Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 26. MAl2006 Fréttir DV Þrír enn Alheimsfegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir komst í hann krappan á mið- vikudagskvöldið þegar hún var viðstödd keppnina Ungfrú ísland 2006 á Broadway. Unnur Birna hélt ræðu á keppninni og þegar hún var að stíga niður af pallinum vildi ekki betur til en svo að hún rann til og féll kylliflöt fram fyrir sig. Hún bar sig þó vel þegar DV hafði samband við hana í gær og sagðist aðeins vera með marbletti. í einangrun Gæsluvarðhaldið yfir þre- menningunum ÓlafiÁgústi Ægissyni, Ársæli Snorrasyni og Johani Handrick úr Stóra BMW-málinu var firamlengt um tvær vikur á föstudaginn í síðustu viku. Þeir verða allir áfram í einangrun en Hæsti- réttur staðfesti úrskurðinn á miðvikudag eftir að lög- fræðingar þremenninganna höfðu kært. Fjórði maðurinn í málinu sem var handtek- inn á skírdag, Hörður Eyj- ólfur Hilmarsson, er hins vegar laus úr einangrun sam- kvæmt heimiidum DV. Alsæla með kónginum Áheimasíðu aðdáenda Bubba Morthens er gert að umtalsefni að nú er uppselt á afmælistón- leika Bubba sem verða 6. júní. Telja þeir þá sem ekki hafa tryggt sér miða munu verða á „ævilöngum megabömmer." „Á meðan erum við hin í seilingarfjar- lægð frá alsælu, skælbros- andi, vitandi það að okkar bíður mesta tónlistarveisla síðari tíma. Það er aðeins einn Konungur!" skrif- ar aðdáandi sem kallar sig Trausta. Barði ekki til að drepa Lárus Már Hermanns- son kokkur var á miðviku- dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að slá fyrrverandi sambýliskonu sína í höfuðið með felgulykli. Hæstiréttur lækkaði refsingu Lárusar úr þeim fimm árum og sex mánuðum sem hér- aðsdómur hafði dæmt hon- um. Munurinn fólst meðal annars í því að Hæstiréttur taldi ósannað að Lárus hefði ætlað að drepa konuna með árásinni eða að honum hefði mátt vera ljóst að hún kynni að andast við atlöguna. Helmingi of lítill áróður Þau mistök urðu við vinnslu kynningarblaðs í-listans á fsa- firði að blaðið kom helm- ingi minna úr prentun en til var ætlast. Þetta kemur fram á bb.is. „Málgagn f-listans sem kom út í gær var prentað 50% of lítið vegna mistaka við vinnslu blaðsins. í-list- inn biður alla bæjarbúa vel- virðingar á þessu og mun blaðið koma í fullri stærð í kvöld. H-prent ehf., biður einnig aðstandendur f-list- ans velvirðingar á þessum mistökum," segir á bb.is. f- listinn er sameiginlegur listi félagshyggjuflokka. Unnur Birna alheimsfegurðar drottning Blá og marin eftir slaka frammistöðu skúringa- kvenna á Broadway. Alheimsdrottning með hönd í fatla á afmælisdaginn „Eigum við ekki bara að segja að fall sé fararheill. Af- mælisdagurinn minn var nýgenginn í garð þegar þetta gerðist," sagði alheimsfegurðardrottningin. Unnur Birna Vilhjálmsdóttir hlæjandi um atvikið á Broad- way í fyrrakvöld þegar henni skrikaði fótur og hún datt kylliflöt á andlitið. Unnur Birna var sérlega glæsUeg í bláum kjól við keppnina þar sem hún krýndi arftaka sinn Sif Aradóttur úr Reykjanesbæ. Hún hélt ræðu uppi á sviði áður en krýningin fór fram en ekki vUdi betur til en svo að hún datt kylliflöt fram fyrir sig skömmu eftir að hún kom niður af paUinum. Kór- ónan flaug af henni en sem betur fer slapp Unnur Birna óbrotin. Með höndina í fatla „Ég er óbrotin. Svolítið aum í hendinni og blá og marin," sagði Unnur Birna sem fór í röntgen- myndatöku í gær. „Það blæddi inn á lið í olnboganum en sem betur fer brotnaði ekkert. Ég er hins vegar með höndina í fatla og verð að læra að veifa með vinstri" sagði fegurðar- drottningin og hló. „Það blæddi inn á lið í oln- boganum en sem bet- urferbrotn- aðiekkert. Ég erhins vegar með höndina í fatlaog verð að læra að veifameð ''jJi vinstri" Slapp vel Hún telur sig hafa sioppið vel miðað við aðstæður. „Það var eins og fótunum væri bókstaflega kippt und- an mér. Þetta gerðist rosalega hratt og ég held að ég sé heppin að hafa ekki handarbrotnað," sagði Unnur Birna. Skúringafólkið á svartan lista Unnur Birna sagði að bletturinn þar sem hún rann til hefði verið tU vandræða aUt kvöldið. „Þremur öðr- um stúlkum skrikaði fótur á sama stað og það er alveg ljóst að skúringa- fólkið á Broadway er komið á svartan lista hjá mér," sagði Unnur Birna. Datt á afmælisdaginn Unnur Birna segir að Elín Gests- dóttir, framkvæmdastjóri keppninar, hafi hlegið að þessu og sagt að það væri varla hægt að byrja afmælisdag- inn betur. „Hún sagði að fall væri fararheill og að næsta ár verði gott hjá mér. Ég veit nú ekki hvort það getur orðið betra en það síðasta en það er aldrei að vita," sagði Unnur Birna sem hvfi- ir nú lúin bein í sveitinni hjá ömmu og afa. Davíð var Svarthöfði hefur lengi hald- ið því fram að Davíð Oddsson hafi. verið stórlega vanmetinn alla sína hunds- og kattartíð, sem einstakl- ingur, rithöfundur og ekki síst sem stjórnmálamaður. Það er ekki um- deilanlegt að Davíð er merkasti stjórnmálamaður fslands á síðustu öld en Svarthöfði var alltaf viss um að sagan myndi dæma Davíð sem merkasta íslendinginn á öldinni ef ekki bara fyrr og síðar. Það er því ekki laust við að Svart- höfði hafi hlegið með sjálfum sér þegar hann las grein eftír sagn- fræðinginn knáa Val Ingimundar- son í Skírni. Þar kom í ljós að það var ekki íslensku þjóðinni að þakka að Bandaríkjamenn stóðu vörð um hana. Ekki var það ríkisstjóminni eða Halldóri Ásgrímssyni að þakka. vörn landsins Svarthöföi Nei, það var enginn annar en Davíð Oddsson sem gerði það að verkum að hryðjuverkamenn af öllum stærð- um og gerðum hafa ekki streymt inn í landið. Ótti og virðing George Bush, forseta Bandaríkjanna, fýrir þessari hrokkinhærðu hetju frá landi elds og ísa gerði það að verkum að hann þorði ekki að draga herinn frá ís- landi. Davíð hótaði honum öllu illu og Bush vissi að hann myndi standa við það. Þetta kemur Svarthöfða ekki á óvart enda Davíð maður í þeim flokki sem lætur ekki spila með sig. Það kemur Svarthöfða heldur ekki á óvart að varnarsamstarfið skuli hafa hrunið um leið og Davíð hætti. Bush stóð ekki mikil ógn af Halldóri Ás- grímssyni og Geir Hilmari Haarde. „They're just a bunch of pussies," gæti Bush hafa sagt áður en hann skipaði hernum að fara burt. Enda kom það á daginn. Halldór og Geir mjálma um óréttláta meðferð en Svarthöfði veit að annað hefði verið uppi á teningnum ef Davíð væri enn við völd. Þá hefði öll um Bandaríkja- mönnum verið mokað úr landi á mettíma og sendi- ráðinu lokað. Svart- höfði saknar Davíðs en gleðst yfir því að enn einu sinni sannast að Davíð tók öllum hinum fram. Hann var í raun vörn íslensku þjóðarinnar gegn hryðjuverkamönn- um í mörg ár. Geri aðrir betur! Svarthöfði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.