Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 35
DV Helgin
FÖSTUDAGUR 26. MAl2006 47
Fjölskyldan „Það voru ofsalegar
tilfinningarsem fóru! gang, bæði
hjá okkur og hjá fóstrunum þegar
þær kvöddu stelpurnar.''
Gleðifundir Magnús Orri knúsar
litlu systur þegar foreldrar hans og
Marla Rós koma heim frá Kína.
Magnús skírður
Magnús Orri sklrður. Hér
er hann ásamt mömmu
sinni og pabba.
Sæt saman
Systkinin eru
náin og
góðirvinir.
Sigrún Þorbergsdóttir og eiginmaður hennar Ástþór Vilmar Jóhannsson ættleiddu dóttur sína frá
Kina. Ástrós Elísabet er allt það sem þau óskuðu sér og meira til. Sigrún segir frá ferðalaginu þegar
þau hjónin fóru að sækja dótturina til Kína.
1
Ástrós Elísabet „Þetta
var búið að vera langt
ferli en erfiðleikarnir og
biðin gleymdust um leið
Vlð héldum til Peking
þann 25. febrúar 2004
og vorum komin með
Ástrósu Elísabetu í fang-
ið þann 1. mars," segir Sigrún Þor-
bergsdóttir kennari á Akranesi en
hún og eiginmaður hennar, Ást-
þórVilmar Jóhannsson, ættleiddu
dóttur sína frá Kína. Ástrós Ehsa-
bet er allt sem þau óskuðu sér og
Sigrún segir þau enn í skýjunum.
Með fimm öðrum til Kína
Sigrún og Ástþór fóru í sam-
floti með fimm öðrum væntan-
legum foreldrum að sækja dæt-
urnar til Kína. Eftir að hafa lent í
Peking og dvalið þar í 3 daga hélt
hópurinn til Guangxi-héraðs og
til borgarinnar Nanning. „Það var
ótrúlega góð stemning í hópnum
og við höldum ennþá góðu sam-
bandi okkar á milli. Við eyddum
saman nokkrum dögum í Kína
áður en við fengum stelpurn-
ar og höguðum okkur þá eins og
ferðamenn, vorum með kínversk-
an leiðsögumann sem stýrði okk-
ur algjörlega og passaði upp á að
við fengum að sjá það helsta sem
svæðið hefur upp á að bjóða,"
segir Sigrún þegar hún rifjar upp
ferðalagið.
Þekkti hana strax
Sigrún segir eftirvæntinguna
hafa verið mikla í hópnum og að
þau hafi flestöll tekið svefntöflu
kvöldið áður en þau sóttu stelp-
urnar einfaldlega til að geta sofii-
að fyrir spenningi. „Við fengum
stelpurnar á ættleiðingarskrifstofu
og þetta var rosalega flott og
formleg athöfn," segir hún og tek-
ur undir að um einhvers konar
fæðingu sé að ræða. Þarna séu
foreldrarnir að fá börnin í fang-
ið í fyrsta skiptið þótt fiieðgang-
an hafi verið með öðrum hætti en
flestir eigi að venjast. „Sex fóstr-
ur komu með þær í fanginu og
ég þekkti dóttur mína strax," segir
Sigrún og bætir við það hafi ver-
ið svolítið áhyggjueftii í hópnum
hvort þau myndu þekkja börn-
in af myndunum sem þau höfðu
fengið á sínum tíma enda stelp-
umar allar búnar að stækka.
Tilfinningarík stund
„Nöfn okkar og nöfn barnanna
voru kölluð upp og við fengum
dótturina í fangið. Það var engin
aðlögun, við þurftum ekki að sjá
hana og fara aftur ffá henni held-
ur var hún þarna komin til okk-
ar. Það voru ofsalegar tilfinningar
sem fóru í gang, bæði hjá okkur og
hjá fóstrunum þegar þær kvöddu
stelpurnar. Við vorum vel undir-
búin og vissum að börnin gætu
allt eins grátið eða, eins og í okk-
ar tilfelli, verið alveg passíf. Það
ýlfraði aðeins í Ástrósu Elísabetu
og hún þorði varla að hósta. Við
hefðum líklega fengið vægt sjokk
ef við hefðum ekki verið undir
það búin."
Allar vel á sig komnar
Eftir að hafa fengið dótturina
í fangið fór litla fjölskyldan upp á
hótelherbergi en kom svo aftur á
skrifstofúna daginn eftir þar sem
hinir nýbökuðu foreldrar skrif-
uðu undir ættleiðingarpappír-
ana. Næst lá leiðin aftur til Peking
þar sem við tók mikil skriffinnska.
Sigrún segir hópinn hafa haldið
áfram í túristagírnum strax næsta
dag eftir að hafa fengið stelpurn-
ar í fangið. „Við héldum að við
myndum vera uppi á hótelher-
bergi næstu daga til að venjast
dótturinni en okkar beið stíf en
skemmtileg dagskrá að skoða og
ferðast. Það skiptir miklu máli fyr-
ir stelpurnar að halda hópinn til
að byrja með enda undir miklu
álagi og í kringum ókunnugt fólk.
Þær komu af sama barnaheimili
og ólust upp saman og höfðu jafn-
vel sofið hhð við hlið og voru rojög
nánar," segir Sigrún og bætir við að
allar stelpurnar sex hafi verið vel á
sig komnar, líkamlega og andlega.
„Þær komu af góðu barnaheimili
og læknirinn sem var með okkur
í för var mjög ánægður með þær.
Við vorum viðbúin öllu og höfð-
um farið út með fulla tösku af lyfj-
um en sem betur fer þurftum við
ekki að nota þau."
Mynd af fullsköpuðu barni
Ástrós Elísabet var 14 mán-
aða þegar hún komst í hendur
foreldra sinna. Sigrún og Ástþór
hófu ættleiðingarferlið í júlí 2002
og því liðu tæp tvö ár þar til þau
fengu hana í fangið og Sigrún seg-
ir það eðlilegan tíma. „Þetta er
mjög löng meðganga," segir hún
og brosir. „Við fengum myndir
og upplýsingar um hana 9. jan-
úar 2004 og urðum að bíða í sex
vikur í viðbót áður en við lögðum
af stað að sækja hana. Þann tíma
notuðum við til að tengjast henni
og ég gekk með myndina í vesk-
inu og sýndi hana öllum, jafn-
vel ókunnugum. Maður verður
hálf skrítinn, gleðin er svo miki].
Þeir foreldrar sem eignast barn á
venjulegan hátt fá sónarmyndir
én ekki við. Eftir langa bið fengum
við mynd af fullsköpuðu barni."
íslensk en fædd í Kína
í dag er Ástrós Elísabet næstum
þriggja og hálfs árs, hress og kát
stelpa. Fjölskyldan heldur sam-
bandi við hinar fjölskyldurnar og
Sigrún segir stelpurnar góðar vin-
konur með sterk tengsl sín á milli.
Aðspurð segist Sigrún ætla að
gera sitt til að hjálpa Ástrósu Elísa-
betu að halda í kínversku arfleifð-
ina. „Við ætlum að hjálpa henni
að kynnast Kína og segjum henni
eins mikið um hennar uppruna og
hún hefur þroska til að meðtaka. í
dag veit hún að hún var eitt sinn
lítið barn á barnaheimili í Kína
og að mamma hennar og pabbi
hafi komið með flugvélinni til að
sækja hana. Við reynum líka að
undirbúa hana fyrir að vera köll-
uð „kínverska stelpan" og segjum
henni að hún sé íslensk en að hún
hafi fæðst í Kína."
Erfiðleikarnir
gleymast strax
Sigrún og Ástþór höfðu reynt
nokkrar glasafrjóvganir sem ekki
tókust áður en þau ákváðu að
ættieiða. Hún segir að sú ákvörð-
un hafi'verið stór og að þetta geti
verið erfið ákvörðun fyrir marga.
„Það er fast í svo mörgum að
barnið verði að vera af manns
eigin holdi og blóði. Við fengum
hins vegar fljótt á tilfinninguna að
við hefðum átt hana mjög lengi.
Þetta er æðislegt og það er svo
ffábært að þetta ferli sé til, að ætt-
leiða," segir hún og bætir aðspurð
við að hún trúi ekki að hún myndi
bera sterkari tilfinningar til dótt-
urinnar þótt hún hefði gengið
með hana. „Þetta var búið að vera
langt ferli en erfiðleikarnir og bið-
in gleymdust um leið og hún var
komin til okkar."
dögum í Kína fórum við á hótel í
Nanchang og aðeins korteri síðar
höfðum við fengið stelpurnar. Þetta
gerðist allt mjög hratt og maður átt-
aði sig ekki alveg á þessu strax," seg-
ir hún og bætir við að María Rós hafi
grátið þegar hún hafi verið komin til
þeirra. „Við fórum með hana upp á
hótelherbergi til að kynnast henni
og svo varð ég að ganga ffá papp-
írum seinna um kvöldið. Þegar ég
kom til baka vildi hún ekki sjá mig og
hékk utan í manninum mínum. Ég
var ekkert að pína hana en þetta var
mjög erfitt á köflum. Hún náði hins
vegar að venjast mér í rólegheitunum
og leitar nú jafnt til okkar beggja."
Algjörir gullmolar
Ingibjörg segir Magnús Orra hafa
verið ánægðan að hitta þau aftur sem
og nýju systur sína. „Hann varð strax
rosalega ánægður með systurina en
afbrýðissemin lét á sér kræla innan
skamms enda ekkert skrítið. Það er
ekki auðvelt að hafa verið aðalstjam-
an en missa svo flugið. Við reyndum
hins vegar að passa að hann fengi
að vera með í öllu. Hann hefur allt-
af verið góður við hana og í dag eru
þau miklir vinir og mjög náin," seg-
ir hún en Magnús Orri er 4 og hálfs
árs og María Rós tveggja og hálfs árs.
„Auðvitað rífast þau inn á milli eins
og gengur og gerist en þaú eru bæði
algjörir gullmolar. Þau eru börnin
okkar og ég fann það um leið og ég
fékk þau í fangið og ég gæti ekki elsk-
að þau meira."
Fyrsta myndm af
Maríu Ein af
myndunum sem
Ingibjörg og Örn
fengu afMaríu.
Með mömmu María Rós með
«J mömmu sinni á góðri stundu.
indiana@dv.is