Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 26

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 26
Hjónin Valgerður Andrésdóttir og Ögmundur Jónasson, ásamt Ævari Kjartanssyni og Ól- afi Tómassyni á 50 ára afmæli BSRB í Borgarleikhúsinu. Þráðlaus naflastrengur Ef „Farsíma-fríkarnir“ spá rétt munum við í framtíðinni fá úthlutað einka símanúmeri við fæðingu rétt eins og kennitala er okkur nú gefin þegar við komum í þennan heim. Þetta er hægt því öll fjarskipti verða þráðlaus og símtækið verður eins sjálfsagt og armbandsúrið er í dag. Farsíminn mun um aldamót kosta jafnlítið og hefðbundinn sími kostar í dag og verða að- eins 270 gr. á þyngd. Þetta mun að sjálfsögðu raska verulega „einkalífi“ þegar hægt verður að ná sambandi við hvern sem er, hvar sem er. Þeir eru margir sem dá það hreyfifrelsi sem fæst með fullkomnum fjarskiptum en hugsum þá til þéttsetins hljómleikasalar eða fjölmenns fundar þar sem þú situr með þinn nýja síma og þá miklu símagleði sem landanum er gefin. Þessi dýrkun á hreyfifrelsinu hlýtur að knýja fram nýtt hegðunarmynstur sem t.d. bannar símanotkun á fundum, í kvikmyndahúsum og við tónleikahald. Erlendis eru nú þegar veitingastaðir þar sem maður skilur símann eftir í fatahenginu. Þar er símanum svarað og gesturinn fær að vita hver hafi hringt. Ef til vill verður lausnin svipuð og með reykingabannið, á ákveðnum svæðum má hringja og annars staðar ekki. (Lauslega þýtt og stílfært úr norsku) 24 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.