Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1973, Page 21

Freyr - 01.10.1973, Page 21
Tafla 2. Snýkjudýr viltra sauðn'auta Sníkjudýr Staður Taenia sp. Ellesmere eyja, Thelon V. F.1 Filaria sp. Ellesmere eyja, Thelon V. F. Moneizia expansa Ellesmere eyja, Thelon V. F. Moneizia sp. Bathurst eyja, Nunivak eyja, Grænland. Eimeria cf. crandallis Bathurst eyja. Eimeria cf. faurei Bathurst eyja. Eimeria ? sp. nov. Bathurst eyja. Eimeria sp. Devon eyja. Cysticerus tenuicollis Ellesmere eyja, Thelon V. F Dictyocaulus viviparus Ellesmere eyja, Nunivak eyja, Thelon V. F. Nematodirella longispiculata Ellesmere eyja, Thelon V. F., Bathurst eyja Nematodirella alcidis Nunivak eyja. Nematodirus tarandi Nunivak eyja. Ostertagia circumcincta Ellesmere eyja, Thelon V. F. Echinococcus granulosus Ellesmere eyja, Thelon V. F. Capillaria sp. Bathurst eyja. Actinomyces sp. Grænland. Actinomyces hovis Ellesmere eyja, Nunivak eyja, Prince of Wales eyja. Haemonchus sp. Nunivak eyja. Trichostrongylus sp. Nunivak eyja. i Thelon Villidýra Friðland, Norðvestur Kanada. öðlast náttúrlegar líkamsvarnir á móti. Samanburður sníkjudýra á þessari skrá við athuganir á íslenzkum búpeningi væri fróðlegur. Þegar sauðnautabúin voru stofn- sett í Alaska, Kanada og Noregi, þá var þetta mál þaulhugsað og vandlega að þessu gætt. Nákvæmt dýralækniseftirlit var haft á dýrunum frá degi til dags og reglu- bundnar athuganir á saur gripanna fór stöðugt fram, og er svo enn í dag. Engin veikindi eða sjúkdómar hafa borizt með þessum innfluttu sauðnautum og það er ekki minnsta ástæða til þess að halda að öðruvísi yrði á íslandi. Hinsvegar er sjálf- sagt að gera allt mögulegt til þess að forð- ast þessa hættu, þó lítil sé, ef sauðnaut verða flutt til íslands. Skoða ætti dýrin nákvæmlega af dýralækni rétt eftir að þau eru handsömuð og síðan má hafa þau sér í sóttkví um langan tíma, t. d. á eyju þar sem er sæmilegur hagi og ekki aðrir gripir. Þar má halda áfram athugunum eins og þeim, sem lýst er að ofan. Reynslan annarsstaðar hefur leitt í ljós að mesta hættan á þessu sviði er sú, að sauðnautin veikist af sníkjudýrum annars búfénaðar, og eins og áður segir hafa þau litla náttúrlega mótstöðu gegn mörgum þeim sníkjudýrum, sem viðhafast í sauðfé og nautgripum. Það þarf því ekki síður að leggja áherzlu á að sauðnautin hafi sem minnst samband við sauðfé og nautgripi, F R E Y R 447

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.