Freyr - 01.10.1973, Page 13
Eldisker í laxeldisstöð — búnaður með fullkomnasta sniði.
Þegar hrognum og svilum hefur verið
hrært saman er hrognunum eftir nokkurn
tíma (5 mín. — 2 klst.) hellt varlega í
fötu, sem er hálffull af vatni. Bezt er að
halla fötunni um leið og þetta er gert, svo
að hrognin falli ekki beint niður í vatnið,
heldur renni niður hliðar fötunnar. Á
þessu stigi er rétt að hreinsa sprungin
hrogn og annan óþrifnað úr hrognunum.
Því næst eru hrognin látin standa í hálf-
tíma til klukkustund, áður en þau eru
lögð niður í klakstokkana eða skápana.
Ekki getur það talizt frágangssök, þótt
töluvert lengri tími líði, áður en hrognin
eru lögð niður, ef vatnshiti er lágur. Þó
verður að mæla með, að það sé gert innan
6 klukkustunda.
Nýting frjóvgunar
Hægt er að rannsaka hvort hrogn hafa
frjóvgast, með því að láta þau liggja í
sterkri ediksýru í nokkrar mínútur. Ef
sólarhringur er liðinn frá frjóvgun, verður
fóstrið í þeim hrognum, sem frjóvguðust,
hvítt, annars verður allt hrognið hvítt.
Þannig er hægt að finna út, hve mikill
hluti hrognanna hefur frjóvgast með því
að taka sýnishorn og finna, hvaða prósenta
af hrognunum er frjóvguð. Má ætla að
sama prósenta af öllum hrognunum í
þeirri klakskúffu sé frjóvguð.
Hrognamælingar
Sérhver klak- og eldisstöð þarf að vita
nokkurn veginn, hve mikið magn af hrogn-
um hún hefur til klaks. Til að fá vitneskju
um það er hrognamagnið mælt, um leið
og hrognin eru lögð niður. Algengast er
að mæla hrognin eftir rúmmáli. Til þess
er notað lítramál, sem tekur einn lítra,
með kvarða, sem sýnir tíundabrot úr lítra.
Gæta verður þess að hella vatni af hrogn-
unum eins og hægt er og lofa þeim að
botnfalla vel, áður en lesið er af. Venju-
legt er að láta ca 1—1,3 lítra í klakskúffu,
sem er að stærð 33X63 cm, þó að skað-
lausu megi láta 1,5 lítra. Til þess að vita
hrognatöluna verður auðvitað að vita
hrognafjöldann í hverjum lítra, en hann
fer eftir stærð hrognanna. Hrognastærðin
er mæld með því að telja þann fjölda
hrogna, sem hægt er að raða í einfalda röð
í 25 cm langan stokk. Gerð hefur verið
tafla (sjá bls. 440) þar sem hægt er að lesa
úr hrognafjöldann í einum lítra, ef vitað
er um hrognafjöldann í stokknum. Þannig
fær stöðvarstjórinn greinargóða hugmynd
um hrognafjöldann í stöðinni. Nauðsynlegt
er að skrifa niður kreistingardaginn. Einn-
F R E Y R
439