Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.1979, Qupperneq 19

Freyr - 01.05.1979, Qupperneq 19
garðlönd, grænfóðurakra, nýræktir og tún, sem tekin eru til endurræktunar. Þessari notkun búfjáráburðar fylgir nokkurt arfa- vandamál, sem mönnum gengur misvel að leysa, en það verður ekki gert að frekara umtalsefni hér. Tilraun nr. 345 með ídreifingu búfjáráburð- ar í nýrækt. Veturinn 1973—1974 var skipulögð tilraun með ídreifingu búfjáráburðar í nýrækt. Er hún gerð á fjórum stöðum. Landinu var lok- að á Geitasandi, þar sem tilraunastöðin á Sámsstöðum gerir tilraunina, og á Hvanneyri árið 1974, ári síðar á Reykhólum og 1976 á Skriðuklaustri. Kúamykja var notuð á Geitasandi og Hvanneyri, en grindatað á Reykhólum og Skriðuklaustri. Gæði og meðferð búfjáráburðarins var misjöfn, sem og jarðvinnsla. Á Skriðuklaustri var búfjár- áburðinum dreift um haustið áður en hann var unninn niður, en á hinum stöðvunum leið skammur tími á milli. Að öðru leyti verður ekki fjallað hér um meðferð og gæði áburð- arins. Tilraunum þessum er ekki lokið, en hér verðurvakin athygli á nokkrum helstu niður- stöðum, sem þegar hafa fengist. Lýsing tiiraunanna. Nýræktarárið voru í tilrauninni fjórir til- raunaliðir með 25^150 tonnum/ha af bú- fjáráburði og til samanburðar tveir til- raunaliðir með tilbúnum áburði eða án áburðar. Merking tilraunaliðanna (áburðar- magn í tilbúnum áburði á við hrein efni kg/ ha) er þessi: A. Áburðarlaust eða lítill áburður Reykhólar áburðarlaust Skriðuklaustur áburðarlaust Hvanneyri 50 P, borið á sem þrífosfat Geitasandur 60 N, 26 P, 50 K, borið á sem Græðir 5 (17-17-17) Uppskera í 6 ár á tilraunaliðum með og án niðurpiægingar á mykju á Sámstöð- um 1941. Enginn annar áburður. Hey hkg/ha 60 h 40 20 OL l .A 30----------------- '•X o —* — 1 1941 42 43 ‘44 '45 __I 46 Ár FREYR 283

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.