Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 16
Tillaga sáttasemjara samþykkt
Eftir samningaþóf í 8 mánuði milli iaunamanna og atvinnurekenda lagði sáttaseinjari
fram sáttatillögu í iok apríl mánaðar.
Frá því að samningar voru lausir í september í fyrra höfðu samtök launafólks reynt aftur
og aftur að fá stjórnvöid og atvinnurekendur að samningaborðinu. Það gekk ilia. Viðræður
við okkur voru lengi vel málamyndaviðræður og Ijóst var að ekki átti að semja við einstök
félög sérstaklega.
I byrjun mars ákváðu flest félögin í BSRB að fara sameiginlega í viðræður. Á sama tíma
varð samkomulag um samflot með Kennarasambandi íslands og ASI.
Sá árangur sem náðist við að verja velferðarkerfið og við að fá stjórnvöld og atvinnurek-
endur til að bæta kjörin, þó í litlu væri, náðist fyrst og fremst með því að stærstu samtök
launafólks hófu nána samvinnu um samningagerð. Ef þessi samstaða hefði ekki náðst er
eins víst að samningar væru enn í lausu lofti.
Hvað sem annars um niðurstöðuna má segja voru flestir sammála um það að lítið annað
væri í stöðunni þegar allt væri skoðað pólitískt ástand, efnahagsástand og vilji fólks til að
fylgja málum eftir.
I FÍS fór atkvæðagreiðslan um sáttatillöguna þannig:
Þátttaka var 61,1%
Já sögðu 388
Nei sögðu 159
Auðir seðlar 14
Þar með var sáttatillagan orðin að samningi sem gildir til 1. mars á næsta ári. Samningurinn
er birtur hér á eftir.
1. grem
Gildir kjarasamningar aðila framlengjast til 1. mars
1993 og falla þá úr gildi án sérstakrar uppsagnar.
og útborgun:
2. grein 3.3 Viðmiðunar-
A samningstímanum hækka mánaðarlaun sem hér mörk:
segir:
1. maí 1992 1,7%
3. grein
Á samningstímanum skal greiða sérstakan launa-
auka á heildarlaun sem eru undir 80.000 kr. á mánuði
miðað við fullt starf. Launaauki greiðist tvisvar sinnum
á samningstímanum.
-útborgun 1. feb. 1993. Útborgun
launaauka fer fram í reglubund-
inni launaafgreiðslu.
Launaauki er eingreiðsla og
reiknast hlutfallslega miðað við
fullt starf. Hjá öðrum en mánað-
arlaunamönnum er starfshlutfall
fundið með hlutfalli unninna
stunda af fullu starfi. Launaauki
greiðist þó ekki, ef starfshlutfali
er 40% eða lægra né heldur
greiðist hann þeim sem eru yngri
en 16 ára og taka laun sam-
kvæmt unglingatöxtum.
3.1 Viðmiðunar- Meðaltal heildarlauna á þriggja 3.4 Ákvörðun Viðmiðunarfjárhæðin er kr.
laun: mánaða viðmiðunartímabili skv. launaauka: 80.000 miðað við fullt starf.
lið 3.2. Launaauki reiknast sem helm-
ingur þess mismunar, sem er á
3.2 Viðmiðunar- Meðaltal febrúar-apríl 1992 -út- viðmiðunarfjárhæðinni og
tímabil borgun 1. júlí 1992. Meðaltal meðallaunum á mánuði skv.
sept.-nóv. 1992 ákvæðum liðar 3.1.
14 SÍMABLAÐIÐ