Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 31
DV Helgin FÖSTUDAGUR 26. MAl2006 31 Blóðið litar vatnið í kringum hann. Hann veit að ef hann missir meðvitund mun hann drukkna. í kringum hann fljóta hlutir úr bílnum hans. Topplyklasettið er einn þeirra. Hann teygir sig eftir því, njörvar það undir hökuna og bíður þess sem verða vill. Veit ekki á þessari stundu að allt er breytt. Hann er sautján ára unglingur sem mun aldrei aftur geta gengið. Það veit hann ekki fýrr en mörgum mánuðum síðar. Baldvin Vorm ísaksson - Baddi - tekur á móti mér með því að kyssa mig á handarbakið. Sjarmör! Ómót- stæðilegur daðrari? Já - og nei. Segir sjálfur að konurnar í lífi sínu hafi ver- ið alltof margar og alltof villtar. Tekur fram að hann sé einnar konu maður. Eina vandamálið er að hann á eftír að finna þessa einu konu. Hann er 46 ára og hefur verið bundinn hjólastól frá því á þjóðhátíðardaginn árið 1977. Daginn sem harm hafði lokið við að gera upp fyrsta bílinn sinn og keyrði stoltur af stað til vina sinna í Húna- vatnssýslunni. Nýkominn með bíl- próf og aldrei keyrt í lausamöl. Tilfinning hafin yfirailan sársauka „Ég var óvanur að keyra og það var ekki sterkur leikur að byrja á að fara út á malarvegi," segir hann rólega. „Á Holtavörðuheiði misstí ég stjóm á bílnum og keyrði út af. Bíllinn var Volkswagen-bjalla, árgerð -1967, og engin bflbeltí í honum. Lfldegast hef ég kastast út um hliðarrúðuna og lent í þessari tjöm. Það næsta sem ég man er að ég ligg í tjörninni, illa skorinn á höfðinu. Höfuðleðrið hafði rifnað og það blæddi mikið úr. Mér fannst ég vera að kafna. Fyrsta og eina hugsun- in sem komst að við þessar aðstæð- ur var að lifa af. Þetta er tflfinning sem er hafin yfir allt. Yfir allan sárs- auka og yfir allan ótta. En ég vissi að ef ég misstí meðvitund, þá myndi ég drukkna." Þegarbíl bar loksins aðfékk Baddi von. Sú von hvarf fljótt. Bíllinn ók áfram án þess að stöðva: „Sennilega hefur bflstjórinn hald- ið að þessi illa útleikni Volkswag- en hefði legið þama lengi og ég mun aldrei trúa því að hann hafi í raun séð mig. Ég reyndi að skríða upp úr vatn- inu, en þegar það tókst ekki náði ég í topplyklasettið og skorðaði það und- ir hökuna á mér þannig að höfuðið stæði upp úr ef ég misstí meðvitund. Ég ætlaði að lifa..." Hversu langur tími leið frá bílvelt- unni og þar til hjálp barst veit enginn. Það eina sem er vitað er að þá var vél bílsins orðin ísköld og Baddi aðfram- kominn: „Ég átti erfitt með að anda og var viss um að lungun hefðu fallið saman," segir síðar þegar ég fór í endurhæfingu á Grensásdefldina." Enginn sagði honum hverjar horf- urnar vœru. Enginn sagði honum að hann myndi aldrei aftur geta gengið. Að minnsta kosti man Baddi ekki eft- ir því: „Mamma sagði mér síðar að mér hefði verið sagt þetta á Borgarspít- alanum, en ég man það ekki. Það hvarflaði ekki að mér á þessari stundu að ég væri lamaður. Ég fékk óskýr og óljós svör frá læknum og það var ekki fýrr en ég hafði verið nokkum tíma á Grensásdeildinni að mér var sagt að ég yrði alltaf hreyfihamlaður." Meðan við fáum okkur meira af sterku kaffi veltum við fyrir okkur hvort þetta séu ekki eðlileg vamarvið- brögð heilans: að meðtaka ekki vond- ar fréttir fyrr en við erum tilbúin að heyra þœr. Held við séum sammála um að hafa málin þannig, man það þó ekki, þvífrásagnir Badda toga mig frá þeim vangaveltum: „Ég held hreinlega að það hafi alls ekki hvarflað að mér strax að ég yrði hreyfihamlaður," segir hann hrein- skilnislega. „Ég lifði bara einn dag í einu. Á Grensásdeildinni eignaðist ég tvo góða vini, þá Stjána og Dadda, sem vom nokkm eldri en ég. Það var mikfl slysaalda á árunum 1977 og 1978 og á tímabili vorum við sjö strákar þama á lfloi reki sem höfðum lamast í slysum." Á fylleríi á bílastæði Grensásdeildar Það er ótrúlegt að hlusta á frásagn- ir Badda. Aldrei bólar á reiði eða bit- . urð og hann á auðvelt með að hlœja að endurminningunum. Eins og þeirri þegar vinir hans voru á leið í útilegu og ákváðu að heimsœkja hann áður en haldiðyrði afstað: „Þeir vom með fullan kassa af brennivíni í bflnum og þegar ég fór með þeim út á bflastæði að kveðja þá gáfu þeir mér í glas. Það endaði með því að ég varð blindfullur þama útí á bflastæðinu," segir hann hlæjandi. Ég þarf hins vegar skyndilega að opna svalahurðina. Get ekki lát- ið manninn sjá á mér hvemig mynd birtist í huga mínum: Félagamir á leið í skemmtilega útilegu. Einn eftir, í hjólastól, hans líf innan dag í einu; aldrei um það að ég ættí eftír að verða lamaður allt mitt líf. Ég trúði því innst inni að þetta væri tímabundið ástand. Það var alltaf tal- að undir rós, sagt að tíminn yrði að leiða þetta í ljós." Þangað til þú dast í það á bíla- stceðinu. „Já, þangað tfl þá.“ Grensásdeildin Grensásdeildin varð heimili Badda nœstu níu mánuðina. Þar bjó hann í heimi þarsem hann átti ekkert einka- líf, átti allt sitt undir öðrum, var eins og viljalaust verkfœri í höndum mis- viturra starfsmanna. En þar eignaðist hann líka vini sem skildu hann: „Tengslin við strákana, Stjána og Dadda, voru sterkari en við fjölskyldu mína. Þegar fór að líða á dvölina á Grensás hafnaði ég fjölskyldunni. Mér fannst þau ekkert hafa að segja í heimsóknum. Jú, það hefur verið hræðilegt fyrir þau," svarar hann. „Ég vfldi ekki einu sinni fara heim í helg- arfrí. Og eftír því sem tíminn leið, vik- urnar urðu að mánuðum, þeim mun færri urðu lflca heimsóknir gömlu vinanna til mín. Grensásdeildin varð minn heimur, heimili mitt og strák- amir urðu fjölskylda mín." / hugum einhverra strákanna á Grensásdeildinni varð hugsunin um hvað biði þeirra í kynlífi sterk. En ekki í huga Badda: „Blessuð vertu, ég var farinn að stunda kynlíf á Grensás!" segir hann og skellir upp úr. „Kynlífið var ekkert mál fýrir mér. Mínar áhyggjur snemst frekar um hvernig ég kæmist aftur á veiðar og út í náttúrana." í helgaifríunum skelltu vinimirsér heim til stelpu á Njálsgötunni. Þeir nutu lífsins og einhvem tima hvarf- laði að þeim hvort þeir ættu ekki bara aðfara til Amsterdam, byrja að dópa, kaupa sér gleðikonur og drepa sig svo. -Þessa sögu segir Baddi mérogaugun tindra afgleðiyfirþessari endurminn- ingu - sem aldrei varð að veruleika: „Hver og einn okkar hafði sinn háttínn á að bregðast við aðstæðum. Sumir trylltust upp úr þurru, bmtu allt og brömluðu. Ekki ég. Ég varð aldrei reiður og spurði mig aldrei hvers vegna þetta hefði komið fýrir mig. Daddi, herbergisfélagi minn, var skemmtilegur strákur sem sagði mér sögur heilu næturnar. Minnti mig á Svavar æskuvin minn..." Æskan Svavar, sem útvegaði Badda vini sínum rafmagnstœkifrá pabba sínum rafvirkjanum, svo Baddi gœti rifið þau framkvæmdir!" Fyrirmyndin var samt ekki í Ljós- heimunum. Fyrirmyndin bjó á Akra- nesi, Jóhannes Eyleifsson, foðurbróðir Badda: „Jóhannes ffændi var trillukarl, harður karl og mikill töffari í mínum augum. Á mínum æskuárum stund- aði hann líkamsrækt, sem var ekki algengt þá. Ég vfldi verða eins og Jó- hannes og ætlaði að verða trfllu- karl. Þess vegna hætti ég í skóla eft- ir skyldunám. Mig langaði bara að verða trillukarl, mig langaði aldrei til að verða rfkur. í minni fjölskyldu er litíð upp tfl þeirra sem fiska vel." Baddi varði miklum tíma á Akra- nesi hjá fóðurforeldrum sínum, en Ey- leifur afi hans var brautryðjandi í út- gerð þar: „Hann var fýrstí skipstjórinn sem gerði út frá Akranesi," útskýrir hann. „Menn gerðu þá jafnan út frá Sand- gerði, en afi fann fiskimið við Skag- ann. Það er kaldhæðnislegt að afi, þessi brautryðjandi og mikli sjómað- ur, skyldi enda líf sitt á að drukkna 84 ára gamall. Foreldrar mínir, Guðrún Elísabet Vormsdóttír og ísak Eyleifs- son, voru orðin fullorðin þegar þau eignuðust mig og vom ekid af þeirri kynslóð foreldra sem fóm í útflegur eða veiði með bömin sín. Þess vegna var þessi tími á Skaganum mér dýr- mætur, Iflct og sveitadvölin síðar." GekkílRA 14ára Strákurinn Baddi áttifleiri drauma en þann að verða trillukarl. Þeir koma fram eftirþví sem á samtalið líður: „Mig langaði um tíma að verða rafvirki og hef örugglega verið nokk- uð virkur sem barn," segir hann bros- andi. „Það var tfl dæmis ekki óhætt að skflja mig eftír einan með nokkurt rafmagnstæki, ég varð að skoða inn í það...! Á tímabili langaði mig að verða radíóamatör og gekk 14 ára í ÍRA." IRA??? „Já, félag íslenskra radíóamötara," segir hann alsáell með að ég hafi fallið fýrir þessu trikki. Ég er eiginlega viss um að þetta gœti orðið Jrábœr pikköpplína hjá Badda, en ákveð að segja honum það ekki. Geri honum það ekki til hœfis... Hann myndi bara nota þetta á ein- hverja aðra. En aftur að æskuárun- um: „Bubbi Morthens lýsir Heima- og Vogahverfinu vel í bókinni sinni," seg- ir Baddi. „Bubbi bjó rétt hjá mér en við kynntumst aldrei. Þarna vom stöðug- ir hverfisbardagar og lætí, en ég var svo heppinn að kynnast lflca öðrum heimi, Vest- Skotfimimeistarinn Komst nálægt því að ná ólympíulág- marki fatlaðra í skotfimi. Baddi i sveitinni Virkur, forvitinn og ætlaði að verða trillukarl. «Éð£ Bjallan eftir slysið Baddi hefur aldrei óskað þessaðhann hefði frekar látið llfið. JM NAUNGANN hann. „Þegar fólk kom loksins á stað- inn þurfti það að keyra inn í Hrúta- fjörð tfl að hringja eftír hjálp, því eng- ir voru farsímamir á þeim tíma. Eftir einhvem óratíma kom sjúkrabfll ogþá var orðið ansi af mér dregið. Ég man eftír því að mér var velt upp í teppi og skellt á sjúkrabörur. Mjög viðvanings- legt, enda ófaglærðir á sjúkrabflnum og ekki komnar þær sérstöku græjur sem notaðar eru í dag fýrir hrygg- eða hálsbrotið fólk. Það var farið með mig á Hvammstanga og höfuðið saumað saman og síðan var ég sendur með sjúkraflugvél tfl Reykjavíkur." í samlokubekk „Á Borgarspítalanum var ég settur í svonefndan „striker" sem er bekk- ur sem er snúið á tveggja tíma frestí allan sólarhringinn. Haka og enni voru óluð niður og það eina sem ég sá í nokkrar vikur var gólfið og loft- ið. Það var ekki einu sinni hægt að lesa á þessum bekk. Ég komst ekki í almennflegt rúm fýrr en sex vikum stofnunar. Næsti dagur varð ekki jajh skemmtilegur. Það var dagurinn sem Baddi var skammaður af lækni fyrir að hafa dottið í það. Læknirinn sagði honum svona í leiðinni að hann yrði lamaður fyrir lífstíð: „Margir læknar eru gjörsamlega vonlausir í mannlegum samskiptum. Þessi var einn þeirra. Mér þótti þetta mjög ósmekklegt. Enda hef ég forðast lækna eins mikið og ég get. Vissulega eru tíl frábærir læknar sem kunna að tala við fólk og einn slíkan eignaðist ég nýlega að góðum vini. Sá er Júlíus Valsson gigtarlæknir sem ég kynntist gegnum sameiginlegt áhugamál okk- ar í Byssuvinafélaginu. Júhus kann mannleg samskiptí og hefur reynst mér ótrúlega vel. Margur læknirinn gætí margt af honum lært." Hvernig er að vera sautján ára og fá þennan úrskurð? Hefur sú hugsun einhvem tíma sótt að þér að þú hefðir heldur kosið að deyja? „Nei, sú hugsun hefur aldrei hvarf- lað að mér. Ég hugsaði bara um einn í sundur og sett saman aftur. Svavar, semfór í veiðiferðir með pabba sínum og sagði Badda sögur úr náttúrunni. Svavar Kristinsson rafverktaki, sem var jafn óijúfanlegur þáttur í lífi Badda og Friðrik Guðmundsson kaupmaður í Melabúðinni og Þorbergur Halldórs- son gullsmiður: „Við brölluðum margt saman, félagarnir. Við ólumst upp í sömu blokkinni í Ljósheimum 6, blokk, sem var engri annarri hk. Þar þekktust all- ir og íbúarnir héldu saman þorra- blót, árshátíðir og fóru til Þingvalla, en ekkert toppaði gamlárskvöldin. Þá stóðu allar dyr opnar." Ekki það að félagamir hafi mikið verið að heimsækfa nágrannana það kvöld. Þeir höfðu öðrum hnöppum að hneppa: „Éins og þeim að láta reyna á end- urbættu raktettumar okkar sem við skutum á hrekkjusvínablokkina," seg- ir hann glottandi. „Við vorum lflca byrjaðir að grafa göng undir Suður- landsbrautina þegar ég flutti í Kópa- voginn, 11 ára gamall. Þá stöðvuðust urbænum. Þar gat maður farið um án þess að eiga á hættu að vera lam- inn. Pabbi rak fiskbúð á horni Ægis- götu og Ránargötu og ég fór oft með honum vestureftir. Þar kynntíst ég allt öðruvísi krökkum og var eigin- lega sjálfala þar. Það er skrýtíð hvað þetta voru ólfldr krakkar," segir hann allt í einu hugsi. „Krakkarnir í Vestur- bænum voru alltaf útí, miklu frjálsari en þeir sem ég þekktí og það var eng- inn fullorðinn sem fýlgdist með hvað við vomm að gera. Það var mjög auð- velt að nálgast krakkana í Vesturbæn- um, rnaður talaði smástund við þá og þá var maður kominn inn í hópinn. Þarna var gríðarlegt frjálsræði. Við lékum okkur mikið niðri á bryggju, vomm að veiða, spiluðum fótbolta á Landakotstúni og fengum stundum lánaðan málningarbátinn hjá Shpp- félaginu og fómm út á sjó. Framhaldá næstu síðu Sjarmör og daðrari af guðs náð Á bara eftir aöfinna þessa einu réttu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.