Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2006, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 26. MAl2006
Fréttir DV
Jakob Bjarnar Grétarsson
• Menningarhátíð
menningarknæpunn-
ar Grand Rokks hefst
næstu helgi. I lok janúa
seldi hinn vihsæli vert
Karl Hjaltested knæp-
una en er þó ekki fjarri
góðu gamni. Sett verð-
ur upp leikrit í tilefni
hátfðarinnar sem Guðjón Sigvalda-
son, einfarinn í íslensku leikhúslffi,
setur upp og þar verður einmitt meðai
leikenda téður Karl. Að öðru leyti sam-
anstendur leikhópurinn af fastagest-
um Grand...
• Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs
er afar áhugasamur um Ólinu Þor-
I varðardóttur fýrrver-
andi skólastjóra á ísa-
firði og afdrif hennar.
Hami skúbbaði því
að Ólína fengi ígildi
þriggja ára starfsloka-
! samnings á vef sín-
um. Ólína setti fram
athugasemdir á vef
Reynis við if éttaflutn-
inginn sem Reynir og svaraði. Hann
vildi fyrirbyggja að með honum bærð-
ist andúð á jafii ágætri konu og lýsti
yfir aðdáun sinni á mörgu sem Ólína
hefði gert. Næstur til að setja inn at-
hugasemd á vefinn er svo einhver
Gunni sem segir stutt og laggott: „Vilj-
iði ekki bara fá ykkur herbergi?"...
• Þekkterað .
Ifannesi Hólm-
steini Gissurarsyni
er haldið markvisst
ffá sviðsljósinu í að-
draganda kosninga.
Vaihallarmenn þeir
sem stýra kosninga-
baráttunni fyrir
Sjálfstæðisflokk-
inn meta það sem svo að Hannes espi
menn upp til andstöðu fremur en laði
að. Og oft var þörf en nú, á hinum
bleiku tímum, er nauðsyn. Hins veg-
ar virðist Samfylkmgin fylgja fordæmi
Sjálfstæðisflokksins og passi sig á að
styggja hvergi hinn ofurviðkvæma lýð.
Andskotí Hannesar, Mörður Áma-
son, er alveg horflnn af sjónarsviðinu
og hefur hann ekki skrifað á síðu-sína
síðan 4. maí...
• í Neslistanum,
kosningablaði fé-
lagshyggjuflokk-
anna á Seltjamar-
nesi, var að flima
meinlega prent-
villu. SivFriðleifs-
dóttir heilbrigðis-
málaráðherravar
sögð hafa verið í
bæjarstjóm Sel-
tjamamess frá ár-
inu 1900 til 1994. Margir em þeirrar
skoðunar að aldrei sé nóg þegar Siv er
annars vegar en þetta er fulllangur og
farsæll ferili fyrir flestra smekk...
• Þeir eru kátir
núna á Bylgj-
unni með út-
varpsstjórann,
krúnerinnog
kvennagullið
Bjarna Arason
í broddi fylk-
ingar. Ogmega
veraþað.
Nýjásta ijöl-
miðlakönnun
Gallups leiðir það í ljós að uppsöftiuð
hlustun á útvarpsstöðina er umtals-
vert meiri en á Rás 2 - meiri en nokkm
sinni. Bylgjan fór yfir Rás 2 fyrir ári og
vom það söguleg tíðindi. Rás 2 tókst
að fara yfir í nóvember en það reyndist
skammgóður vermir. Hrun í hlustun í
nýrri könnun og Rás 2 mælist nú með
52 prósent gegn 59 prósentum Bylgj-
unnar...
Verkefnið „Pompei norðursins“ í Vestmannaeyjum er komið i fullan gang á ný. Ætlunin
er að grafa upp 7 til 10 hús við götuna Suðurveg sem fór undir hraun í gosinu 1973 og
gera úr henni gosminjasafn. Kristín Jóhannsdóttir er verkefnisstjóri og segir að grafið
verði alla daga vikunnar.
Uppgröftur Stórvirkar
vinnuvélar vinna við að
grafa götuna upp.
-
Nú eru liðin rúm 30 ár frá gosinu og minningin sem og ummerki
hinna gífurlegu spjaíla sem það vann á eigum Eyjabúa eru smám
saman að mást út, en hraun og aska gossins grófu undir sig á
fjórða hundrað hús og byggingar. Stórar gröfur vinna nú við að
ryðja hrauni og vikri af götunni Suðurvegur og þegar því lýkur
verða húsin við götuna grafín út í höndunum. Ferðamönnum og
gestum verður gefinn kostur á að vera með í uppgreftrinum og fá
viðurkenningarskjal fyrir.
„Verkefni okkar hefur vinnuheit-
ið Pompei norðursins og er hugsað
til þess að hlúa að gosminjunum og
gera þær sýnilegri," segir Kristín Jó-
hannsdóttir menningar- og mark-
aðsfulltrúi Vestmannaeyja en hún er
verkefnisstjórinn. „Segja má að hér
sé á ferðinni einstakt verkefni í nú-
tímafomleifauppgreftri, sem á sér
fáar, ef einhverjar hliðstæður."
7-10 hús grafin upp
Að sögn Kristínar hófust fram-
kvæmdir seinni hluta júnímánaðar í
fyrra en fyrirhugað er að grafa upp 7-
lOhússemfóruundirvikur. „Þettaer
vandasamt og metnaðarfullt verkefni
sem unnið verður að næstu árin eftir
því sem fjárframlög duga en við áætl-
um að verkið taki íjögur til flmm ár,"
segir Kristín. „Þegar er farið að sjást
í fyrsta húsið sem stóð við Suðurveg
25 og næsta skref er að grafa niður á
Suðurveg og með fram götunni."
Vekur athygli
Verkefnið er nú þegar farið að
vekja mikinn áhuga fjölmiðla, ferða-
manna og vísindamanna hérlend-
is og erlendis. „Það er enginn vafi
að þessar framkvæmdir eiga eftir
að skipta sköpum fyrir ferðamanna-
iðnaðinn hér í Eyjum," segir Krist-
ín. „Ferðamenn geta ekki eingöngu
fylgst með framkvæmdunum, þeir
geta einnig tekið þátt í þeim. Ferða-
mönnum býðst nú að taka þátt í
framkvæmdunum, það er að hjálpa
til við verkið og fá það skjalfest með
viðurkenningarskjali." Á staðnum
verða einnig leiðsögumenn sem
fræða gesti og gangandi um gossög-
una og annað sem menn vilja vita
um Vestmannaeyjar. Ög áhuga-
samnir geta fylgst með framkvæmd-
unum á pompeinordursins.is.
Gosið 1973
Eldgosið í Vestmannaeyjum árið
Gamlar slóðir Viðar Einarsson fyrrverandi
íbúi eins húsanna við Suðurveg ásamtsyni
slnum á vettvangi.
1973 telst án efa til stærstu náttúru-
hamfara íslandssögunnar. Gosið
hófst þann 23. janúar 1973 á Heima-
ey, einu byggðu eyjunni í Vestmanna-
eyjaklasanum og stóð yfir í rúmlega 5
mánuði. íbúarnir voru fluttir í burtu
í skyndi og á tímabili var mikil óvissa
um það hvort nokkurn tímann yrði
aftur mannabyggð í Eyjum. Fregnir
af gosinu, sem eyðilagði hluta byggð-
arinnar og breytti landslaginu í Vest-
mannaeyjum svo um munaði, fóru
um heimsbyggðina og þegar því lauk
flykktust ferðamenn og vísindamenn
alls staðar að úr heiminum á staðinn
til þess að sjá með eigin augum hvers
náttúruöflin eru megnug.
Kristín Jóhannsdóttir Ferðamenn geta
tekið þátt í uppgreftrlnum.
Vekur athygli Fjöldi ferðamanna og
heimamanna fylgistafmikilli athygli með
gangi mála.
Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússtjóri segir leikhúsinu þröngt sniðinn stakkur
Spennandi bræðrum slegið á frest
„Söngleikir eru dýrasta formið.
Við byrjum á Sitji guðs englar, fjöl-
skyldusýningu, og þegar við gerðum
okkur grein fyrir umfanginu kom í
ljós að við ráðum ekki við tvær svo
stórar sýningar," segir Tinna Gunn-
laugsdóttir Þjóðleikhússtjóri.
DV greindi frá því fyrir nokkru að
Þjóðleikhúsið ætlaði að setja upp á
næsta leikári nýjan söngleik eftir þá
bræður Gunnar og Hallgrím Helga-
syni - Gunna diskó og Hallgrím
pönk. Leiknum er ætlað að fjalla um
átök milli diskós og pönks og byggja
á lögum frá um 1980. Tinna segir að
þótt söngleik bræðranna hafi verið
slegið á frest fari því fjarri að hann
hafi verið sleginn alfarið af.
„Við erum að vinna áfram að
honum. Við viljum gefa fólki tæki-
færi á að þróa hann. Viljum ekki
hraða sköpunarferlinu um of. Þeir
eru spennandi bræðurnir. Hall-
grímur sem höfundur er margbú-
inn að sýna sig og sanna. Gunnar
að sama skapi sem leikstjóri. Hann
hefur gert víðreist og sett upp í
Finnlandi og hér heima, söngleiki
ætlaða ungu fólki. Við viljum gjarn-
an höfða til ungs fólks," segir Þjóð-
leikhússtjóri.
Tinna fer ekki í grafgötur með að
Þjóðleikhúsinu er þröngt sniðinn
stakkur miðað við stærðargráðu og
umfang. Styrkur sem leikhúsið þigg-
ur frá ríkinu, ríflega 5Ö0 milljónir á
ári, hrekkur til fyrir rekstrarkostnaði
og launum þeirra 200 sem starfa við
húsið. En engum framleiðslukostn-
aði og þá er eins gott að hitta á sýn-
ingar sem ná tali.
Sitji guðs englar verður fyrsta
uppfærsla Þjóðleikhússins á næsta
leikári. Hún byggir á samnefndri
bók Guðrúnar Helgadóttur. Illugi
Jökulsson skrifar leikgerð, Þórarinn
inni. En þeim
mun ætlað að
setja á svið
Bakkynjurnar
eftir Evrípíd-
es.
jakob@dv.is
Tinna Gunnlaugsdóttir
Reynir að láta verkefna-
skrána rima við þá
fjármuni sem til eru.
Eldjárn semur söngtexta og Jóhann
G. Jóhannsson gerir tónlistina. Sig-
urður Sigurjónsson leikstýrir. 12
leikarar taka þátt í sýningunni og
augljóslega valinn maður í hverju
rúmi. Annars segir Tinna verkefna-
skrána ekki verða kynnta formlega
fyrr en í haust.
DV heyrir hins vegar að í skoð-
un séað taka upp Fögnuð eftir Pint-
er auk þess sem nýtt verk eftir Ádísi
Thoroddsen - „Amma djöfull" - í
leikstjórn Ágústu Skúladóttur sé í
burðarliðnum. Ágústa er einnig
með bræðsluverk í gangi þar sem
meðal annarra Sigurður Skúlason
mun leggja í púkk. Að auki eru svo
grísku snillingarnir Þanos Vovolis
og Giorgos Zamboulakis,
mennirnir á bak við t
hina rómuðu ._________________x.
sýningu Mýr- -jga Gunnar og Hallgrímur Þjóðleikhússtjóri segirþá bræður
arljós, á leið- spennandi þótt söngleik þelrra sé frestað um ár.