Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2006, Side 56
76 FÖSTUDAGUR 20. OKJÓBER 2006
Siðasten ekki síst DV
Anarew-piaian ger
íeldhúsi Barsig
Sögur Tómasar frænda
hefja nú göngu sína á ný
I DV en þær voru fastur
þáttur i Helgarblaði DV
um skeið veturinn 2004-
2005. Og um slðustu jól
komu þær út i bóka-
formi. Það er Tómas M.
Tómasson bassaleikari
Stuðmanna sem segir
frá af alkunnri snilld.
Júlíus Agnarsson hljóðmað-
ur er löngu þjóðkunnur. Á sín-
um yngri árum reyndi hann fyrir
sér í tónlistinni og var meðlimur í
ýmsum sveitum. Ein sú fyrsta var
Andrew sem Júlíus stofnaði með
Andra heitnum Clausen á miðjum
áttunda áratugnum, nánar tiltek-
ið 1976. Nafnið hafði ekkert með
Andrew-sisters að gera, heldur var
það bræðingur úr nöfnum þeirra
beggja, Andri og Júlíus, og bor-
ið fram andrjú. Andrew gerði eina
plötu sem síðar fékk sömu cult-
stöðu og Icecross og selst nú dýr-
um dómum meðal plötusafnara
víða um heim. Lægsta verð fyrir
gott eintak mun vera yfir 1000 doll-
arar, eða 70.000 kr.
Andrew gerði aðeins þessa einu
lp-plötu, Woops, á stuttum ferli
sínum og var hún að mestu tekin
upp í eldhúsinu heima hjá Júlíusi.
Að plötunni komu ýmsir þekkt-
ir tónlistarmenn, eins og Egill Ól-
afsson, Ásgeir Óskarsson og Björg-
vin Gíslason. Þar að auki stúlkur úr
Lúðrasveit Kópavogs. Og ekki má
gleyma Ágústi Estan, hálfum Kana,
sem tók að sér að vera einhvers
konar framleiðandi plötunnar. Sá
var yfirleitt mjög „tjúnaður" og
má raunar heyra hann í einu lag-
inu. Lúðrasveitin var að taka upp
brasstóna í einu laginu er Estan
ýtti óvart á vitlausan takka á upp-
tökutækinu um leið og hann kall-
ar: „No, girls, you can do better
than this."
Júlíusi tókst að lauma mast-
ernum með Ámunda Ámunda-
syni til New York og fékk svo 500
eintök til baka. Júlíus seldi síð-
an 200 eintök af plötunni í Hverfi-
tóna á Hverfisgötu en þá búð rak
þýsk kona ásamt manni sínum.
Sagði Júlíus síðar að þetta hefði
verið fyrsta platan á landinu sem
bar sig fyrir hádegi og voru með-
limir Andrew komir í glas með há-
degisfréttunum. Sú þýska reið hins
vegar ekki feitum hesti frá þessum
viðskiptum og gott ef henni tókst
að selja þrjú eintök eða svo. Restin
af upplaginu safnaði svo lengi ryki
í geymslunni hjá Júliusi.
Sænskur plötusafnari kemur
til landsins
Meir en áratug síðar, þegar
Andrew var öllum gleymd og graf-
in, hafði Pétur heitinn Kistjánsson
samband við Júlíus og spurði hvort
hann ætti einhver eintök af Woops
enn í fórum sínum. Hér væri stadd-
ur sænskur plötusafnari sem vildi
ólmur komast yfir eintök af plöt-
unni. Júlíus hitti þann sænska að
máli og úr varð að hann seldi Svían-
um ein 50 eintök á 5.000 kr. stykk-
ið en þá kostaði ný plata út úr búð
1.500 kr. Júlíus segir að Svíinn hafi
meðhöndlað plöturnar eins og
gullmola enda voru þær
enn í upphaflega plast-
inu og í fullkomnu ásig-
komulagi. Júlíus frétti síð
ar að Svíinn hefði selt hvert
eintak frá sér á 30.000 kr. Dr.
Gunni komst einnig í þessa
gullnámu hjá Júlíusi því
hann fékk hjá honum 30
eintök í kringum 1990
sem hann seldi einnig
með góðum hagnaði.
Hins vegar vita fáir
að upphaflegi lagerinn
sem sú þýska sat
með komst að
um í hendur Júlíus-
ar á ný. Situr hann
nú á þessum auð-
æfum og er jafn-
vel að pæla í að setja eins og
eitt eintak til sölu á eBay til að
tékka á því hvaða verð fæst fyr
ir Woops í dag.
Júlíus og platan
Júlíus Agnarsson með
eintak afhinni fágætu
Andrew-plötu.