Freyr - 01.10.1973, Page 45
NORSK EFNAHAGSAÐSTOÐ
við byggingu votheyshlaðna, eru veruleg svo sem
frá hefur veið greint í Frey, enda hefur hrað-
þróun á því sviði verið meðal hænda að verka
vothey. Ríkið veitir efnahagslega aðstoð allt að
60% af kostnaði við að reisa votheyshlöður, en í
þeim kostnaði er talinn allur frágangur, með frá-
rennsli vökvans og söfnun hans í geymi. Hámarks-
upphæð til einstaklings er þó ákveðin, en hún
nemur, samkvæmt núgildandi lögum þar í landi,
7000 krónum norskum eða um það bil 110.000 ís-
lenzkum með núverandi gengi.
Bændur hafa notfært sér þessa aðstöðu í stórum
stíl og á þann hátt aflað fóðurs á sérlega ódýran
hátt og með efldum verkunaraðferðum, þar sem
maurasýran er, öðlast afbragðsfóður handa jórtur-
dýrum.
SVÍAR
hverfa frá mjólkurframleiðslu og svo hefur verið
um 20 ára skeið samfleytt. Er nú svo komið, að
þeir flytja til landsins mjólk og mjólkurvörur í
nokkrum mæli á vissum árstímum. Árið 1950 voru
268.000 mjólkurframleiðendur í Svíaríki, en 1972
aðeins 72.000. Kúastofninn hefur Iíka rýrnað stór-
lega, því að 1950 voru kýrnar 1.635.000, en 1972
aðeins 693.000. Hinsvegar hefur afurðamagn á kú
aukizt mikið, eða frá 2.910 kg á árskú að meðal-
tali í 4.300 kg á tímabilinu. í eftirlitsfélögunum
eru nú 49% af kúnum, en aðeins 23% árið 1950.
f landinu eru starfandi 137 samvinnu-mjólkur-
stöðvar, er taka á móti 95% af allri mjólkurfram-
leiðslunni.
STÓRFRAMLEIÐSLA ALIFUGLAAFURÐA
Frá því hefur verið sagt í FREY nokkrum sinnum,
að erlendis virðist allt stefna að því, að afurðir
alifugla séu að verða ein grein á verksmiðjufyrir-
komulagi í framleiðsluháttum. Nýverið er frá því
sagt, að í Bretlandi stefni nú ört til þessa og er
nefnt sem dæmi, að fuglakóngurinn W. EAST-
WOOD, sem að undanförnu hefur verið langstærsti
framleiðandi eggja og fuglakjöts þar í Iandi, hafi
nú ákveðið að auka varphænufjölda sinn úr 4,3
milljónum í 6,3 milljónir. Markmið hans er að
framleiða 20% af öllum eggjum, sem framleidd
verða í Bretlandi, og til þess að geta þetta hefur
hann sótt um að mega byggja svo að hann geti
aukið stofninn í 12 milljónir hænsna.
Einnig er það ætlan hans að gerast framleiðandi
að 20% holdakjúklinga þar í Iandi, og hann er
ekki langt frá því marki því að sala hans af þeirri
vöru er nú talin vera 43 milljónir kjúklinga.
En hann er ekki bara við þessar tvær fjalir
felldur. Hann er líka kalkúnaframleiðandi og er
svo sagt, að framleiðsla hans á því sviði sé nú
árlega 2 milljónir kalkúna. Það er enginn smá-
bóndi, sem hér um ræðir.
RÝRNUN KÚASTOFNS SVÍA
á síðari árum, hefur haft í för með sér truflanir
í kynbótastarfseminni vítt um sveitir.
Nautgripasæðingar voru um skeið almennar og
vel kerfaðar og eru það raunar enn, en í um-
ræðum í félagsskap nautgriparæktarmanna s.l.
vetur var í alvöru um það talað að hafa frjálsari
athafnir í atferli félagsmanna í þeim efnum, með
öðrum orðum: slaka á félagsbundnum fyrirmælum
og ákvörðunum, m. a. að leyfa nautahald hér og
þar, sjálfsagt af því að sumstaðar eru orðnar mikl-
ar fjarlægðir milli bænda, sem stunda nautgripa-
rækt.
Á meðal annarra atriða, sem einnig voru á dag-
skrá, var spurningin um hvort doðahætta í kúm
sé að einhverju leyti arfgeng. Við þær umræður
var því slegið föstu, að eðlilegt sé að aldrei skuli
alin naut undan kúm, sem fengið hafa doða. Á
það var þó einnig bent um leið, að sjálfsagt færu
eigendur afbragðs kúa ekki að lýsa því yfir, að
þessi eða hinn kostagripur hafi fengið doða, einu
sinni eða oftar, ef von sé um góða sölu afkvæma
kýrinnar.
Á hinu Ieitinu töldu menn eðlilegt að rannsaka
og prófa að hve miklu leyti er um að ræða arf-
geng fyrirbæri, sem leiða til doða. Virtist þar eðii-
Iegt að álykta, að fyrirbærið sé háð lífeðlisþáttum
í efnaskiptum skepnanna, eða svo tjáir blaðið
I.AND, er sagði frá þessum málum á liðnum vetri.
FRÆNDUR OKKAR
Norðmenn, sendu á markað 1663 milljónir lítra
mjólkur árið sem leið. Þar í landi eru nú 63.500
bændur, sem eiga kýr. Þar safnast smjörbirgðir og
því um kennt, að verð á smjöri hafi hækkað 60%
frá fyrra ári. Til þess að eiga alltaf næga mjólk
til neyzlu telja Norðmenn nauðsynlega offram-
leiðslu samtals 125 milljónir lítra á ári. Mjólkur-
búunum fækkar þar en mjólkurframleiðslan er
vaxandi.
F R E Y R
471