Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2006, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2006, Page 21
DV Menning ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2006 21 Raðmorðingi, inúítar og ást Hjá Máli og menningu eru komnar út þrjár nýjar kiljur, Aftur- elding eftir Viktor Arnar Ingólfsson, Hrafninn eftir Vilborgu Davíðsdótt- ur og Skuggi vindsins eftir Carlos Ruiz Zafón. Afturelding fjallar um æsilega glímu milli lögreglu og óvenjulegs morðingja - þar sem ekki má á milli sjá hvor er í hlutverki kattarins sem eltir músina. Á fáeinum dögum eru þrír gæsaveiðimenn myrtir og lög- reglan stendur frammi fyrir því að raðmorðingi gengur laus. Viktor Arnar Ingólfsson er einn vinsælasti spennusagnahöfundur landsins og hér bregst honum ekki bogalistin. Vilborg Davíðsdóttir er þekkt fyr- ir sögulegar skáldsögur sínar. Hér varpar hún ljósi á framandi heim inúíta og ráðgátuna um norrænu byggðina á Grænlandi sem hvarf sjónum inn í þoku tímans um miðja fimmtándu öld. Hrafninn er spenn- andi og áhrifarík skáldsaga um það sem gerist þegar örlög einstaklinga rekast á veggi fordóma og hefða. Hrafninn var til- nefnd til íslensku bók- menntaverðlaunanna árið 2005. Þriðja kiljan, Skuggi vindsins, er saga um horfna tíma og gleymd- ar persónur sem ganga aftur og taka völdin í lífi þess sem les. En um leið er hún spennusaga Afturelding Glæpasaga Viktors Arnars er komin út i kilju og hefur fengiö nýja kápumynd. um fólk á flótta, um of- sóknir, vináttu og svik, um ótta og vissu, „um ást, hatur og þá drauma sem búa í skugga vinds- ins" eins og Daníel seg- ir við stúlkuna sem hann elskar þegar hann fer með hana í Kirkjugarð gleymdu bókanna til að sýna henni fjársjóðinn dularfulla sem þar er geymdur. Leikhópurinn Frú Emilía frumsýnir á sunnudagskvöldið leikritið Hundrað ára húsf eftir Jón Atla Jónasson Sýnt verður í gömlu herspítalatjaldi við Ylströndina í Naut- hólsvík en áhorfendum er hátíðlega lofað því að þeir Qúki ekki á haf út. Ekki tínstillt leikhús Jón Atli Jónasson og félagar tjalda Tjaldið var notað bæði i írak og Bosnlu - eða svo sagði sölumaðurinn. „Það var bölvað vesen að tjalda þama í Nauthólsvíkinni," segir höf- undurinn Jón Atli í spjalli við menn- ingarsíðu. „Það gekkþó á endanum og við segjum stolt fiá því að breska vík- ingasveitin, sem hefur mikla reynslu af því að setja upp slík tjöld, tekur sér þijá klukkutíma í verkið, en við kláruðum það á fjómm og hálfum tíma." Einhver mistök voru þó gerð við uppsetningu tjaldsins, vegna þess að það losnaði og tókst næstum á loft í S miðju rennsli. „Vtð löguðum það strax og núna er það tryggilega fest," segir Jón Atli. „Fólk getur því óhrætt komið að sjá leikritið og við ábyrgjumst að það fýkur ekki á haf út. Enda á slíkt tjald að þola sand- storma og maðurinn sem seldi mér það sagði að það hefði verið notað bæði í Irak og Bosm'u. Kannski hefur það þó verið sölutrix." Leikhúsið tekið út úr leikhúsinu Þegar Jón Atli er spurður að því I hvers vegna Frú Emilía vilji endilega sýna Hundrað ára hús á þessum stað, segir hann að bæði hann sjálfur, Haf- liði Amgrímsson leikstjóri og Jón Páll, einn leikaranna, séu reyndar vanast- t ir því að sýna á undarlegum stöðum. f ■M frystihúsi, í veltandi stálbúri og ýmsum rottuholum, eins oghann orðarþað. „Við höfum mikið gælt við hug- myndina um „staðsett leikhús" og fundist hún sjarmerandi," segir Jón Atli. „Það er þegar leiksýning er stað- sett annars staðar en í hefðbundnu leikhúsi. Að okkar mati öðlast verkið annað líf ef það er sýnt við „erfiðari" aðstæður. Þegar leikhúsið er fært út úr leikhúsinu." Ungt fólk og elliglöp Leikritið fjallar um dag í lífi nokk- urra einstaklinga sem em vistaðir á elliheimili og þjást af elliglöpum. Að sögn höfundarins er hann að fjalla um gildi minninganna og tengsl þeirra við sjálfið ogsjálfsmyndina, Ólafur Egill Egilsson, Harpa Amar- dóttir, Bjöm Thors, Jón Páll Eyjólfsson og Laufey Elíasdóttir leika gamlingj- ana ogþað er ljóst að þau leika töluvert „upp fýrir sig" í aldri. Verðurþað ekkert einkennilegt? „í leikhúsi er alltaf gert samkomu- lag við áhorfendur," segir Jón Atli. „Þeir kaupa það tildæmis að þeir séu stadd- ir á miðöldum þó að þeir séu ekk- ert staddir þar. Þeir kaupa að Hilmir Snær sé Ríkharður þriðji, þó að hann HHHHG sé í raun bara íslenskur leikari. Því er alveg hægt að gera samkomulag um að Harpa Amardóttir sé hundrað ára, vegna þess að hún er fyrst og fremst manneskja. Hundrað ára konur geta líka alveg verið sautján ára í hjarta sínu, vegna þess að sjálfsmynd okkar fyigir ekki fæðingarárinu." Ef leikarar muna textann... Aðspurður um hvort leikritið sé al- veg tilbúið segir Jón Atli að það verði sýnt á réttum tíma. „Við stöndum held- ur ekki í því að fínstilla einhverja ægi- lega ljósablöndu, þetta er ekki þannig leikhús. Ef áhorfendur sjá framan í leikarana og ef þau muna textann, þá erumvið sátt" Verkefnið er unnið með styrk frá Leiklistarsambandi íslands. Hægt er að lesa frásagnir af því sem leikhópur- inn er að bardúsa á netsíðunni lOOara- hus.blogspot.com í!Í2SK\£j£íAÍ> • Rúnar Helgi Vignisson Tók við þýðingaverðlaununum á Bessastöðum á sunnudaginn en verður I Iðu i kvöld. Rúnar Helgi í Iðu í kvöld kl. 20 verður 61. Skálda- spírukvöldið haldið í Iðu og aðal- gestur er enginn annar en Rúnar HelgiVignisson, nýbakaðurþýð- ingaverðlaunahafi. Rúnar hefúr get- ið sér gott orð bæði sem rithöfund- ur og þýðandi fagurbókmennta og á árinu sem leið sendi hann fra sér þijár bækur; eina þýðingu, frum- samið skáldverk og bamabók. Á þessu kvöldi, sem er með þeim síðustu sem Skáldaspíran efiiir til fyrir sumarleyfi, les Rúnar úr verk- um sínum, segir ffá sjálfum sér og svarar spumingum gesta. Aðgangur er ókeypis og bækur kvöldsins em með 20% afslætti að- eins þetta kvöld. Galdraskyttan á Listahátíð Óperan Galdraskyttan verður nú sett uppífyrsta sinn á íslandi og sýndí Þjóðleikhús- inu. Óperan er samvimtu- verkefni Sinfómu- hljómsveitar ungafólks- ins, Sumaróp- emReylqavflair og Dansleikliússins, auk félaga úr karlakómum Fóstbræðrum. Sýning- ar em 2., 7., 9. og 10. júm'. Fyrsta sýn- ingin er á Listahátíð í Reykjavflc Það em Kolbeinn Ketilsson, Hrólfur Sæmundsson, Hlín Péturs- dóttir, Valgerður Guðnadóttir og Elísa Vilbergsdóttir sem fara með helstuhlutverk. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og hljómsveitar- stjóri Gunnsteinn Ólafsson. Fium- sýnt verður á stóra sviði Þjóðleik- hússins 2. júm' og verða sýningar alls fjórar. IÚr Galdraskyttunni Frumsýnd á Stóra sviðinu 2.júnl. I Fermingartilboð Kynnum nýjar gerðir af rúmum með 20% kynningarafslætti. . . ■Bri ■ Rafstillanleg rúm 120x200sm með svæðaskiptri pokafjaðradýnu Réttverðkr. 118.000. Tilboðsverd kr. 94.400.- Söngperlur Tenórsins Tenórinn- Guðmundur Ólafsson Verður á Hláturtíð. Leiksýningin Tenórinn eftir Guðmund Ólafsson, sem sýnd var tvö leikár við miklar vinsældir í Iðnó, fylgir nú fordæmi Leikfélags Reykjavíkur og flytur sig úr Iðnó upp í Borgarleikhús. Þar mun söngvarinn taka þátt í „Hlátur- tíð" Borgarleikhússins en eins og flestum mun kunnugt er Tenórinn mikill gleðigjafi og hláturvaki þótt undir niðri leynist harmurinn. Síðastliðið haust heimsótti Tenórinn Norðurland og sýndi við feikilega góðar undirtektir í Frey- vangi í Eyjafjarðarsveit. Síðan þá hefur hann legið í hálsbólgu en er nú búinn að ná sér að fullu og hefur að sögn aldrei verið í betra formi, og er þá mikið sagt. Má bú- ast við að nokkur há c muni hljóma úr munni hans á Litla sviði Borg- arleikhússins ásamt andakvaki og sópransöng. Meðal þess sem heyrist í sýn- ingunni eru söngperlur einsog Draumalandið, Söngur villiandar- innar, Una furtiva lagrima, O sole mio og hver veit nema Hamra- borgin fylgi með í kaupbæti. Leikarar í sýningunni eru Guð- mundur Ólafsson og Sigursveinn Magnússon, leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson. Aðeins verða fjórar sýningar á verkinu að þessu sinni rumco Langholtsvegi 111,104 Rvk. Simi 568 7900 Hanson rúm með fjaðrandi rúmbotni, svæðaskiptri pokafjaðradýnu og lúxus yfirdýnu með hrosshárum (án höfðagaflsj.l 20x200. Verð kr. 110.600. Tilboðsverd kr. 88.480.- virka daga 11-18» laugardaga 11-16.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.