Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 40
52 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ2006 Helgirt Ók undir áhrifum eiturlyfja Ungur breskur ökumaður var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að vaida dauða ungrar stúlku með því að keyra undir áhrifum eit- urlyfja. Paul Smith, 19 ára, missti stjórn á VW Golf-inum sínum með þeim afleiðingum að Lauren Charlton, 17 ára farþegi, kafnaði í belt- inu sínu en bíllinn endaði á toppnum. 28 ára ófrísk kærasta Pauls missti fóstrið og vinur hans, Ben Hodge, missti handlegg í slysinu. Auk fangelsisdómsins missti Paul ökuréttindin í þrjú ár. júHííiMmxár . Iggjgf' ■:4> ;f- 18 Leikur endaði með morði Fimmtán ára skóla- strákur var myrtur á skólalóð í Austur-London í síðustu viku. „Ekki láta mig deyja," voru síðustu orð hins vinsæla Kiyans Prince er hann gaf upp öndina fyrir framan vini sfna. Lögreglan telur að leikslagur milli Kiyans og annars stráks hafi farið úr böndunum og endað með því að drengurinn, sem flúði af vettvangi, stakk Kiyan með hníf í magann. Kiyan átti enga óvini og var afbragðs fótboltamað- Morð að hætti samúræja Leit stendur yftr að morð- ingja sem notaði sverð til að ; drepa einn og særa annan í Bretlandi. Lögreglan telur hina grimmilegu árás tengj- ast stríði dópsala. Garth Muir var drepinn á heimili sínu og annar maður, James,: var stunginn þegar hann ætlaði að hjálpa Garth. Ná- grannar sáu tvo hvíta menn um tvítugt hlaupa frá morð- staðnum en morðvopnið var skilið eftir. Bæði fórnar- lömbin voru um þrítugt. Sally Anne Bowman var aðeins 18 ára þegar hún var myrt fyrir utan heimili sitt á síðasta ári. Sally Anne hafði getið sér gott orð sem fyrirsæta og var kölluð hin „nýja Kate Moss“. Morðingi Sallyar hefur aldrei fundist en hann er talinn hafa ráðist á nokkrar aðrar konur. Móðir Sallyar bað alla karlmenn í bænum Croydon að mæta í DNA-rannsókn sem bar þó engan árangur. HVER MYRTI FYRIRSÆTUNA SALLYANNE? Lögreglan hefur boðið þeim sem veita upplýsingar sem geta leitt til handtöku á morðingja Sally Anne Bowman 40 þúsund bresk pund. Fyrirsætan Sally Anne var aðeins 18 ára þegar henni var nauðgað og hún myrt með köldu blóði með hnífs- stungum í Croydon í Bretlandi. Lögreglan var kölluð til þann 25. september 2005 klukkan 06:30 að Blenheim Cres, en þar átti Sally Anne heima. Lík hennar fannst hálfnakið á gangstéttinni fyrir utan heimili hennar. Lítíð hefur gengið í rann- sókn lögreglunnar en talið er að árásarmaðurinn hafi ráðist á nokkrar aðrar konur. Á djamminu kvöldið áður Sally Anne hafði farið út að skemmta sér með systur sinni og vinkonum kvöldið fyrir morðið. Þær skemmtu sér á Lloyds Bar áður en þær fóru saman heim til einnar þeirra. Stuttu síðar tók Sally Anne leigubíl niður í miðbæ aftur en fékk svo far með fýrrverandi kærasta sín- um heim. Rétt eftir að hann hafði keyrt í burtu hefur morðinginn látíð til skarar skríða. Taskan minjagripur um fórnarlambið Lögreglan telur að morðingi Sallyar sé á milli tvítugs og þrítugs, vel byggður með stutt döldct hár. Hann er talinn hafa verið klæddur í dökkar gallabuxur og síðerma bol. Eftír að hafa skilið Sally Anne eftir til að deyja tók morðinginn Prada-handtösku hennar en lögreglan telur að hann haft hirt dót henn- ar til að eiga minjagrip um fómariamb sitt. Stuttu fyrir morðið var ráðist á 36 ára konu í nágrenninu. Hún hafði stöðvað bíl sinn til að hringja þegar karlmaður kom arkandi í áttina til hennar með hníf í hendi. Konan rétti honum strax tösku sína en maðurinn barði hana utan undir svo hún lá í götunni og hljóp svo í burtu með töskuna. Ekki var meira en hálfúr kílómetri á milli staðanna þar sem þessi árás var framin og þar sem Sally var myrt. Laus og stórhættulegur Sex mánuðum eftir morðið var Hinn grunaði Teikning af morðingjanum en lögreglan telurað hann hafi ráðist d nokkrar aðr- ar konur í nágrenninu. lögreglan engu nær en birti nýja teiknaða mynd af morðingjanum. Myndin er teiknuð með hjálp konu sem varð fyrir árás í Purley Cross árið 2001 en lögreglunni hefur tekist að tengja árásimar tvær saman. í Purley Cross réðst maður að konu í síma- klefa og beraði sig íyrir henni með kynferðislegum tilburðum. Hann reyndi að opna sftnaklefann en þeg- ar það tókst ekki hljóp hann í burtu. „Það em núna sex mánuðir síðan Sally Anne var drepin og við verðum að finna morðingjann sem fyrst," sagði yfirmaður rannsóknarinnar þegar myndin var birt. „Ég bið alla um að gefa sér tftna til að skoða þessa teikningu. Er þetta einhver sem þú kannast við? Þessi maður gætí verið ósköp venjulegur maður og hefur jafnvel aldrei átt í útístöðum við lögregluna. Hann hefur þó dökka hlið á sér og er stórhættulegur." Fædd á sýningarpallinn Þótt Sally Anne hefði aðeins verið 18 ára þegar hún lést hafði hún þeg- ar getið sér gott orð sem fyrirsæta. Ljósmyndari sem starfaði með henni lýstí henni sem afar fagmannlegri og skemmtilegri stúlku. „Ég kynntíst Sally á Swatch Altematíve-tískuvik- unni í Spitafields í London í mars 2005. Ég og nokkrir aðrir ljósmynd- arar kepptumst um að ná athygli Sallyar. Þessi stelpa var ekki aðeins með fallegt andlit heldur var hún fædd til að ganga á sýningarpallin- um. Hún var draumur allra ljós- myndara því hún gat selt öll föt sem hún mátaði." Gekkvel sem fyrirsæta Ferill Sally Anne sem fýrirsætu var á fleygiferð upp á við þegar hún var myrt. Hún hafði nýlega flutt inn í glæsilegt hús í flottu hverfi, beint á móti EastEnders-leikkonunni June Brown. Hún gekk í listaskóla í Croydon en úr skólanum hafa stjömur eins og Katíe Melua útskrif- ast. Sally vildi hins vegar feta í fótspor fyrirmyndar _ sinnar, ofurfyrirsætunnar Kate Moss, sem einnig er frá Croydon. Sally lifði ekki til að sjá feril átrúnaðargoðs síns falla niður á við eftir eiturlyfjaskandal og ástar- samband við krakkhausinn Peter Doherty. Stuttu áður en Sally lést Sally Anne Bowman SallyAnne hafði faríð út að skemmta sér með systursinni og vinkon- um kvöldið fyrir morðið. sagði hún drauminn að hitta Kate. „Það væri frábært ef einhver myndi lfkja mér við Kate Moss því hún er svo æðisleg," sagði Sally og hélt áfram. „Ef ég gætí hitt hana myndi ég deyja. Ég er alltaf svo stressuð þegar hönnuðimir velja sér fyrirsætur en sem betur fer virðist ég vinsæl hjá nokkmm," sagði Sally Anne. Næsta Kate Moss Þeir sem þekktu Sally segjahana hafa verið hressa og hamingjusama stúllcu. Eigandi módelskrifstofunnar sem Sally hafði samning við sagði hana hafa haft heiminn við fætur sér. „Hún var hress og alltaf svo góð við alla," sagði Peter Kaminski hjá Pulse Model-skrifstofunni. „Ég var eyði- lagður þegar ég heyrði fréttimar af dauðsfalli hennar. Hún var svo falleg og fædd fyrirsæta. Við trúðum því að hún yrði næsta Kate Moss." Lögreglan hefur hvorki fúndið tandur né tetur af tösku Sally Anne, farsímanum hennar og vegabréfinu sem var í töskunni. Morðvopnið hef- urheldur ekki fundist. „Sally og vin- konur hennar virðast hafa farið út að skemmta sér eins og á öðmm laugar- dagskvöldum. Við vitum hins vegar ekkert hvað gerðist á milli klukkan 2 og 6 um morguninn. Þetta er hrika- legt mál og afar sorglegt fyrir fjöl- skyldu hennar sem syrgir sárt." Ræðst hann á hinar dætur mínar? Móðir Sallyar, Linda Bowman, er dauðhrædd um að morðinginn ráð- ist á þijár eftirlifandi dætur hennar. % % Linda, sem bað um stærstu DNA- rannsóloi sem íbúar Croydon hafa gengist undir, hefúr lýst hryllilegu lífi sínu eftir að hafa misst dóttur sfna í hendur kaldrifjaðs morðingja. „Hann er þama enn þá og ég er hrædd um að hann ráðist á dætur mínar, Danielle, Nicole og Michelle. Við vitum ekki nema hann hafi haft Sally á heilanum eða var hún ein- faldlega á röngum stað á röngum tftna? Mun hann ráðast á hinar dæt- ur mínar? Síðustu fimm mánuðir hafa verið ömurlegir. Ég sakna Sally Anne af öllu hjarta. Ég elskaði hana og mun alltaf gera. Eg mun aldrei jafiia mig á þessu nema ég vakni af þessari ömurlegu martröð." Risastór DNA-rannsókn Fjöldinn allur af karlmönnum í Croydon mættu til að láta taka DNA- sýni úr sér. Málið var afar umdeilt og margir neituðu að koma. „Ef þið viljið ekki gera þetta fyrir okkur hugsið þá um sjálfa ykkur og fjöl- skyldu ykkar, dætur ykkar og systur. Morð- inginn er þama útí en mun ekki geta falið sig að eilífu," sagði Linda. Lögregl- an sagðist gruna alla sem neituðu ------ Kate Moss Sally Anne dýrkaði ofurfyr- irsætuna. Hún lifði ekki til að sjá feril Moss falla niður á við eftir fikniefnanotkun. að láta rann- saka sig. Rann- sóknin skilaði þó engu. Tveir bræöur voru dæmdir í 62 ára og 54 ára fangelsi fyrir mannrán, fjárkúgun og morö. Myrtu eldri hjón Fangelsisvist tveggja manna sem myrtu bresk hjón var fram- lengd í síðustu viku. Jorge Real Si- erra, 56 ára, var dæmdur í 62 ára fangelsi en bróðir hans, sem er fer- tugur, var dæmdur í 54 ára fangelsi af dómara á Alicante á Spáni. Hjón- in, Anthony og Linda O’Malley, höfðu skellt sér til Benedorm í leit að draumahúsinu sínu. Hjónin hurfu í september árið 2002. í ljós hefur komið að hjónin höfðu svar- að auglýsingu bræðranna en þegar þau komu til að skoða húsið var þeim rænt af bræðmnum og læst inni í kjallara. Þaðan létu bræðurn- ir hjónin millifæra peninga inn á reikning sinn. Talið er að bræðurn- ir hafi myrt hjónin þar sem þeir vissu ekki hvernig þeir ættu að losa sig við þau. Þeir kyTktu Anthony en O’Malley-hjónin Hjónin voru I leit að draumahúsinu á Spáni. svo virðist sem Linda hafi fengið hjartaáfall. Lík þeirra fundust undir kjallaranum. Bræðumir vom hand- teknir eftir að hafa þóst vera leynilögreglumenn og reynt að plata meiri peninga út úr fjölskyldu hjónanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.