Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2006, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRlL 2006
Fréttir DV
Jakob Bjarnar Grétarsson
• Egill Helgason
bauð upp á athyglis-
vert viðtal í Silfrinu
við )ón Sigurðsson
á sunnudag. Þórir
Guðmundsson gerði
Jón reyndar í frétt
NFS sem hann sauð
upp úr viðtalinu að seðlabanka-
stjóra en lón er fyrrverandi Seðla-
bankastjóri og aðalbankastjóri Nor-
ræna ijárfestingarbankans. Ræddi
Jón efnahagsmálin af nokkurri
íþrótt. Þeir sem rýna sem lengst og
mest í hin pólitísku spil þóttust sjá í
máli Jóns enduróm þess sem Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir hefur haft
til málanna að leggja í þeim efnum.
Og vildu þannig kenna helsta ráð-
gjafa hennar í efnahagsmálum...
• Örn Árnason hef-
ur fylgt mörgum kyn-
slóðunum úr grasi
sem Aíi gamli á Stöð
2. Nú hins vegar
heyrir DV að vegna
fyrirhugaðra dag-
skrárbreytinga hafi
Afa gamla verið sagt upp störfum. Er
þetta ef til viil tímanna tákn - tákn-
gervingur gráa hersins settur út í
horn. Aðstandendum Afa mun þykja
þetta fremur súrt í broti, ekki síst
vegna þess að skammt er í tuttugu
ára starfsafmæli Afa gamla...
• Maður helgarinn-
ar er tvímælalaust
Ásgeir Hannes
Eiríksson fyrrver-
andi alþingismaður
og nú vert á kránni
Blásteini. Skoðana-
könnun sem hann
lét framkvæma leiðir í ljós að þrjá-
tíu prósent þjóðarinnar vilja setja
skorður við straumi innflytjenda
til landsins. Margir málsmetandi
menn vilja sópa könnun vertsins
undir teppið en á móti kemur svo að
straumur á Blástein hefur stórlega
aukist. Og þar vilja menn ræða mál-
in og skrá sig í „flokkinn"...
• Nana, sem vakti
mikla athygli í Idol-
inu fyrir frískiega
framgöngu, hefur
ekki farið í grafgöt-
ur með það að hún
hyggst reyna fyrir
sér á hinni þyrnum-
stráðu frægðarbraut. Og lætur verk-
in tala því Nana hefur nú stofnað
hljómsveit sem heitir að sjálfsögðu
The Nanas. Eru liðsmenn sveitar-
innar úr Brúðarbandinu en hins
vegar vantar Nönu hljómborðs- og
gítarleikara. Á fimmtudaginn renn-
ur út sá tími sem samningurinn við
Idol, sá sem kveður á um þögn þátt-
takenda, út og þá mega landsmenn
búast við því að heyra nánar af þess-
um áformum öllum...
• Auglýsinga-
mennska flokk-
anna er þegar orðin
ærin og á eftir að
aukast enn. Svo virð-
ist sem auglýsinga-
og spunameistar-
ar, Eggert Skúlason
og fleiri, leggi minna en lítið upp
úr arfleifðinni samanber hið fræga
exbé en ekki Kjósið Framsóknar-
flokkinn! Og þá fannst ýmsum eins
og Kvennalistinn sálugi væri geng-
inn aftur þegar opnuauglýsing í
Fréttablaðinu frá Sjálfstæðisflokkn-
um birtist - í bleiku! Auglýsingastof-
an sem annast málefni sjálfstæðis-
manna hefur verið til langs tíma
íslenska auglýsingastofan en Sam-
fýlkingin treystir á Hér & nú til að
koma sér á framfæri...
Jónatan Helgi Rafnsson er 18 ára íslendingur sem slasaðist lífshættulega þegar hann
féll niður 10 metra af hóteli á Ensku ströndinni á eyjunni Gran Canaria á Kanaríeyjum.
Jónatan er haldið sofandi á gjörgæsludeild ríkisspítalans Hospital Insular í Las Palmas
og er líðan hans í dag stöðug en hann hefur ekki vaknað til meðvitundar síðan slysið átti
sér stað í byrjun apríl.
Haverk að lifa lallið af
Foreldrar Jónatans, Rafh Pálsson og Brynhildur Brynjúlfsdóttir,
eru í Las Palmas og dvelja hjá honum á gjörgæslunni eins mikið
og spítalayfirvöld leyfa til að styðja hann í baráttunni um að halda
lífi. Þau halda úti bloggsíðu um líðan hans og fjöldi þeirra sem
heimsótt hafa síðuna til að veita fjölskyldunni stuðning og styrk í
þessum miklu hremmingum er orðinn tæp 37 þúsund.
Jónatan Helgi var í fríi á Kanarí-
eyjum á vegum ferðaskrifstofunn-
ar Appolo ásamt kærustu sinni
þegar slysið átti sér stað. Sam-
kvæmt heimildum DV voru engir
sjónarvottar að tildrögum slyss-
ins en Jónatan féll niður af fjórðu
hæð íbúðarhótelsins Los Salm-
ones og er talið að fallið hafi verið
um 10 metrar. Jónatan margbrotn-
aði á höfuðkúpu, fékk blæðingar
inn á heila, lærbrotnaði, brotnaði
á brjóstkassa og samkvæmt heim-
ildum DV frá fólki sem til þekkir er
það kraftaverk að hann skuli hafa
lifað fallið af.
Kældur niður
Jónatan var fluttur á ríkisspítal-
ann Hospital Insular í Las Palmas
á gjörgæslu og þar er honum hald-
ið sofandi til að hann geti náð sér
af slæmri lungnabólgu sem hann
fékk í kjölfar höfuðáverkanna.
Móðir Jónatans, Brynhildur Brynj-
úlfsdóttir, tjáði DV að líðan hans
væri stöðug en hann var kældur
niður til að hægja sem mest á lík-
amsstarfseminni því honum var
vart hugað líf þegar hann kom á
spítalann. Líðan Jónatans er betri
núna en hún var í síðustu viku en
hann er enn í lífshættu. Lækn-
Foreídrar Jónatcms hafa
opnað bankareikning
til að safna fyrirþeim
gífurlega kostnaðisem
fylgir því að vera
hjásynisín-
um. Reiknings-
númerið er
1135-05-
802200,
kt. 100160-
ar hafa nokkrum sinnum reynt að
vekja Jónatan en án árangurs og
eina lífsmarkið að hann hafði að-
eins hreyft vinstri hönd.
Mikið áfall
Á bloggsíðu foreldra Jónatans,
blog.central.is/jonatan_helgi,
segja þeir að líðan hans sé betri og
það séu tvö hænufet í rétta átt. Þau
segja að mikið af fólki sendi þeim
baráttukveðjur og fjölskyldan fái
mikinn styrk í gegnum kveðjurnar.
Afi Jónatans, Páll Helga-
son, vildi lítið tjá
sig um slysið við
blaðamann DV
en sagði að
þetta væri
bara sorg
og grátur.
Safna
fyrir
Jónatan
Rafn
Pálsson og
Brynhildur
Brynjúlfsdótt-
ir, foreldrar Jón-
atans, hafa opn-
að bankareikning
til að safna fyrir öllum
þeim gífurlega kostn
aði sem fylgir því að
vera hjá syni sínum.
Reikningsnúmer-
ið er 1135-05-
802200,
kt.
Los Salmones ibúðahótelið á Ensku Ströndinni Jónatan va'r ífrli á þessu hóteli ásamt
kærustu sinni þegar slysið átti sér stað
100160-7149. Þeir sem
vilja styrkja fjölskyld-
una til að komast í
gegnum þetta mikla
áfall geta lagt inn á
reikninginn þeirra
eða skrifað þeim
stuðningskveðj-
ur á bloggsíðuna.
Auður Sæmunds-
dóttir, fararstjóri
Heimsferða á Kan-
arí, hefur aðstoð-
að foreldra Jón-
atans til að túlka
það sem læknarnir
segja um ástand og
líðan hans þar sem
fararstjóri ferða-
skrifstofunnar
Appolo sem
Jónatan
Maspalomas-ströndin á Gran Canaria
Islendingar fara mikið í frí tii Kanari á veturna
því veðrið þar er einstaklega gott.
ferðaðist með talar ekki spænsku.
Auður segir í samtali við DV að
þetta hafi verið gífulegt áfall fyrir
fjölskylduna en hún dáist að styrk
foreldranna og dugnaði á þessum
erfiðu tímum.
jakobina@dv.is
~t>
Jonatan Helgi Rafnsson erí
lifshættu á Kanaríeyjum Það er
kraftaverk aðhann skyldi lifa affaii
affjorðu hæð hótelbyggingar.
—-------
Danski Örninn óvænt í Þjóðleikhúsinu
Baltasar Kormákur Vann glæstasta sigur
með uppfærsiu sinni á Pétri Gauti.
illar aðsóknar á Pétur Gaut fengu þeir
ekki sæti saman í salnum. Að sögn
Benedikts skemmti danski Örninn sér
vel á leiksýningunni og skOdi furðu-
mikið af því sem sagt var og talað á
sviðinu.
Uppfærsla Þjóðleikhússins á Pétri
Gauti er í höndum Baltasars Kormáks
að þessu sinni og þykir honum hafa
tekist feykivel upp. Hafa allir dómar
verið lofsamlegir og í DV fékk sýning-
in heilar fimm stjörnur.
Jens Albinus sá Pétur Gaut
Danski leikariim Jens Albinus var
meðal gesta á Pétri Gauti í Þjóðleik-
húsinu í fýrrakvöld. Jens er sem kunn-
ugt er þekktastur íyrir hlutverk sitt í
danska sjónvarpsmyndaflokknum
Erninum sem farið hefur sigurför víða
um heim og ekki síst hér á landi.
Jens Albinus vakti töluverða athygli
í Þjóðleikhúsinu og varpaði jafnvel
skugga á sjálfan Pétur Gaut í hléinu.
Jens var þarna á ferð með Benedikt
Erlingssyni, félaga sínum sem kennt
hefúr honum íslensku, en vegna mik-
Úr Pétri Gaut
Sýning sem
fengið hefur
frábæra dóma.
Jens Albinus Danski
Örninn skildi margtafþvi
sem fram fór á sviðinu.