Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1979, Side 28

Freyr - 01.05.1979, Side 28
Það er vandinn að fóðra þannig, að hyorki verði of né van. Til þess þarf bæði fóðurfræðilega þekkingu, natni; og glöggskyggni á eiginleika fóðursins og þrif búfjárins hverju sinni. komið í Ijós, að eftirtalin atriði hafa meira og minna farið saman á þeim bæjum, þar sem mest hefur verið kvartað undan þessu: Lömbin mjög væn, enda verið fóðruð á góðri töðu og mat að vild, jafnvel 100—200 g. á dag, frá því, eða fljótlega eftir, að þau voru tekin á hús. Samfara þessu hafa þau gjarnan verið tekið snemma (okt.) á hús að mestu eða öllu leyti: Fjárhúsin oft illa loftræst, verst í stillu, og oft þröngt á lömbunum. Því er aftur ekki að neita, að til eru bú, þar sem ófrjósemi stafar fremur af of knappri fóðrun og af- skiptasemi, en fyrrnefnda ástæðan er mun algengari, og etv. sú eina hér norðanlands og verður því ekki rædd frekar. Að sjálfsögðu þurfa lömbin að taka út eðlilegan þroska og vöxt á þessum tíma, sem endranær, en án þess þó að offitna. Sá grun- ur er fyrir hendi, að miklum vænleika þegar lömbin koma af fjalli, geti fylgt minni vaxtar- geta í einhvern tíma á eftir, enda þekkt að lyst er tiltölulega lítil fyrsta kastið í túni. Nauðfóðrun skapar því fremur fitumyndun en vöxt. Allt öðru máli gegnir að sjálfsögðu um lömb, sem af einhverjum ástæðum koma rýraffjalli. Bændurmegaekki látaþað slásig út af laginu, þótt lömbin séu ekki kviðuð að ráði, fái þau gott hey að vild með kjarnfóðri, holdin geta verið í bestalagi fyrirþví. Ef heyið er hins vegar ekki upp á það besta, verður að sjálfsögðu að vinna það upp með kjarnfóð- urgjöf, eins að athuga með steinefni og prótein samkvæmt fóðurþörfum. Það, sem hér er í raun verið að reyna að segja, er að fóðra samkvæmt þörfum og að hafa aðbún- að og hirðingu í sem bestu lagi. Það er fyrst, þegar þessi skilyrði hafa verið uppfyllt, sem ástæðaertil að hafa áhyggjur, ef illagengur. Áður en þessum hluta pistilsins lýkur, skal freistast til að draga saman ögn skýrar þau atriði, sem stuðla að aukinni frjósemi geml- inganna (að þeir sýni beiðsli og fái): 1. Hyggja þarf fljótlega að holdafari lamb- anna að hausti og láta þau ekki leggja af. 2. Best er að geta haft fremur rúmt á þeim á húsi, og fyrir alla muni, bætið loftræst- inguna eins vel og kostur er. 3. Kenna þeim fljótlega átið, en láta þau hafa eins mikla hreyfingu og hægt er og tíð og tími leyfir. 4. Með góðu heyi (1,7 kg í fóðureiningu og þar undir) er óþarfi að gefa mikinn mat, og því minni, sem heyið er betra, og étist það vel og lömbin í góðu standi, má jafnvel 292 FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.