Freyr - 01.05.1979, Side 39
Þyrlað um knosara
Skilmerkileg grein Hlöðvers bónda Diðriks-
sonar um nýja gerð HEUMA-sláttuþyrlu í 3.
tbl. Freys þ. á. verður J.J.D. að undirlagi Gló-
busar h/f, tilefni til athugasemda í 6. tbl.
Freys. Þar er komið á framfæri þeim tíma-
bæru fréttum, að það ágæta fyrirtæki „reyni
eftir föngum að fylgjast með nýjungum í bú-
vinnuvélum" og þó góð reynsla Hlöðvers sé
ekki véfengd, er gert tortryggilegt að prófun-
arskýrsla um vélina frá Bútæknideildinni á
Hvanneyri liggi ekki fyrir. Er því ástæða til að
skýra tildrög þessa máls nánar.
Niemeyer (HEUMA) sláttuknosþyrlan er
samsett af tveim tækjum, sláttuþyrlu, sem
reyndar hefur verið prófuð á Hvanneyri, og
svonefndum knosara, sem sprengir grasst-
ráin og opnar þau undir þurrkinn. Þannig
meðhöndlað á heyið að verkast með fyllstu
fóðurgæðum á 2 — 3 dögum í samfelldum
þurrki eftireina umferð með heyþyurlu, eðaá
allt að 50% skemmri tíma en með venjuleg-
um aðferðum.
Sjálfgefið er að búvélainnflytjendur leitist
við að fylgjast með nýjungum og komi á
markað vélum sem þeir álíta að bætt geti
búskaparhæfti. Ef vafi leikur á hæfni nýrrar
vélagerðar er hægt að kaupa prófun á
Hvanneyri og yfirleitt mun Bútæknideildin
fylgjast með þeim búvélum, sem hér eru á
markaði. En þróunin hefur verið ör og oft
birtast vélar í endurbættri mynd strax árið
eftir prófun og því matsatriði hvort og hven-
ær á að senda vél til prófunar.
Áður en búvélanýjungar koma á íslenskan
markað, hafa þær oftast gengið í gegn um
hreinsunareld margra erlendra prófunar-
stöðva og umsagnir þeirra vakið áhuga bú-
vélainnflytjenda. Þannig var rnáli háttað með
vél þá, sem Hlöðver lýsir í fyrrnefndri Freys-
grein sinni. Prófun hennar hjá IMAG-stofn-
uninni í Wageningen, Hollandi, lauk í mars
1978 og um sama leyti kom greinargóð próf-
unarskýrsla frá The West of Scotland Agri-
cultural College. Varð þá Ijóst hverskonar
þarfaþing hér var í uppsiglingu. Áður hafði
raunar birst stórfróðlegt erindi dr. Manfred
Schurig um heyverkun (sérútgáfa DLZ,
Miinchen apríl 1977, Neuere Möglichkeiten
der mechanischen Aufbereitung fon
Wiesengras zur Verkurzung der Feld-
Trocknungsphase), sem lýsti möguleikunum
í þessum efnum.
Niemeyer (HEUMA) sláttuknosþyrlan var
kynnt á erlendum búvélasýningum í fyrravor.
Þá lágu fyrirgóðarviðtökur bænda, sem búa
við ótryggt verðurfar, svo sem á Bret-
landseyjum. Tókst að fá hingað 2 vélar, fór
önnur beint í sláttinn til Hlöðvers í Litlu-Hil-
disey, en hina kynnti Hamar h/f meðal ann-
arra búvélanýjunga ’á Landbúnaðar-
sýningunni á Selfossi. Kjarni málsins er því
sá, að reynsla Hlöðvers kemur heim við
niðurstöður annarra, sem reynt hafa þessa
nýju vél.
Vona ég svo að okkur endist frjálslyndi til að
taka undir þau orð Hlöðvers Diðrikssonar
,,að sé til sú tækni að flýta megi heyþurrkun
til muna, þá á hún erindi til íslenskra
bænda.“
Júlíus Halldórsson, Hamri h/f.
FREYR
303