Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 7

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 7
í Suður-Ameríku nemur símaeign, og er þá átt við stofnlínur, frá um 4,5 prósentum í Mexíkó upp í 8,59 prósent í Argentínu. Tölurnar í Austur-Evrópu eru 7,8 prósent í Póllandi, 8,1 prósent í Ungverjalandi og 13,6 prósent í Tékkóslóvakíu. Á íslandi er hlutfallið 46 prósent sem er með því mesta í Evrópu og reyndar í heimi; hærra en í Japan, á Bretlandi og Nýja Sjá- landi. í flestum þeim löndum sem verið er að einkavæða símaþjónustu er hún ákaflega vanþróuð og efnahagur landanna þolir ekki þá fjárfestingu sem til þarf. Einkavæðing í þessum ríkjum er talin nauðsynleg til að ná í útlenda tækniþekk- ingu og fjármagn. Pólitísk trú Frá miðjum áttunda áratugnum hefur frjálshyggja eða auðhyggja rutt sér til rúms í efnahagsmálum. Þær kenningar ganga í stuttu máli út á að ríkisgeirinn sé í eðli sínu einokunarfyrir- brigði (og þar með neikvætt) sem lítt taki tillit til þarfa viðskiptavina og kosti auk þess skattgreiðendur drjúgan skilding. Einkageir- inn sé hins vegar framtakssamur og frum- legur, tryggi hagvöxt og hagkvæmni með samkeppni. Einstaklingurinn fær, óháð þörfum sínum, það sem hann eða hún getur borgað fyrir. Önnur skipan bjagar samkeppnina sem auðvitað dregur þá úr hagkvæmni og hag- vexti. Símaþjónusta, innanlands ódýrust á Islandi Játi menn ekki pólitískar kennisetningar þurfa þeir samt að vita hvort staðreyndirnar sýni að einkavædd símaþjónusta sé hag- kvæmari en opinberar stofnanir. Slíkur samanburður er gríðarlega erfiður. Tölur duga oft ekki til eða eru ekki saman- burðarhæfar. Hins vegar má notast við ýmsar vísbend- ingar frá viðurkenndum alþjóðlegum aðil- um. Lítum á nokkrar þeirra frá OECD, Efnahags og framfarastofnuninni, en Islend- Philip Bowyer. ingar eru vitanlega aðilar að henni. Ein leið til samanburðar er að bera sam- an símaeign (stofnlínur) í löndum OECD. Samkvæmt tölum hennar er símaeign mest í Svíþjóð, 66 prósent, þvínæst í Sviss og Dan- mörku 54 prósent, en í öllum þessum lönd- um er símaþjónusta á vegum hins opinbera. Hæsta einkarekna símafyrirtækið á listanum er í Kanada með 51 prósent. ísland hefur hlutfallið 46 prósent og er mjög ofarlega á listanum. Fyrstu tvö löndin sem eru neðan við meðaltal OECD-ríkj- anna, sem nemur 41,37 prósentum, eru Jap- an með 40,7 prósent og Bretland með 38,8 prósent, en þessi tvö lönd eru oft nefnd sem dæmi um einkavæðingu. Enn erfiðara er að bera saman vöxtinn í símaeigninni þar sem hann er auðvitað háð- ur því hvar menn vilja byrja að bera saman. Þrátt fyrir það virðist vera sem að vöxturinn hjá opinberum símfyrirtækjum í Frakkland, írlandi og Noregi sé meiri en hjá hinum einkavæddu. Tölurnar eru: Frakkland 7,96 prósent írland 7,4 prósent Noregur 6,7 Japan 2,9 Bretland 4,2 SÍMABLAÐIÐ 5

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.