Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 28

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 28
F.v.: Jóna Jensen, Halldóra Magnúsdóttir, Magnea Sörensen, Guðrún Þorvalds- dóttir og Sigríður Helgadóttir. Þakkir Við viljum koma á framfæri þökkum til Pósts og síma og Félags íslenskra síma- manna fyrir veglegar gjafir og þann sóma er okkur var sýndur með sérstöku þakkarskjali í tilefni starfsloka okkar um sl. áramót. Einnig eru sérstakar þakkir til starfssystra okkar fyrir höfðinglega veislu og táknræna gjöf er okkur var afhent. Jóna Jensen, Magnea Sörensen, Halldóra Magnúsdóttir, Guðrún Þorvaldsdóttir og Sigríður Helgadóttir. Þakkir til starfsfólks Pósts og síma í tilefni sextugsafmælis míns 20. janúar 1992. Árafjöldann um ég þegi. „Æskan“ við mér hlær! Er þó raunar einum degi eldri í dag en í gær. Aldrei hefir tíminn tafir, telur árin vel. - Þakka af alhug góðar gjafir gleði, vinarþel. Þá skal kveðja þennan daginn, þann sem leið í gær. Gangi ykkur allt í haginn öllum, fjær og nær. Kristjana H. Guðmundsdóttir. Innilegar þakkir færi ég starfsfólki Pósts og síma og FÍS fyrir góðar gjafir og óskir á sextugsafmæli mínu, þann 31. janúar sl. Ögmundur Frímannsson Öllum þeim, sem glöddu mig á afmæli mínu 7. maí s.l. með góðum kveðjum og gjöfum sendi ég mínar innilegustu þakkir. Haraldur Sigurðsson 26 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.