Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.05.1992, Page 14

Símablaðið - 01.05.1992, Page 14
Fréttir. . . Það mætti segja að stjórnvöld hefðu stuðl- að að þessu með sinni framkomu. „Ekkert er svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott“, sögðu ráðstefnugestir. 1.3.’92 * Arsfj órðungsfundur póst- og símamálastjóra Fundur póst- og símamálastjóra með framkvæmdastjórum, umdæmisstjórum og fulltrúum stéttarfélaganna í starfsmannaráði var haldinn í Reykjavík 18. mars. Af því sem fjallað var um á fundinum fyr- ir hádegi (í „Uppsölum") vöktu helst athygli hugmyndir um einkavæðingu Pósts og síma, og réttindamál starfsmanna í því sambandi. Fjallað hefur verið um einkavæðingu POS í nefnd sem sett hefur verið í málið af ráð- herra. Sú umfjöllun virðist vera mest út frá fjármunalegu sjónarmiði o.þ.h. en minna um hver staða starfsmanna er og verði. Eftir hádegi var fundi framhaldið í mötu- neyti POS, þar voru flutt fróðleg erindi m.a. um viðhorf starfsfólks til POS - en um það hefur verið gerð könnun. Um efni þessa fundar verður fjallað nánar af POS. 30.3’92 s __/ Alyktun Landsfundar FIS Eftirfarandi ályktun var samþykkt á Landsfundi Félags íslenskra símamanna sem haldinn var 7. febrúar 1992 að Grettis- götu 89 í Reykjavík: Ástæður þeirrar einkavæðingar opinberra fyrirtækja sem ríkisstjórnin boðar eru fyrst og fremst hugmyndafræðilegs eðlis. I því ljósi verða skiljanleg þau ummæli sam- gönguráðherra, Halldórs Blöndal, í viðtali á Rás tvö nýlega að stefnt skuli að einkavæð- ingu símaþjónustunnar, án þess þó að hann setti fram skýr markmið með sölu fyrirtæk- isins. Síminn skilar ríkissjóði milljarði í hagnað árlega, og svarar fórn slíkrar upp- hæðar á altari einkavæðingardraumsins til þess að bóndi leiddi góða mjólkurkú út til slátrunar. Á þeim rúma áratug sem liðinn er síðan breski „Landssíminn“ var einkavæddur hef- ur komið glöggt í ljós að starfsfólkið hefur orðið illa úti. Atvinnuöryggið er fyrir bí og hafa tugir þúsunda misst atvinnuna. Þá er skipulag vinnunnar allt orðið ósveigjanlegra og margvísleg réttindi hafa verið skert. Til dæmis hafa þau sem tekið hafa upp störf eftir einkavæðingu mátt sætta sig við lélegri lífeyrisréttindi en eldri starfsmenn. Reynslan frá Bretlandi sýnir að það eru hluthafar, yfirmenn og stórir viðskiptavinir í atvinnulífinu sem hafa hagnast. Á hinn bóg- inn hefur breytt álagning orðið til þess að hækka símareikning hins almenna notanda. Landsfundur Félags íslenskra símamanna varar við fljótfærnislegum ákvörðunum í einkavæðingarátt. Fundurinn krefst þess að við skipulagningu starfsemi fyrirtækisins verði á öllum stigum haft náið samráð við stéttarfélögin. 20.2292 - Afsakið - konan yðar er í símanum. 12 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.