Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 24
Eftirlaunadeild FIS
- fagnar 15 ára afmæli
Föstudaginn 28. febrúar sl. hélt Eftirlaunadeild FIS upp á 15 ára afniæli deildarinnar meö
veglegu hófí í Sigtúni við Austurvöll. Hófíð sóttu hátt í hundrað manns, bæði félagar og
gestir. Veislustjóri var Jón Tómasson, fyrrverandi símstöðvarstjóri. Formaður deildarinnar,
Þóra Timmermann, setti samkomuna og er ræða hennar birt hér í blaðinu. Margar ræður
voru fíuttar Eftirlaunadeildinni til heilla.
Áður en borðhaldi lauk sagði Pétur Pétursson, fyrrverandi útvarpsþulur, frá ýmsum
uppákomum, á léttum nótum, úr bæjarlífínu hér fyrr á árum.
Að loknu borðhaldi sýndu hjónin Hafstcinn Örn Guðmundsson, fyrrverandi varaformað-
ur FIS og kona hans, Aldís Gunnarsdóttir, listdans við mikinn fögnuð veislugesta. Að lok-
um var stiginn dans við undirleik Braga Hlíðberg, harmonikuleikara. Þessi kvöldstund í
Sigtúni var einstaklega ánægjuleg og var Eftirlaunadeildinni til mikils sóma í alla staði.
Ræða Þóru Timmermann
Góðir gestir og félagar!
í kvöld erum við hér samankomin til að
fagna 15 ára afmæli Eftirlaunadeildar Félags
íslenskra símamanna. Til þessa fagnaðar
býð ég ykkur öll hjartanlega velkomin.
Heiðursgestir hér eru: Póst- og símamála-
stjóri, Olafur Tómasson og kona hans, Stef-
anía María Pétursdóttir, Ogmundur Jónas-
son, formaður BSRB og kona hans Valgerð-
ur Andrésdóttir, Ágúst Geirsson,
umdæmisstjóri og kona hans Kristín Zoéga,
Jón Kárason og frú áttu að vera hér heið-
ursgestir, en þau geta því miður ekki komið,
þeir Ágúst og Jón eru fyrrverandi formenn
FÍS og núverandi heiðursfélagar. Frú Ragn-
hildur Guðmundsdóttir, formaður FÍS og
varaformaður BSRB, sem stendur við hlið
okkar, og er hún okkar dýrlingur. Guð-
mundur Jóhannesson, formaður Sambands
lífeyrisþega ríkis og bæja og Helgi Hallsson,
ritstjóri Símablaðsins.
Bræðrafélag okkar hjá Póstinum tekur
einnig þátt í þessari hátíð með okkur, og eru
fyrrverandi póstmenn innilega velkomnir.
Eins og við vitum, hefur verið sagt í ræðu
og riti, að símamannastéttin hafi jafnan ver-
ið forystusveit opinberra starfsmanna á sviði
félagsmála og svo mun rétt vera.
Stjórn FÍS hafði forgöngu um stofnun
þessarar deildar og var fyrsti fundurinn
haldinn í Sigtúni við Austurvöll þann 23.
febrúar 1976. Formaður FÍS var þá Ágúst
Geirsson, og kynnti hann þar aðdraganda
að stofnun deildarinnar.
Fundurinn var vel sóttur og ríkti þar mik-
ill einhugur og áhugi á því að deildin starf-
aði vel að málefnum eftirlaunafólks. Á þess-
um fundi fór fram fyrsta kosningin.
Stjórn deildarinnar var kosin til eins árs
og skipti með sér verkum þannig:
Sæmundur Símonarson, formaður, Andr-
és G. Þormar, varaformaður, Helga Finn-
bogadóttir, ritari, Þóra Timmermann, gjald-
keri og Brynjólfur Björnsson, meðstjórn-
andi.
Til vara: Guðrún Möller og Júlíus Páls-
son.
Nú er það svo, að flest öll launþegafélög
eru stofnuð til hagsbóta fyrir félagsmenn í
lífskjarabaráttunni, það höfum við sannar-
lega gert, þótt ekki sé það á hefðbundinn
hátt. Þótt við séum launþegar getum við
sáralítið haft áhrif á kjör okkar hvað laun
varðar. En kjarabaráttan er víðfeðm og nær
til fleiri þátta en launa, svo við höfum ýmsa
góða hluti gert.
Þegar við hættum störfum verður mikil
breyting á lífi okkar. Við hættum því amstri
og erfiði sem gaf okkur lífsfyllingu, við
22 SÍMABLAÐIÐ