Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2006, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2006, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 Fréttir DV Dögg Pálsdóttir „Ég spai henni tíunda sæti enda fyrirsjáanlegt að konur ná ekki langt i þessu prófkjöri." „Dögg hefur sem lögmaður verið flokknum erfið i ýmsum málum en mögulega nær hún upp i baráttusæti." SigríðurAndersen „Draumurinn um kvenkyns frjálshyggjumann - niunda sæti." Álitsgjafar DV röðuðu í vikunni upp væntanlegum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins því þeir eru afar sammála um það hvernig prófkjör flokksins muni fara í Reykjavík. Flokkurinn gæti þvi sparað sér ómakið og losnað við innbyrðis deilur. Körlunum er al- mennt spáð ofar en konunum en þó er kynskiptingin nokkuð jöfn ef litið er til þing- mannafjölda. Samantekt 1. Geir H. Haarde fær 100% stiga I fyrsta sæti listans í Reykjavík, rússnesk kosning. 2. Guðlaugur Þór Þórðarson fær 77 stig. Annað sætið innan seilingar og einungis tveir álitsgjafar setja hann neðará listann. 3. Björn Bjarnason fær 71 stig. Flestir álitsgjafar telja hann öruggan með þriðja sætið. 4. Guðfinna Bjarnadóttir, 57 stig. Meirihluti álitsgjafa setur hana I fjórða sætið. 5. Ásta Möller, 46 stig. Flest atkvæðin falla á fjórða eða fimmta sæti. 6. Illugi Gunnarsson, 45 stig. Jafn Ástu I baráttu um fjórða til fimmta sætið. 7. PéturBlöndal, 38 stig. Talsverð dreifing á bak við stigagjöf hans, allt milli fjórða og tíunda sætis. 8. Sigurður Kári Kristjánsson, 22 stig. Þarfað sætta sig við baráttusæti. 9. Birgir Ármannsson, 22 stig. I sömu aðstöðu og Sigurður Kári. 10. Dögg Pálsdóttir, 11 stig. Virðist eiga litla möguleika. 11. Grazyna M. Okuniewska, 6 stig. Óvænt framganga en litlir möguleik- ar. 12. Sigríður Andersen, 4 stig. Hverfandi llkur á þingsetu. Stefnir í harðan prófkjörsslag í Siálfstæðisflokknum Sjálfstæðismenn eiga í dag níu þingfulltrúa í Reykjavíkurkjördæm- unum tveimur og harður slagur er í uppsiglingu innan flokksins um örugg sæti á framboðslista hans fyrir kosningarnar í vor. Samtím- is er prófkjörið lokahrinan í valda- baráttu sem staðið hefur innan flokksins undanfarið í kjölfar brott- hvarfs Davíðs Oddssonar úr for- mannsstólnum. Margt bendir til að flokksarmur Geirs H. Haarde for- sætisráðherra sé að fara með fulln- aðarsigur í þeirri baráttu og fast er sótt að sitjandi þingmönnum. Þykir atíaga Guðlaugs Þórs Þórðarsonar að Birni Bjarnasyni hvað hörðust og eru þeir ófáir sem telja að slæmt gengi í prófkjörinu muni kosta hann mögu- legan ráðherrastól. Það er þvf óhætt að segja að Björn Bjarnason rói nú lífróður fyrir pólitískri framtíð sinni. Sitjandi þingmenn, eins og Birgir Ár- mannsson, Sigurður Kári Kristjáns- son, Pétur Blöndal og jafnvel Ásta Möller eiga öll á hættu að lúta í lægra haldi fyrir sterkum framboðum Guð- finnu Bjarnadóttur og Uluga Gunn- arssonar. Þau þykja bæði líkleg til að skjóta þingmönnunum ref fyrir rass í prófkjörinu og um leið skapa sér styrka stöðu í valdakjarna flokksins. Dögg Pálsdóttir, Sigríður Andersen og Grazyna M. Okuniewska gera all- ar tilkall til öruggs sætis á listanum og án einhverrar þeirra yrði kynja- skipting listans kvenréttindakonum mikil vonbrigði. Illugi Gunnarsson „Velliðmn ogkemur ferskur inn, nærþriðja sætinu - simpatískur ogansigóðuri gervi krata með grænar áherslur." „Hefur þegarsannaðsigog hlýtur aðná nokkuð langt íþessu prófkjöri." „Illugi hefur lengi verið eittmesta efni sjálfstæðismanna og eftirlæti fjölmiðla- manna. Hann mun hljóta næsta örugga kosnlngu." ÁstaMöller „Óljóst meö hana - en virðist vera að ná i gegn núna og liklegt að flokkurinn vilji halda góðum konum inni, sjöunda sæti." „Á sitt fylgi ogsinmálsem duga henni í sjöunda sætið." „Nýtur þess að vera kona en framboð Guðfinnu heldurÁstu i neðri sætum." „Ásta og Pétur Blöndal taka fjórða og fimmta sætið og ólíklegt að þau Guðfinna og lllugi hafi þau." BirgirArmannsson „Attunda sæti, duglegur og endalaust almennilegur, flýtur áfram á þvi og sumum gæti fundist hann rödd skynseminnar i flokknum." „Hefur unnið sig íálit. Simpatískur náungi sem höfðar til hófsamra." „Birgir er grandvar og duglegur drengur en hann er helst til dauflegur til að menn muni eftir honum iprófkjöri afþessari stærð. Geri samt ráð fyrir að hann verði í öðru baráttusætinu." „Birgir og Sigurður Kári verða i vandræðum í þessu prófkjöri, gæti jafnvel verið velt úr sessi afSigriði Andersen og Dögg Pálsdóttur." Pétur Blöndal „Tíunda sæti, gæti dottið neðar en sennilega tórir hann inni vegna þess hve hann býður sig fram í hátt sæti." „Fjórða sætið, maður hinna hagrænu skynsemishyggjumanna." „Sól Péturs hefur risið hærra áður en hann hlýtur þó að lafa inni." Siaurður Kári Kristjánsson „Tórfrinni eitt timabil enn, flýturá frjálshyggjufólkinu Isjöttasætil." „Dugnaóarstrákur en örugglega ekki allra. Áttunda sæti." „Sigurður Kári hefur verit duglegur og hægri armur flokksins mun launa honummet áframhaldandi þingsetu." „Ungirmenn allra flokka hafa valdil vonbrigtum sítasta kjörtímabil og sérstaklega á þat vit um Sigurt Kára og Birgi Ármannsson." 20-30% afsláttur af rúmum Nýtt kortatímabil Baðsloppar 20% afsláttur Handklæði 30% afsláttur Rúmteppasett 20-40% afsláttur Sængurfatnaður 20% afsláttur Utsala 20-40% afsláttur C rúmco Langholtsvegi 111,104 Rvk. Sími 568 7900 Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.