Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.05.1992, Síða 8

Símablaðið - 01.05.1992, Síða 8
Önnur vísbending gæti verið gjaldskrá fyrirtækjanna. Aftur sýna tölur OECD að ódýrasta innanlandsþjónustan sé á íslandi, þarnæst í Danmörku, Hollandi, Svíþjóð, Finnlandi, Belgíu og Sviss. í öllum þessum löndum eru símfyrirtækin í opinberri eigu. Símaþjónusta allt að átta sinnum dýrari í Bretlandi en Hollandi Neytendaskrifstofa Evrópu sendi frá sér í febrúar sl. niðurstöður rannsóknar sem sýn- ir að innanbæjarsímtöl á dagtaxta séu hærri í Bretlandi en í þeim 14 Evrópulöndum þar sem það var kannað. Skv. henni er sama þjónusta tvöfalt dýrari hjá Mercury-símfyr- irtækinu í Bretlandi og átta sinnum dýrari en í Hollandi. Niðurstöður sömu rannsókn- ar benda til þess að samkeppnin hafi fremur komið fyrirtækjum sem hringja mikið til út- landa til góða en almennum notendum. Þar kemur líka fram að Bretland er eina landið þar sem símaþjónusta er ekki í höndum ríkiseinokunarfyrirtækis. Eins og fyrr sagði er gríðarlega erfitt að bera saman. Samt sem áður verður að segja að engar tölur sanna að einkarekin símfyrir- tæki séu hagkvæmari en opinber. Stað- reyndin er sú að til eru vel rekin fyrirtæki og illa rekin. Pað breytir engu hvert eignarformið er. Það eru margir breytilegir þættir sem hafa áhrif á hvort tiltekið símfyrirtæki geti veitt góða þjónustu. Þar má nefna hve mikil fjár- festingin er, hvernig stjórnendum ferst starf sitt úr hendi, samskipti við stéttarfélög, regl- ur sem gilda og uppbyggingu gjaldskrár. Einkavæðing í Bretlandi Það ríki sem mesta reynslu hefur af einkavæðingu er Bretland. Sé litið til rekstr- arhagkvæmni er gaman að líta á tvær stað- reyndir. í fyrsta lagi jókst hagnaður og framleiðni meira í fyrirtækjunum fyrir einkavæðingu en eftir. í öðru lagi var framleiðni meiri í fyrir- tækjum sem ekki voru einkavædd. Á árun- um frá 1979 til 1990 jukust afköst um 4,2 prósent á mann á ári í ríkisreknum fyrir- tækjum meðan samsvarandi tala var 3,5 pró- sent í einkageiranum. Frá 1974 er saman- burðurinn ríkisfyrirtækjum enn frekar í hag með 6,5 prósent aukningu í afköstum á ári miðað við 3,7 prósent í einkafyrirtækjum. Þetta á við um afköst vinnuaflsins. Niður- stöður rannsóknar á vegum London Busin- ess School sýna að heildarafköst í ríkisrek- inni póstþjónustu jukust um 3,7 prósent á ári á níunda áratugnum samanborið við 2,4 prósent hjá British Telecom eftir einkavæð- ingu. Fjármál Ein rök með einkavæðingu eru að vegna tækniframfara þurfi símfyrirtæki að eiga völ á miklu fé til fjárfestinga. Þrátt fyrir að reyndin sé sú að flest sím- fyrirtæki eru rekin með góðum hagnaði og geta þarafleiðandi safnað í fjárfestingarsjóði segja ríkisstjórnir að fjármögnun símaþjón- ustu auki lánsfjárbyrði eða skekki myndina af lánsfjárþörf hins opinbera. Þetta er oftast nær ekkert nema afsökun. Bókhaldslistin er fullfær um að aðgreina fjármál símaþjónustunnar frá öðrum opin- berum rekstri. Reynsla Frakka og íra af því að láta símfyrirtækin reka sínar eigin fjár- málastofnanir sýnir að engin þörf er á einkavæðingu til þess að ná þessum mark- miðum. Yerri samskipti við starfsmenn í einkafyrirtæki Oft er sagt að markmið einkavæðingar á Bretlandi sé að auka hlutafjáreign meðal landsmanna. Það var meira að segja talað um hluthafalýðræði á tímabili. Mikið hefur verið gert úr kaupum almennings á hluta- bréfum. Hins vegar virðist niðurstaðan ekki vera í samræmi við væntingarnar. Á Bretlandi lækkaði hlutfall hlutafjáreig- enda á níunda áratugnum úr 28 prósentum í 21. Svo virðist vera að margir einstaklingar hafi látið ginnast til að kaupa hlutabréf þeg- ar fyrirtækin voru einkavædd. Hins vegar seldu margir þau síðan og afar fáir kaupa þau eftir það. Reyndar eru það aðeins 14 prósent landsmanna sem kaupa þessi bréf í endursölu og eru allir í þeim hópi sem gerði það áður en einkavæðingin hófst. Þegar breska símfyrirtækið var einkavætt 6 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.