Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 25
Fremst á myndinni má sjá m.a: Þóru Timmermann, Elínborgu Gísladóttur
og Ragnhildi Guðmundsdóttur.
Mynd: H.H.
kveðjum gamla og góða vinnustaðinn og
síðast en ekki síst vinnufélaga sem við höf-
um þekkt í mörg ár.
Þá er ekki svo lítil kjarabót að vera sjálf-
krafa skráður í Eftirlaunadeildina, hitta
gamla félaga og kynnast nýjum, sem eiga
við sama vandamál að glíma, og það að vera
áfram hlutgengur í FÍS, því deildin okkar er
hluti af því, og geta lagt ýmislegt til mála, þó
við þurfum ekki að bera ábyrgð á ákvarð-
anatöku.
Með stofnun Eftirlaunadeildar eigum við
greiðari aðgang að framkvæmdastjórn FÍS,
ef upp koma vandamál sem tengjast eftir-
launagreiðslum.
Það er kjarabót að geta haft spilakvöld,
góugleði eða þorrablót á vetrum og fara sam-
an í nokkurra daga ferðir að skoða landið
okkar á sumrum. Svona mætti lengi telja.
Þessar margvíslegu kjarabætur okkar
vinna gegn einsemdinni, en það er einsemd-
in, sem margir eiga erfitt með að umbera
þegar þeir hafa látið af störfum. Þó margt sé
gert fyrir aldraða er það nú svo að skemmti-
legast er að þeir sem eiga það sameiginlegt,
að hafa langa ævi unnið hjá sömu stofnun,
haldi hópinn og það höfum við nú gert í 15
ár. En nú erum við að skemmta okkur og
langar ræður eiga ekki við.
Það fer ekki milli mála að Andrés Þormar
og Sæmundur Símonarson voru miklir
hvatamenn að stofnun deildarinnar, vil ég
því biðja ykkur að rísa úr sætum til heiðurs
minningu þeirra.
Hér með segi ég skemmtunina setta og fel
veislustjóra, Jóni Tómassyni, að kynna það
sem okkur stendur til boða.
SÍMABLAÐIÐ 23