Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Blaðsíða 44
56 FÖSTUDAGUR 26. MAl2006
Menning DV
gJB,
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
l mm ? , • - ;
jHBHHaHHBHBBHHHHHMBHBBai
p t.
;v •■;«««---. % s
wmmmmmmmmammam^mm
Friðþæging á
filmu
Metsöluskáidsagan Frið-
þæging eða Atonement
eftir Ian McEwan verð-
ur kvikmynduð í sumar.
Keira Knightley og James
McAvoy,sem var í Band
of Brothers og sjónvarps-
seríunni Shameless, verða
í aðalhlutverkum. Sagan
hefst á þriðja áratugnum og
segir frá þrettán ára stúlku
sem ásakar kærasta systur
sinnar um nauðgun - með
ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum. Sagan kom út fyr-
ir tveimur árum í þýðingu
Rúnars Helga Vignissonar
hjáBjarti.
í sögunni er lýst upplif-
un unga mannsins á flóttan-
um frá meginlandinu um
Dunkirk og byggir Ian þar á
minningum föður síns, en
sá kafli verksins er hrylli-
leg lýsing á hernaði. Er nú
leitað að svæði í suðurhér-
uðum Bretlands sem geta
komið í stað Normandy.
Gert er ráð fýrir að þorp-
ið Redcar verði valið og eru
samningar á lokastigi. Það
þarf um þúsund aukaleik-
ara í breska herinn á flótta.
Trans dans-samstarfið var í upphafi sett í gang til að auka flæði minni dansflokka
um Evrópu. íslensi dansflokkurinn hefur notið góðs af því frá upphafi en um helg-
ina sýna þrír dansflokkar í Borgarleikhúsinu á vegum Listahátíðar.
Dansflokkar í heimsókn
wmm
Revíuraldrei
vinsælli
Síðastasumarvoru
sumarrevíur með vinsæl-
asta móti í Danmörku. Ný
kynslóð listamanna fann
lausbeislað og frjálst form
sem gat nánast inniborið
allt, bjánahúmor, sérvisku-
brandara og pólitískt háð.
Það fóru yflr þrjú hundr-
uð þúsund miðar á revíu-
sýningar um allt land og er
2005 stærsta ár í danskri
revíusögu. Jacob Morild
hefur í fjögur sumur ver-
ið í revíu í Esbjerg og bæði
leikið og skrifað texta. Hann
segir styrk revíunnar liggja í
aðferðinni. Hún ráðist ekki
beint á skotspóninn held-
ur leiki í kringum þau efni
sem séu til meðferðar. Ditte
I-Iansen hjá Cirkusrevy segir
þetta erfitt og krefjandi list-
form sem heimti sterk tök á
áhorfandanum.
Sumarrevíurnar dönsku
eiga sér 157 ára sögu sem
hófst á Casino-leikhúsinu
í Höfn. Þegar þær voru
flestar á sjötta áratugnum
voru þær á milli fjörutíu og
fimmtíu sumar hvert en eru
nú vel á annan tuginn.
Danskir revíumenn
segja eina ástæðu þess að
formið nýtur aukinna vin-
sælda vera að sjónvarp hef-
ur látið ádeilu og skop vera
en slíka skemmtun vanti í
samfélagið þegar deiiumál-
in séu stór og mikilvæg.
Trans Dance-verkefnið varð
til fyrir þremur árum og er nú að
syngja sitt síðasta. Á þess vegum
hafa margir smærri dansflokk-
ar Evrópu farið Ianda og borga á
milli og sýnt verk sín. Sumir hafa
slengt sér í samstarf og sett upp
nýsmíðar, ein þeirra er sú merki-
lega sýning We are all Marlene
FOR sem íslenski dansflokkurinn
vann með slóvenskum listamönn-
um og Ernu Ómarsdóttur. Þá hafa
á vegum verkefnisins komið hing-
að erlendir flokkar og glatt ís-
lenska áhorfendur með mörgum
frábærum sýningum. Alls voru
átta þjóðir aðilar að samstarf-
inu og var Listahátíð með í því frá
upphafi. Þannig var Marlene sýnd
í tvígang í Tramways í Glasgow
um síðustu helgi og fer þaðan til
Gautaborgar-. Ferðum með verkið
lýkur í haust.
——
Nú um helgina verða þrjár er-
lendar danssýningar í Borgarleik-
húsinu: frá Belgíu, Póllandi og
Danmörku. Þetta eru allt saman
nútímadansverk. Frændur okkar,
Danir, ríða á vaðið en á laugardag
verður á nýja sviði Borgarleikhúss-
ins verldð Obstructions eftír Palle
Granhöj en flokkurinn ber heití
hans, Granhöj Dans.
Sviðið er risastór ullarferhym-
ingur, umkringdur ljósalömpum
sem sveigjast og breytast. Yrkisefh-
in eru erótík, daður, átök og þrá.
Granhöj Dans kemur frá Árós-
um í Danmörku og er nútímadans-
flokkur sem þekktur er um allan
heim. Flokkurinn notar sína tækni
við danssköpun og flutning sem
þróuð er af leiðtoganum og kall-
ast mótstöðutækni og er útgangs-
punktur hverrar sýningar flokks-
ins. Hefst sýningin kl. 17.
BhHh9Hhhí
Síðar um kvöldið verður
belgískur flokkur á ferð á stóra
sviði, Compagnie Mossoux-
Bonté, Belgíu og kallast þeirra
verk Hélium. f súrrealísku and-
rúmslofti og ríkulega búnu
kröftugu myndmáli kljást dans-
ararnir við kynferði, trúarbrögð
og skemmtanaiðnaðinn, sem
einkennir nútímasamfélagið.
Kompaníið hefur aðsetur í Brus-
sel í Belgíu og hefur getið af sér
fjölda sviðsverka og kvikmynda
síðustu tvo áratugi. Með verkum
sínum kanna höfundarnir Ni-
cole Mossoux og Patrick Bonté
skuggahliðar tilfinninganna.
Þau blanda saman leikhúsi og
danslist og vilja þannig skapa
nýtt tjáningarform, sem byggir
á hreyfingum en endurspeglar
leikræna nálgun.
Þann 28. maí á sunnudegi lýk-
Forn tímarit koma enn út
Tvö af eldri og virðulegri tíma-
ritum landsins eru enn á ferli,
Skírnir sem Hið íslenska bók-
menntafélag gefúr út, og Saga,
tímarit Sögufélagsins. Bæði eru
þau helguð vísindalegum ritsmíð-
um og hafa um langt árabil átt í
vök að verjast en þrauka þrátt
fyrir fækkandi áskrifendur. Vor-
heftin litu dagsins ljós í þessari
viku. Skírnir kemur nú út í fýrsta
sinn undir ritstjórn Halldórs Guð-
mundssonar en ritstjórar Sögu
éru þau Hrefna Róbertsdóttir og
Páll Björnsson.
Skírnir er 256 síður að stærð.
Þar er helst nýmæla bréf frá Hall-
dóri Laxness til Gunnars Gunn-
arssonar sem bregður ljósi á vin-
áttu þessara skáldjöfra. Einar Már
Jónsson skoðar Landnámsbálk
Gunnars og Valur Ingimundarson
fjallar um síðasta kaflann í varn-
arsögu Kanans hér á landi. Mar-
grét Jónsdóttir segir af rannsókn
á stöðu tungumála í menntakerf-
inu og Ármann Jakobsson grein-
ir Survivor-þættina. Guðni Elís-
son er enn hugfanginn af DV og
stefnir í tveggja hluta ritgerð um
ásýnd blaðsins. Mun sú seinni
birtast í haustheftí Skírnis. Auð-
mýkt frá heimspekilegu sjónar-
horni er til skoðunar og fjaflað um
skáldsögur Steinunnar Sigurðar-
dóttur og Illan læk Jónasar Hall-
grímssonar. Þá eiga skáldin Jón
Kalman Stefánsson, Einar Kára-
son, Guðmundur Andri Thorsson
og Matthías Jóhannesen tillegg í
heftinu og er það nýlunda. NyhU-
hópurinn er kynntur.
í Sögu kennir margra grasa-
og eru aðalgreinar fjórar: Þór
Whitehead greinir afstöðu ís-
lenskra stjómvalda til hlutieysis
mUU stríða, Tinna Grétarsdóttir
og Sigurjón Baldur Hafsteinsson
greina frá kvikmyndasýningum á
vegum stórveldanna hér á landi
í kalda stríðinu. Sigrún Pálsdóttir
segir af útgáfu á norrænum text-
um í Bretlandi á nítjándu öld og
Kristín Loftsdóttir greinir ímynd
Afríku í íslenskum textum frá
miðöldum.
AðferðafræðUegar greinar eru
tvær: Svavar Hávarðarson fjallar
um gildi persónulegra heimilda
og Einar Hreinsson um tengsla-
net embættismanna á 18. og 19.
öld. Sigrún Sigurðardóttir rit-
dæmir þrjár ljósmyndabækur.
Pétur Ármannsson minnist Harð-
ar Ágústssonar. Fleira efni er í rit-
inu sem er 264 síður að stærð.
SAGA
, ■
ur svo þessari dansveislu með sýn-
ingu Dada von Bzdúlöw Theat-
re frá Póllandi á Nýja sviði kl. 20.
MagnoUa heitir verkið og er eftír
Katarzyna Chmielewska og Leszek
Bzdyl. Það gerist í landi í Mið-Evr-
ópu þar sem veðurfarið er stórbrot-
ið og ófýrirsjáanlegt. Fólkið í land-
inu er vondapurt og niðurdregið,
en heldur sér á lífi með stöðugum
flaumi dagdrauma.
Dada von Bzdúlöw Theatre
hefúr bækistöðvar sínar í Gdansk
í PóUandi. Sýningar flokksins eiga
rætur sínar að rekja tíl leikhúshefð-
arinnar, en tjáningarformið sem
hann notast einna helst við er nú-
tímadans. Flokkurinn var stofii-
aður árið 1993 og er sjálfstæður
hópur atvinnudansara og leikara
sem vinna verk sín í samstarfi við
menningarstofnanir og félög.