og þótti á mörg-
um bæjum svívirðilegur kommúnistaáróður. Nú kemur sagan út á hljóðbók hjá Dimmu
og lika Fíasól í hosíló eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur.
Súrmjólkurstríð og ormar í rass
Sigurjón Sighvatsson Er
aðdáandi bókarinnar Öxin
og jörðin og ætiar núað
gera kvikmynd eftir henni.
Dimma ehf. hefur gefið út á
hljóðbók söguna Fíasól í hosíló, eft-
ir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, í
lestri höfundar, en prentuð útgáfa
verksins seldist vel fyrir síðustu jól
og hlaut Bókaverðlaun barnanna í
gær.
Gleðisprengjan Fíasól kann best
við sig heima í hosfló. Hún býr í
hræðilega herberginu í Græna-
lundi og ásamt vinum sínum lend-
ir hún nær daglega í einhverjum
ævintýrum. Hér koma við sögu orm-
ar í rassi, ógnarlangt verkfall, jóla-
bjáni og Jón finka, svo eitthvað sé
nefnt. Bókin er sjálfstætt framhald
Bjbókarinnar Fíasól í fínum málum.
........mmssmm
Vandfundið óskemmt eintak
Einnig er komin út á hljóðbók
Uppreisnin á barnaheimilinu, eftir
Dr. Gormander í þýðingu og flutn-
ingi Olgu Guðrúnar Árnadóttur. f
sögunni segir frá barnaheimilinu
Kanónunni þar sem börnin fá aldrei
að gera það sem þau sjálf vilja. Þess
vegna gera þau uppreisn og taka
völdin eftir grimmilegt grautar- og
súrmjólkurstríð.
Uppreisnin á barnaheimilinu var
fyrst flutt í Ríkisútvarpinu fyrir rúm-
um þremur áratugum og vakti þá
óhemju athygli og umtal. Skömmu
síðar var hún gefin út á prenti en
nú er vandfundið óskemmt ein-
tak af henni. Segja
má að Olga Guðrún
hafi orðið þjóðkunn
af flumingi sögunn-
ar, en hún hefur auk
þess sent frá sér sér
frumsamin skáldverk,
ljóð og tónlist. Höf-
undur sögunnar heit-
ir réttu nafni Gunn-
ar Ohrlander og hefur
skrifað fjölda bóka und-
ir höfundarheitinu Dr.
Gormander auk þess að |
fjalla um menningarmál
á síðum dagblaðsins Aft-
onbladet.
DV Menning
FÖSTUDAGUR 21. APRlL 2006 21
Mr. Bean Breski leikarinn Rowan Atkinson
hefurskapað þennan þögla en bráðfyndna
karakter og nú er von á mynd númer tvö.
Önnur mynd
um Mr. Bean
Röwan Atkinson ætlar að vera
í Cannes um miðjan maí. Þar
verður hann við tökur á annarri
kvikmyndinni um Mr. Bean, þann
bráðfyndna karakter, sem hann
skapaði ásamt Richard Curtis.
Áfram halda þeir samvinnunni, en
fá í lið með sér leikstjórann Steve
Bendelack.
Atkinson, í hlutverki hms þögla
ólíkindatóls, Mr. Bean, sló í gegn
í vinsælum sjónvarpsþáttum sem
hófu göngu sína í Bretlandi árið
1990 en voru síðan sýndir í yfir
200 löndum. Kvikmynd í fullri
lengd sem kölluð var Bean: The
Ultímate Disaster Movie, var gerð
árið 1997 og var leikstýrt af Mel
Smith. Skiptar skoðanir voru um
ágæti myndarinnar, mörgum að-
dáendum sjónvarpsþáttanna þótti
hún ekki komast í hálfkvisti við þá,
en sumir voru þokkalega hrifnir.
Þá er að vita hvort sólin í Cann-
es megnar að kynda undir nýja
verkefninu, því að á góðum degi
er Bean skelfilega fyndinn.
,Fókusinn er á þeirri tilhneigingu okkar íslendinga að detta samstundis í hug að ein-
hverjar verur eða vættir hafi valdið grjóthruni og skriðum,“ segir Steingrímur
Eyfjörð myndlistarmaður sem opnar sýninguna, Bein í skriðu, í Gallerí 101 í dag.
Teiknar sémlensk viðbrönð
Steingrímur segir að hann hafi
verið í sveit í sjö sumur og þar hafi
þessi trú verið landlæg. „Eitt sinn fór
snjóflóð yfir fjárhúsin og enginn var
í minnsta vafa um að það hefði ver-
ið dvergurinn sem bjó í fjallinu sem
kom því af stað. Ég fór svo að hugsa
um allt þetta drama þegar ég sá frétt
í blaði í fyrra um að grjóthrun hefði
orðið í Þvottárskriðum. Þannig fékk
ég hugmyndina að sýningunni."
Að teikna viðbrögð
Á sýningunni eru hundrað teikn-
ingar sem Steingrímur vann á síðasta
ári, en auk teikninganna sýnir hann
vegaskilti sem vara við grjótkasti og
skúlptúra sem eru hugsaðir sem fjöl-
feldi af myndunum. Þá hefur hann
unnið úr áli og spreyjað rauða.
„Myndimar eru af tröllum og öðr-
um verum sem flestar eru með grjót.
Þetta eru myndir af viðbrögðum sem
margir kannast við, vegna þess að
þegar við erum úti í náttúrunni og
það kemur grjót niður hh'ðina erum
við svo fljót að láta okkur detta í hug
að það sé tröllið í fjallinu sem ýttí við
því. Þó að maður trúi ekki á nein-
ar verur sem ekki sjást þá grípur til-
finningin mann í örskotsstund. Flest-
ir geta sagt af slflcum viðbrögðum. Ég
hef teiknað þau."
Steingrímur Eyfjörð
! myndlistarmaður Seg/> að
tilfínningamarséualvegjafn
| mikilvægarog tungumálið.
DV-mynd: Heiða. I
Tileinkuð Ásmundi
„Ég vildi líka taka mið af vinnu
kollega minna um aldamótín 1900,"
segir Steingrímur. „Þegar Ásgrímur
Jónsson fór að gera myndir af tröllum
og ýmsum vættum. Sýningin er til-
einkuð honum og þessum element-
um íþjóðarsálinni."
Steingrímur segir að við fslend-
ingar ættum að leggja rækt við vætta-
trúna og passa að hún glatíst ekki.
„Tilfinningar okkar sem fslend-
inga eru alveg jafn mikilvægar og
tungumálið og menningin. Mér
finnst eiginlega að það ætti að friða
tilfinningar, alveg eins og landsvæði.
Efvið missum séríslenska sýn okkar á
heiminn, þá er þetta búið."
Gallerí 101 er til húsa að Hverfis-
götu 18a og er opið fimmrndaga til
laugardaga milli kl 14-17 eða eftír
samkomulagi. Sýning Steingríms
stendur til 3. júní 2006.
FERMINGARLEIKUR
RÚMG0TT
Þrjú heppin fermingarbörn sem fá nýtt
rúm frá Rúmgott í mars og apríl, fá andvirði I
rúmsins í fermingargjöf frá Rúmgott.
Dregið verður 5. maí.
C0MF0RTLATEX
120x200 verð 43.110
140x200 verð 52.110
160x200 verð 59.900
NEVERTURN
90x200 verð 35.910
100x200 verð 37.710
110x200 verð 41.310
120x200 verð 44.910
130x200 verð 51.210
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 - taugardaga kl. 11-16
- '
máTraFlex Rafmagnsrúm
www.rumgott.is