Freyr - 01.05.1979, Page 12
í frjórri jörð getur það enst mjög vel. Það
þolir beit ágætlega og sáir sér í túnum, þar
sem vaxtarskilyrði eru góð, og ryður öðrum
grösum frá.
Stofnar.
Lítið er um það, að ræktað sé fræ af eiginleg-
um háliðagrasstofnum. Þeir eru aðeins 3 á
skrá OECD. Miklu algengara er, að fræi sé
safnað af háliðagrasi, sem vex villt í nágrenni
fræsölufyrirtækja. Það fræ, sem best hefur
reynst hér, kemur frá Oregon, en því mun
safnað aí háliðagrasi, sem vex þar villt í
fjöllum.
Uppskera.
Háliðagras gefur þokkalega uppskeru þar,
sem skilyrði eru góð, en hefur ekki borið af
öðrum tegundum í samanburð'artilraunum
hér á landi.
Háliðagras fer að spretta mjög snemma á
vorin og skríður grasa fyrst, oft í endaðan
maí. Það er því iðulega trénað og úr sér
sprottið um það leyti, sem önnur grös eru að
verða sláandi. Þetta vill verða til þess, að
háliðagrasstaða er oft orkusnauð vegna
þess, að háliðagrasið er slegið of seint. Auk
þess er háliðagras fremur steinefnasnautt.
Endurvöxtur er góður og háliðagras getur
gefið góða há.
Háliðagras þolir beit vel, en skepnur eru
ekki sérlega sólgnar í það.
Notkun.
Háliðagras hefur einkum verið notað hér í
blöndur með vallarsveifgrasi og túnvingli og
verið ráðlagtþar, sem kalhættaer.Trúlegaer
þetta alröng notkun. Vegna þess, hve há-
liðagrasið erfljótvaxið, hentar það mjög illa í
blöndur með öðrum grösum, en hins vegar
mjög vel til að lengja sumarið, þ.e. að byrja
það fyrr.
Með því að sá háliðagrasi einu sér í raklend
tún ætti að vera hægt að fá góða vorbeit, eða
með því að verja það gegn beit, í góðar tún-
spildur, þar sem byrja mætti túnaslátt mjög
snemma, t.d. um miðjan júní. Sennilega
kæmi þetta ekki síðurtil greina á Suðurlandi
og öðrum stöðum, þar sem kalhætta er lítil,
heldur en á kalhættusvæðum.
HÁVINGULL.
Hávingull (Festuca pratensis) er talinn hin
besta fóðurjurt, bæði til beitar og siáttar. Hér
á landi vex hann villtur á einum stað, þ.e. við
Pétursey. Hans verður ekki mikið vart í
túnum, enda mun hann ekki endast þar
lengi.
Hávingull erhávaxin jurt(70—100 sm) með
fremur mjó blöð, dálítið snörp. Punturinn er
mjór með fremur fáar hliðargreinar.
Hávingull þrífst best í frjósömum moldar-
jarðvegi, þar sem raki er nægur. Vonlaust er
að ætla að rækta hann í þurrum sandi.
Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar með
hávingul hér á landi. Reynslan er yfirleitt sú,
að stofnarnir endast stutt, en geta gefið dá-
góða uppskeru, meðan þeir endast. Best
hafa reynst stofnarnir Löken, Salten, Ötofte
og Tammisto.
Hávingull hefur verið í V-blöndu MR, en
lítið notaður að öðru leyti.
276
FREYR