Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2006, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2006, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 Helgin PV Hera Jacobsen hitti uppáhaldsstjörnuna sína hana Birgittu Haukdal á Geysir Bistro Bar og spuröi hana nokkurra spurninga - beint frá hjartanu. Hera á barnadiskinn Perlur sem Birgitta sendi frá sér fyrir síðustu jól og á sér nokkur uppáhaldslög á disknum. Jólamaturinn hennar mömmu er bestur í heimi" Blaðakonan Hera kom vel undirbúin íyrir viðtalið. Hún hafði skrifað spumingarnar í þar til gerða minnisbók svo hún færi nú ekki út af sporinu. Það var ekki að sjá annað en að Birgitta hafi skemmt sér konunglega. Það er best að kynnast bakgrunni viðmælanda ágætlega áður enlengra er haldið og þetta virðist Hera vita og byrjar á klassískri skólaspurningu. „Eg var í skóla á Húsavík sem þá hét Barnaskólinn á Húsavík. Þegar ég varð eldri fór ég í heimavistarskóla á Laugum. Við bjuggum sem sé í skól- anum og gerðum allt þar, borðuð- um, sváfum, lékum okkur og lærð- um," segir Birgitta dreymin. Hera er alveg heilluð af hugmyndinni um heimavistina enda finnst henni fátt skemmtilegra en að vera í skólan- um. Ósk mín skærasta Hera segist hafa gaman af því að syngja. Hún spyr Birgittu af ein- lægum áhuga hvaða lag henni þyk- ir skemmtilegast af þeim sem hún hefur sungið. „Það heitir að eilífu. Rosalega rólegt og fallegt lag. Þetta er svona ástarbréf sem ég er að „Ég væri svo alveg til í að eignast hundþegar ég er orðin stór." syngja," segir Birgitta. Nei, Hera hef- ur ekki heyrt það lag. Spjallið berst þá að plötunni Perlur, bamadiskn- um sem Birgitta gaf út fyrir síðustu jól. Þær em í engum vafa um hvert sé besta lagið á þeim disk og segja í einum kór: „Ósk mín skærasta," og þá er hlegið. Viktoría og Prinsessa „Ég á fisk," segir Hera. „Átt þú einhver gæludýr?" spyr Hera Birg- ittu. „Nei ekki núna. En ég hef átt tvo ketti. Fyrsta kisan mín afrekaði það að ná níu ára aldri. Hún hét Ron- ja eins og Ronja ræningjadóttir. Svo fékk ég mér aðra kisu sem hét Vikt- oría. Og svo átti ég Prinsessu sem var kanína. Ég væri svo alveg til í að eignast hund þegar ég er orðin stór," segir Birgitta og glottir. Birgitta og bókasafnið Talið berst að bókum og Hera heillast upp úr skónum þegar Birgitta segir henni að hún hafi búið til heilt bókasafn með vinkonum sínum þeg- ar þær voru litlar. „Mér fannst ofsa- lega gaman að búa til sögur þegar ég var lítil. Mamma og pabbi gerðu það reglulega fyrir háttinn að spinna upp heilu sögurnar fyrir mig. Mér fannst þetta mjög heillandi. Þegar ég varð aðeins eldri tókum við okkur sam- an vinkonurnar og bjuggum til eina bók á dag í þó nokkurn tíma. Bæk- urnar stöfluðust upp þannig að úr varð bókasafn. Svo tókum við bækur eftir hvor aðra af bókasafninu - allar myndskreyttar og fínar," segir Birg- itta. Jólamatur - bestur í heimi Hera og Birgitta komust að því að þær eiga ýmislegt sameiginlegt og eitt af því var uppáhaldsmatur og uppá- haldskaka. „Jólamaturinn hennar mömmu er bestur í heimi," segir Birg- itta. Hera tekur undir þetta en hennar jólakokkur er þó afi hennar sem eldar alltaf lambakjöt. í eftirrétt kemur svo ekkert annað til greina fýrir þær stöll- ur en frönsk súkkulaðikaka og lýsing- ar þeirra á þessari naumalegu köku eru ekki hafandi eftir því það myndi bara valda því að fólk fengi þráhyggju fyrir franskri súkkulaðiköku. Hera Jacobsen tók viðtalið Berglind Hasler tók saman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.