Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 30
Ritgerð 8 ára drengs
Amma er kona sem á engin börn sjálf,
svo henni þykir vænt um litla drengi og
stúlkur sem aðrir eiga.
Afi er karlkyns amma. Hann fer í göngu-
ferðir með litla drengi og þeir tala um trakt-
ora og veiðiferðir.
Ömmur hafa ekkert að gera annað en
vera til. Þær eru gamlar svo þær ættu ekki
að leika sér eða hlaupa hratt.
Þær segja aldrei „Flýttu þér“.
Þær eru oftast feitar en ekki of feitar til
þess að hnýta skóreimarnar hjá krökkum.
Þær eru með gleraugu og klæðast skrítn-
um nærfötum og þær geta tekið út úr sér
tennurnar og gómana.
Ömmur þurfa ekki að vera neitt gáfaðar,
bara að svara spurningum um hversvegna
hundar eiga ekki ketti og afhverju Guð sé
ekki giftur.
Þær tala ekki smábarnamál við mann eins
og gestir gera.
Þegar þær lesa þá hlaupa þær ekki yfir og
þeim er alveg sama þó þær lesi sömu söguna
aftur og aftur.
Allir ættu að eiga ömmu, sérstaklega ef
maður á ekki sjónvarp því að þær eru þær
einu sem hafa tíma.
Þýtt úr ensku: Ásgerður Ingimarsdóttir
Allt má nú reyna
Hjartað í mér er hálfgerður laupur og reyni ég að sjálfsögðu allt til að fá þar bót á. Fyrir
nokkrum dögum fór ég til nálastungulæknis. Hann sagði að nálastungur styrki ekki aðeins
hjartað, ég myndi allur yngjast upp og styrkjast. Þegar ég lá svo í móki með allar nálarnar
þá seytlaðist inn í hugann eftirfarandi:
Fái ég nægar nálarstungur
og nýjar öðlist lífsins myndir,
verð ég kannski aftur ungur,
endurtek svo gamlar syndir.
Sigurður Guðmundsson
28 SÍMABLAÐIÐ