Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2006, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST2006
Fréttir DV
Reynirræður
Ragnar
ReynirTrausta-
son, fýrrverandi
ritstjóri Mannlífs,
heldur áfram að
gera sínum gamla
vinnustað Fróða
grikk. Reynir hygg-
ur á stofnun mikils fjöl-
miðlaveldis og tók meðal
annars með sér son sinn
Jón Trausta þegar hann
hætti á Fróða. Nú hefur
hann fengið til liðs við sig
Ragnar Petersen, sem hef-
ur verið auglýsingastjóri
hjá Mannlífi í mörg herrans
ár, og mun Ragnar styrkja
Reyni mikið í baráttunni
sem fram undan er.
Ökuníðingur
skrópaði
Tonni Langbo Hansen,
karlmaður á þrítugsaldri,
skrópaði í þingfestingu við
Héraðsdóm Suðurlands á
dögunum. Þingfesta átti
ákæru á hendur honum fyr-
ir að aka bæði ölvaður og
sviptur ökurétti eina helgi í
byrjun júlí. Tonni er talinn
hafa verið undir stýri þegar
bifreið var velt á veginum
nálægt Geysi. ökumaður
og farþegar létu ekki þar við
sitja heldur veltu bílnum
við og héldu áfram á Laug-
arvatn þar sem lögreglan
stöðvaði þá og voru allir
grunaðir um ölvun. Tonni
var dæmdur til níu mán-
aða fangelsisvistar af sama
dómstól fyrir margítrekuð
afbrot.
Pysjan lætur
ekki sjá sig
Pysjan er ekki en farin
að láta sjá sig í Vestmanna-
eyjum. Þykir þetta mjög
undarlegt en pysjan ætti að
vera mætt fyrir viku síðan.
í Vestmanneyjum er rekið
svokallað pysjueftirlit sem
fýlgist með þeim ungum
sem koma í bæinn. Pysj-
unar sem krakka í eyjum
naia gaman að íinna Btu þa
mældar og vigtaðar. Pysju-
eftirlitið hefur verið starf-
rækt í Eyjum frá árinu 2003.
Það er vonandi að pysj-
an láti sjá sig fljótlega svo
krakkarnir í Eyjum geti tek-
ið gleði sína á ný.
Jóhannes
fékkverðlaun
Jóhannes í Bónus tók
í gær á móti verðlaunum
ísfirskrar alþýðu úr
hendi Jóns Fanndal
Þórðarsonar við at-
höfn sem fram fór í
Tjöruhúsinu á ísa-
firði. Verðlaunin eru
málverk eftir Reyni
Torfason, bæjarlista-
mann ísafjarðar. „Jóhann-
es á þetta skilið fyrir að hafa
staðið fyrir því hversu stór-
lega matvara hefur lækkað
í verði hér á ísafírði með
jöfnun flutningskostnað-
ar. Hann á sinn þátt í því að
gera fólki kleift að búa hér,"
sagði Jón Fanndal við verð-
launaafhendinguna.
Heimild bb.is
Alheimsfeguröardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir er á lausu. Samband hennar
við hestmanninn Sigurð Straumfjörð rann sitt skeið á enda á föstudaginn fyrir viku á
dramatískan hátt. Unnur Birna mætti með umbúðir um hægri höndina í skólann á
mánudag en Sigurður segir að þau hafi hætt saman í góðu.
Marin, bólgin og blá eftir
lokauppgjör við kærastann
Tæplega íimm mánaða sambandi alheimsfegurðardrottningar-
innar Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur og hestamannsins Sigurðar
Straumfjörðs lauk á dramatískan hátt síðastliðinn föstudagskvöld.
Átök brutust út og meiddist Unnur Birna illa á hendi í viðskiptum
sínum við Sigurð. Jafriframt lenti annar drengur, sem er í vinahóp
þeirra beggja, í átökunum og slasaðist hann nokkuð alvarlega.
Heimildamenn DV innan Háskól-
ans í Reykjavík segja að Unnur Birna
hafi mætt með hægri höndina í um-
búðum í skólann á mánudag. Sömu
heimildir herma að hún sé marin,
bólgin og blá eftir lokauppgjör við
kærasta sinn, Sigurð Straumfjörð,
síðastliðið föstudagskvöld. Heimild-
ir DV herma að sambandinu hafi í
raun og veru lokið fýrir þremur vik-
um, um verslunarmannahelgina, en
að komið hafi til harkalegs lokaupp-
gjörs á föstudaginn.
Datt af hestbaki
„Ég get staðfest að við hætt-
um saman á föstudaginn síðasta en
annars vil ég ekki tjá mig um þetta
kvöfd, sagði Sigurður Straumfjörð,
fyrrverandi unnusti alheimsfegurð-
ardrotmingarinnar Unnar Birnu
Vilhjálmsdóttur, við DV í gær. Að-
spurður hvort hann hefði einhverja
skýringu á því af hverju Unnur Birna
hefði mætt í skólann með umbúðir
um hægri höndina sagðist Sigurður
hafa heyrt að hún hafi dottið af hest-
baki um helgina. Sigurður neitaði
því þráfaldlega að hún hefði meiðst
eftir átök við hann.
Leiðirnar lágu ekki saman
Sigurður sagði að þau hefðu hætt
saman á góðum nótum og það væri
ekkert stórmál. „Þetta var bara ekki
fyrir mig. Við áttum góða fimm mán-
uði og skemmtum okkur vel. Leið-
irnar lágu bara ekki saman og því fór
sem fór," sagði Sigurður.
Lífiðílægð
Ekki náðist í Unni Bimu þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir en á bloggi henn-
ar má sjá að hún tekur þessum sam-
bandsslitum ekki létt. Hún eyddi
síðustu helgi í Stykkishólmi með
„Við áttum góða fímm
mánuðiog skemmt-
um okkur vel. Leiðirnar
lágu bara ekkisaman
og því fór sem fór"
móður sinni og fjölskyldu og skrif-
aði um mikilvægi fjölskyldunnar
þegar lífið væri í lægð. „Þama áttum
við fjölskyldan virkilega ljúfar stund-
ir í skemmtilegum hópi fólks sem er
ómetanlegt þegar lífið er í lægð og
maður minnist þess að mikilvægast
af öllu er fjölskyldan, vinirnir og fólk-
ið sem manni þykir vænt um," skrif-
aði Unnur Birna.
f lok færslunnar setur Unnur
Birna síðan inn æðmleysisbænina
með þeim orðum að flestir geti til-
einkað sér mátt hennar. Flestir geta
lesið á milli línanna á hvaða slc
um hún er með því að setja þess
fallegu bæn inn sem er birt hér í
kassa við greinina.
oskar@dv.is
(im) f*cjt nu r (cnnilcysi
lil d() sídtíi ntiy vi() /)((<)
scin égfíc ckki brcyll,
kjark til n<) brcyta \)vi scm
i■»; \\c! bi cyll
tcil hl <n> t\iciini bni a nitlh
Á meðan allt lék lyndi
Unnur Birna og Siaurður ynrn
ástfangin upp fyrirhaus og
áttu sínar bestu stundir i
hestamennskunni.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir
Meö hægri höndina iumbúðum
eftir dramatískt lokauppgjör við
kærastasinn Sigurð Straumfjörð.
Maraþön-Bjarni og nýju hlaupaskórnir
Svarthöfði hefur löngum tilheyrt
þeirri grein mannsins sem kennd
er við Lata manninn. Aldrei hefur
Svarthöfði stundað neinar íþróttir og
það lengsta sem hann hefur hlaup-
ið eru nokkrir metrar á eftir strætó
á sínum yngri árum. Þótt Svarthöfði
sér latur ber hann þó virðingu íyr-
ir þeim sem nenna að leggja á sig
hlaup, fjallgöngur eða klukkutíma í
líkamsræktarstöð. Svarthöfði skilur
hvorki upp né niður í þessu fólki en
skilur það samt.
Einn er þó maðurinn sem Svart-
höfði skilur engan veginn. Það
er Maraþon-Bjarni Ármannsson
bankamógull hjá Glitni. Maraþon-
Bjarni er ný ofurhetja sem finnst al-
veg rosalega gaman að eyða hundr-
uðum milljóna í að auglýsa eitt
maraþon á kostnað viðsldptavin-
anna. Maraþon-Bjarni krækir sér í
rásnúmer 1 í krafti auglýsinganna
og áhugans og síðast en ekki síst þá
f Svarthöfði
>«
er Maraþon-Bjarni í viðtölum við
alla fréttamiðla landsins bæði fýrir
og eftir hlaupið. Sem betur fer hefur
ekkert bólað á Maraþon-Bjama und-
anfama daga og biður Svarthöfði til
guðs að þurfa ekki að horfa upp á
hetjuna reima hlaupaskóna á sig og
klæða sig í mðþröngar hjólabuxur
fyrr en eftir ár.
Ekki getur Svarthöfði heldur ann-
að en vorkennt samstarfsmönnum
Maraþon-Bjarna hjá Glitni. Allt frá
því að Maraþon-Bjarni lét mynda
sig á ráslínunni þegar tilkynnt var að
Glitnir styrkti, fyrirgefið ætti Reykja-
víkurmaraþonið, hefur hann verið
eins og naut í flagi í samstarfsmönn-
um sínum eftir því sem heimildar-
menn Svarthöfða segja. Varla hef-
ur liðið sá dagur að Maraþon-Bjarni
hafi ekki spurt samstarfsmenn sína
um formið, æfingarnar eða nýjustu
hlaupaskóna frá New Balance.
Svarthöfði telur starfsmenn Glim-
is og íslendinga hafa fengið nóg. 1 lok
nóvember fer fram Beirút-maraþon-
hlaupið í Líbanon. Svarthöfði tel-
ur tilvalið fyrir Maraþon-Bjarna að
fara þangað til að sýna sig, skokka
og sjá aðra. Það ku víst vera öðruvísi.