Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2006, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2006, Síða 48
68 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST2006 Helgin PV Nú eru útsölurnar búnar að tröllríða landanum og alveg kominn tími á að fá fulla búð af nýjum og ferskum vörum. Áður en farið er af stað og verslað eitthvað í fljótfærni ákvað DV að renna yfir hvað er málið í vetur. DV ræddi við sex verslunarstjóra í hinum ýmsu búðum borgarinnar um hvað væri málið í haust og við hverju mætti búast. 4 *- Vera Moda, Svanhildur verslunarstjóri í Vera Moda í Smáranum. „Ég valdi nú dressin út frá aðallitunum sem verða hjá okk- ur í vetur, sem eru grænn og fjólublár," segir Svanhildur um lit- ina. Mittisbeltin halda velli og eru stór og breið til að sýna vöxt- inn, sama er að segja um leggings nema kannski sniðin eru aðeins öðruvisi. Það er leggings undir síðar peysur eða boli en þær eru kannski eilítið síðari og krumpast jafnvel niðri líkt og gallabuxur. Kjólar eru aiveg málið í vetur, með rúllukragabol undir eða peysu yfir, eins og í sumar nema bara með vetrar- legri blæ. Kjólar með ermum og þykkri kannski er alveg málið í vetur. Axlabönd eru alveg málið, jafnvel áfastar við buxur eða pils. Svart og hvítt er alltaf, en núna er grár mjög sterkur, grár í öllum gráum tónum. Stíllinn er frekar gamaldags, hátt í mitti, sýna vöxtinn og allt frekar kvenlegt. Síðan er að sjálfsögðu mik- ið úrval af húfum og vettlingum, gæti ekki verið vetrarlegra," segir Svanhildur og hlær. Centrum, Anna Margrét starfsmað- ur í Centrum t Kringlunni. „Við erum búin að vera að fá mikið af þykkum og kósý peysum og eitthvað af vestum," segir Anna Margrét um nýju vör- urnar. „Hjá okkur er allt frekar djúsí og þægilegt, víð og síð snið eru alveg mál- ið. Við erum búnar að vera að fá mikið af síðum bolum, peysum og öðru sb'ku. Það hafa líka verið að koma síðar skyrtur og það er mikið enn um slaufur og aðra slíka aukahluti. Litirnir eru að breytast úr skærum í frekar jarðlita, moldarbrúnn og grár eru frekar vinsælir. Við fáum mikið af góðum og stórum úlpum, tilvaldar í vetur í frost og slabb," segir Anna Margrét sem hlakkar til að fá sér eina hlýja úlpu. Top Shop, Berglind starfsmaður og stílisti hjá Top Shop. „Það er mikið um liti í vetur og þá er sérstaklega fjólublár að koma sterkt inn en nýjasti er svona karrýgulur," segir Berl- ind um vetrarlitina. „Nýja trendið hér er þessi 60 's stíll og mjög mikið af kápum og stígvélum. Það er allt frekar kvenlegt og stílhreint í vetur en einnig mikið um rend- ur og annað slíkt," segir Berglind um vetr- arstílinn. í karlalínunni hjá okkur er alltaf þetta klassíska bindi og skyrta en þar er einnig meira um liti og skemmtilega heita lití frekar en einungis klassískt og dauft. En það er að sjálfsögðu alltaf með. Ekki kannski miklar breytingar þannig í karla- línunni," segir Berglind um strákana. Zara, Heiðrún verslunarstjóri í Zöru í Smáranum. „Eins og þetta er hjá okkur, þá er tískan að verða mjög kvenleg og sýna vöxtínn vel. Það er mikið um mittisbelti og stígvél sem jafnvel krumpast niður. Það er svo alltaf glamúrið hjá okkur, rosalega mikið um kjóla og kápur," segir Heiðrún um það nýjasta í Zöru. Kápumar eru flestar með stórum tölum og mittisbeltum. Það er ekki eins mikið um mittísbux- ur heldur er að taka við buxur sem eru háar upp í mitti og jafnvel þá axlabönd við og girt ofam'. Það er mjög mikið af hinum ýmsu munstrum og eitthvað um dýraprent en eins og alltaf er hvítur og svartur alltaf með. Aðallitimir hjá okkur em gull, brons og silfur en eitthvað um bláan líka. Fjólublár er heit- asti liturinn í vetur og allt svolítið með 80's blæ," segir Heiðrún um það helsta sem er að gerast hjá Zöru. Kultur, Johnny verslunarstjóri í Kultur men. „Frakkar mundi ég segja að séu alveg málið í haust og vetur, þeir eru svona mesta breyting- in fyrir veturinn," segir Johnny um vetrarbreyt- ingarnar. „Frakkarnir eru aðeins tískulegri en venjulega og klæðilegri. Seilorjakkinn frá Tiger er sérstaklega flottur og brúni frá Paul Smith. Gallabuxurnar frá Tiger jeans eru mjög vin- sælar og verður nóg til fyrir veturinn, soldið niðurþröngar eins og búið er að vera. Litirnir fara dofnandi með vetrinum og eins og alltaf er svart, grátt og brúnt mjög vinsælt fyrir vetur- inn. Skyrturnar eru frekar aðsniðnar en þetta klassíska snið er að sjálfsögðu alltaf með og támjóir skór verða alveg áfram í haust," segir Johnny um nýju vetrartískuna. )

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.