Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 22

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 22
Frá Póst- og símaskólanum Jón Ármann Jakobsson. Ræða skólastjórans, Jóns Ármanns Jakobssonar við afhendingu prófskírteina 15. janúar 1992. Góðir samstarfsmenn. Ég vil fyrir hönd skólans bjóða ykkur vel- komna við þessa afhendingu prófskírteina, sem hefur verið fastur liður í starfsemi skól- ans í rúmlega tuttugu ár. Skólinn var rekinn með svipuðu sniði og undanfarin ár. Reyndar hefur verið meira um sjálfstæð námskeið, má þar nefna meðal annars stjórnunarnámskeið. I febrúar á síð- asta ári var sett upp slíkt námskeið sem var ætlað yfirstjórnendum þessa fyrirtækis. Námskeiðið var haldið í tvær aðskildar vik- ur og var fyrri hlutinn haldinn í febrúar og fram í mars en seinni hlutinn var haldinn allar heilar vikur frá marslokum fram í júní- byrjun. Á þessu námskeiði voru meðal ann- ars tekin fyrir markmið og stefnumótun fyr- irtækis og það verður að segjast að í dag á þetta við. Ef reka á fyrirtæki með hag- kvæmni verða markmið og stefna að vera til staðar. Nú þegar er verið að breyta ýmsum deildum þessa fyrirtækis í árangurseiningar, þá er nauðsynlegt að þessi atriði séu skýr og augljós. Vona ég að þátttakendur á þessum námskeiðum hafi fengið góða innsýn í þessi atriði á námskeiðinu og noti sér hana. Um 130 starfsmenn sóttu þessi námskeið. Á vegum Starfsmannadeildar var á þessu námskeiði haldinn fyrirlestur um starfs- mannastjórnun og þar kom fram að verið er að hanna starfsmannahandbók, sem mun koma út áður en langt um líður. Á þessum námskeiðum var einnig farið í ýmis atriði um uppbyggingu fyrirtækisins Póstur og sími og starfsemi þess og um- hverfi. Einnig voru tekin fyrir markaðsmál og gæðamál sem eru mjög mikilvæg atriði í rekstri fyrirtækja í dag. í seinni hlutanum voru teknir fyrir stjórn- unarstílar, tímastjórnun og starfslýsingar. Tilgangur starfslýsinga skýrður og hvernig á að nota þær til stjórnunar. Tveir hópar hafa verið á námskeiðum fyr- ir millistjórnendur nú í haust. Seinna í vetur verða haldin fleiri slík námskeið. Nú færist stöðugt í vöxt að notaðar séu tölvur við vinnu og til vinnslu ýmissa verka og verkefna og eru þessi tæki að koma á hvert borð. Hugbúnaður eflist stöðugt og meira hægt að framkvæma með honum. Allt þetta krefst námskeiða og kennslu á þessi tæki og hugbúnað. Til þess að skólinn geti uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru til slíkr- ar kennslu í dag voru á síðasta ári keyptar og settar upp í skólanum tölvur sem hæfa þeim hugbúnaði, sem notaður er í dag. Hafa verður í huga að þróunin í þessari tækni er svo ör að tæki og búnaður verða úrelt eftir tiltölulega skamman tíma, því er áríðandi að fylgjast vel með þróuninni. Verið er að taka upp nýtt kerfi í bókhaldi hjá fyrirtækinu, svokallaðan bústjóra og 20 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.