Símablaðið - 01.05.1992, Side 23
hafa tölvur skólans komið að góðu gagni við
þjálfun starfsmanna á þetta kerfi.
Námskeið hafa verið haldin í nýjum hug-
búnaði svo sem í Windows, Excel og Word
fyrir Windows. Verður framhald á þessum
námskeiðum í vetur.
Verið er að setja upp „Gagnvirkt
kennsluforrit með mynd“ (Interactive vi-
deo) í skólanum og væntum við þess að
þetta komi að góðum notum við kennslu í
framtíðinni.
Fyrirtækið Póstur og sími er að fá meiri
og meiri samkeppni á öllum sviðum. Þess
vegna er nauðsynlegt að hver starfsmaður
fyrirtækisins leggi sig fram við að þjóna við-
skiptavininum þannig að hann fari sem
ánægðastur frá okkur að loknum viðskipt-
um og að það hvarfli ekki að honum að leita
annað að samskonar þjónustu. Til að þetta
nái fram að ganga hefur verið sett upp nám-
skeið til að brýna fyrir starfsmönnum nauð-
syn á fallegri framkomu og vinalegu viðmóti
og láta viðskiptavininn finna að við erum
fyrst og fremst hér í vinnu fyrir hann, en
hann leggur líka fram greiðslu sem eru jú
launin okkar.
Mikið átak er einnig verið að gera hér í
gæðamálum, bæði hvað snertir vöru og þjón-
ustu, sem er mikið atriði hjá okkur og verið er
að hanna námskeið fyrir þessar greinar.
Eitt elsta nám hjá þessu fyrirtæki er línu-
mannanámið sem var fyrir nokkrum árum
breytt í símsmiðanám. Þeir, sem hafa lokið
prófum símsmiða frá Póst- og símaskólan-
um hafa öðlast ákveðin starfsréttindi innan
fyrirtækisins, sem hafa ekki gilt úti á hinum
almenna markaði. Nú hefur verið lögð inn
umsókn um að símsmiðanámið verði gert að
löggiltri iðngrein, sem krefst þá sveinsprófs.
Þegar hefur verið gerð tillaga að námskrá
sem er til athugunar og samþykktar hjá
menntamálaráðuneytinu og er þess að
vænta að þetta nám geti hafist í náinni fram-
tíð. Námið verður sniðið þannig að hægt
verður að taka það alfarið í Póst- og síma-
skólanum. Flestir áfangar í náminu munu
gilda í öðrum framhaldsskólum og nemar
með áfanga úr öðrum skólum munu gilda til
mats hjá okkur.
Fyrir um það bil tíu árum var sett á stofn
vinnunefnd um menntunarmál á vegum
símastjórna á Norðurlöndum. Nefndin held-
ur fundi þrisvar til fjórum sinnum á ári, ým-
ist í síma eða hittist í einhverju Norðurland-
anna. Annað hvert ár er haldin ráðstefna og
þá tekið fyrir eitthvert ákveðið málefni. Síð-
ast var slík ráðstefna haldin á eyjunni Jelöya
í Oslófirði. Þar var tekin til umræðu fjar-
kennsla og hvaða tækni er hægt að beita
þar, en það er nokkuð sem við komum til
með að þróa í okkar tiltölulega stóra og
strjálbýla landi. Með þátttöku í þessu sam-
starfi kynnast menn og fá upplýsingar um
námskeið sem boðið er uppá. Þannig feng-
um við í haust námskeið frá Símaskólanum í
Noregi um stafræna útvarpssendingu.
Á síðasta skólaári voru nemendur sem
stunduðu nám, eða sóttu námskeið sem
haldin eru í skólanum eða á vegum hans,
um 457. Stundakennarar voru um 66 og
kennslustundir um 3800. Þar fyrir utan var
svo kennsla í bréfaskóla.
I dag verða afhent prófskírteini til eftir-
talinna hópa:
Póstnám 1 49
Póstafgreiðslumenn 17
Yfirpóstafgreiðslumenn 8
Símritarar 6
Yfirsímritarar 18
Símsmiðir (Gamla kerfið) 13
Símsmiðir (Nýja kerfið) 3
Símsmiðameistarar (Þátttökusk.) 9
Samtals 123 skírteini
Auk þess verða send út 83 þátttöku-
skírteini til þeirra sem hafa sótt grunnnám-
skeið eða tekið þátt í bréfaskóla.
Að lokum vil ég óska þeim nemendum, er
taka við skírteinum í dag til hamingju með
þann áfanga sem þeir hafa náð á vegum
skólans og gæfuríkrar framtíðar. Einnig vil
ég nota tækifærið og þakka öllum samstarfs-
mönnum bæði utan og innan Pósts og síma
gott og ánægjulegt samstarf á liðnu ári og ég
vona að svo verði í framtíðinni.
Símatekjur rúmlega
fimni milljarðar
Árið 1991 voru símatekjur kr.
5.255.568.367, en pósttekjur kr.
1.932.441.765.
Úr ársskýrslu POS 1991
SIMABLAÐIÐ 21