Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 18
12. Af því tilefni að heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra mun setja reglugerð þar sem horfið er frá
fastagjaldi sjúklinga vegna lyfjakaupa, en þess í
stað tekið upp hlutfallsgreiðslukerfi með tilteknu
greiðsluhámarki, skv. heimild í lögum nr. 1/1992,
mun ráðherra eiga samstarf við ASI, BSRB og
Kennarasamband íslands fyrir setningu þessarar
reglugerðar. Hún miðar að því að ná markmiðum
fjárlaga um sparnað í lyfjakostnaði ásamt með þeim
breytingum sem fyrirhugaðar eru á lögum um lyfja-
sölu og lyfjadreifingu, lækkun álagningar og hag-
kvæmari innkaupum á lyfjum.
13. Ríkisstjórnin er reiðubúin að kanna breytingar á
ákvörðun barnabóta með það fyrir augum að þær
verði að fullu tekjutengdar, falli niður við tiltekið
tekjumark og hækki á lágum tekjum. Ríkisstjórnin
mun eiga samstarf við ASI, BSRB og Kennarasam-
bands íslands um þessar breytingar.
14. í samráði við sömu samtök launþega verða gerðar
tillögur um með hvaða hætti megi best koma til
móts við þarfir þeirra leigjenda sem lökust hafa
kjör.
15. Ríkisstjórnin leggur áherslu á öflugt skatteftirlit og
mun beita sér fyrir sérstökum aðgerðum í því skyni
að draga úr skattundandrætti. Ríkisstjórnin mun
leita eftir samstarfi við aðila vinnumarkaðarins um
þessi mál.
16. Lögfest verði á þessu þingi frumvarp til laga um
starfsmenntun í atvinnulífi.
17. I framhaldi af því sem sagði í lið 2 vill ríkisstjórnin
ítreka það markmið sitt að stuðla að lækkun raun-
vaxta á innlenda lánamarkaðnum á grundvelli
frjálsra markaðsvaxta, stöðugleika í gengis- og
verðlagsmálum og jafnvægis í opinberum fjármál-
um. Ríkisstjórnin telur að raunhæfi lækkun vaxta
við þessi skilyrði verði að byggjast á tveimur meg-
instöðum:
í fyrsta lagi verður unnið áfram að því að auka
samkeppni og hagkvæmni á lánsfjármarkaðnum,
þannig að vaxtamyndun verði frjálsari og í betra
samræmi við það, sem gerist á þeim erlendu pen-
ingamörkuðum, sem Islendingar tengjast nú æ nán-
ar með gengisfestu og frjálsum fjármagnsflutning-
um. I samræmi við þetta er nú m.a. stefnt að því, að
öll lánsfjáröflun til húsnæðiskerfisins verði smám
saman með útgáfu markaðsbréfa í stað beinna
samninga milli ríkisvalds og lífeyrissjóða. Einnig er
stefnt að því, að hefja bráðlega sölu óverðtryggðra
ríkisverðbréfa með frjálsu útboði. Leggja verður
áherslu á, að fjármálastofnanir, þ.á m. lífeyrissjóðir,
hafi ekki samráð eða beiti samtakamætti á láns-
fjármarkaðnum.
í öðru lagi verður dregið úr lánsfjárþörf opinberra
aðila, sem haldið hefur uppi raunvöxtum að undan-
förnu. í þessu efni skiptir höfuðmáli ásetningur rík-
isstjórnarinnar að bæta afkomu ríkissjóðs. Jafn-
framt verður að tryggja að útgáfa húsbréfa og önn-
ur fjáröflun til húsnæðislánakerfisins og opinberra
sjóða raski ekki jafnvægi á lánamarkaðnum.
Með tilvísun til þessara meginsjónarmiða mun fjár-
málaráðuneytið lækka vexti á nýjum spariskírtein-
um til sölu á markaðnum niður í 6,5%. Jafnframt
verða vextir á ríkisvíxlum lækkaðir í samræmi við
lækkandi raunvexti og horfur um verðlagsþróun.
Ríkisstjórn og Seðlabanki munu einnig með tiltæk-
um aðgerðum í fjármálum og peningamálum beita
sér fyrir því, að vextir á eftirmarkaði verði í sam-
ræmi við vexti á nýjum spariskírteinum, sem til sölu
eru á hveijum tíma. Leggja verður áherslu á, að
ekki er unnt að binda vaxtaákvarðanir langt fram í
tímann, nema með þeim fyrirvara, að ekki verði
umtalsverðar breytingar á efnahagsskilyrðum, er
áhrif hafi á fjármagnsmarkaðinn.
Reykjavík, 26. apríl 1992.
<f7im'fTrninn-
16 SÍMABLAÐIÐ