Freyr - 01.05.1979, Page 35
Frá Búnaðarþingi.
Askorun um nýja
landgræðsluáætlun
Búnaðarsamband Borgarfjarðar sendi Bún-
aðarþingi erindi þess efnis að lagt yrði til að
ný landgræðsluáætlun yrði gerð sem tæki
við þegar áætlunartímabili „þjóð-
argjafarinnar lýkur 1979“.
Erindið var afgreitt með svofelldri ályktun
og greinargerð:
Búnaðarþing skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að láta nú þegar vinna framhalds
landgræðslu- og gróðurverndaráætlun, svo
að áframhald verði á því fjölþætta gróður-
verndar- og ræktunarstarfi, sem hafið var
með „Þjóðargjöfinni 1974“.
Jafnframt verði tryggt nægilegt fjármagn
til þessara framkvæmda.
Greinargerð:
Eins og öllum er kunnugt, var í tilefni 11
hundruð ára byggðar á íslandi, árið 1974,
gerð umfagnsmikil landgræðsluáætlun til
fimm ára og varið til hennar einum milljarð
króna, hinni svokölluðu þjóðargjöf.
í áætlun þessari er markið sett hátt.
Stöðvuð skyldi jarðvegs- og gróðureyðing
landsins. Koma gróðurnýtingu í byggðum og
óbyggðum í það horf, að gróðri fari fram, auk
fjölda annarra verkefna.
Ekki er að eta, að miKið starf og gott hefur
verið unnið fyrir þessa fjármuni á undan-
förnum árum, þó að framlög ríkisins til ann-
arra hluta landgræðslu en í áætluninni er,
hafi því miður dregist saman á þessum árum
og þannig skert framkvæmdamöguleika
hennar.
Þótt mikið starf hafi verið unnið frá 1974, er
markmiðum þjóðargjafarinnarengan veginn
náð.
Kemur þar margt til:
Ný uppblásturssvæði hafa myndast. Til-
raunum í gróður- og beitarmálum er ekki
lokið. Friðun gróðurs og gróðurlausra
svæða má stórauka. Það má segja, að í okkar
harðbýla landi séu verkefnin óþrjótandi.
Nú er fimm ára framkvæmdatímabilinu að
Ijúka. Fjárveitingu lýkur árið 1979, og árið
1980 er aðeins til ráðstöfunar verðbætur frá
1979.
Það er flestum Ijóst, að hér má ekki láta
staðar numið.
Starfinu verður að halda áfram til þess að
vernda landið okkar, þannig að við getum, að
minnsta kosti, skilað því jafngóðu til niðja
okkar og við tókum við því.
Þess vegna er brýn nauðsyn, að ný áætlun
verði gerð. sem byggir á þeirri miklu reynslu
sem fengist hefur, og þeim verkefnum, sem
ólokið er _ samkvæmt land-
græðsluáætluninni.
Til nánari skýringar skulu hér nokkur verk-
efni talin:
1. Markvisst verði áfram unnið að stöðvun
uppblásturs og gróðureyðingar landsins.
2. Beitartilraunum þeim, sem í gangi eru,
verði lokið og þær gerðar upp.
FREYR
299