Freyr - 01.04.1981, Síða 8
skoðun ríkir meðal ýmissa valda- og áhrifa-
manna, að nú, þegar draga mátti saman í aðal-
framleiðslugreinunum, megi að ósekju draga úr
ráðunautastörfum og leiðbeiningum á marga
lund.
Þessu er auðvitað ekki svo farið, heldur þver-
öfugt. Einmitt nú sækjast menn eftir
leiðbeiningum og aðstoð við að finna nýjar leiðir
til að afla sér tekna, bæta tekjumissi eða draga úr
honum svo sem framast er kostur.
Nýjar búgreinar krefjast þekkingar, sem ekki
er fyrir hendi og veita þarf kennslu og
leiðbeiningar.
Besta dæmi um þetta er loðdýraræktin en
margt fleira er á döfinni.
Það væri full þörf fyrir stóraukna starfskrafta
til kennslu og leiðbeiningar.
Okkur vantar mann til að senda utan og kynna
sér ræktun ullarkanína.
Það er nú þegar mjög mikið álag á hlunn-
indaráðunautnum. Þar blasa við mörg og fjöl-
breytileg svið, sem hann þyrfti að vinna að en
hefur alls ekki tíma til.
Nýjar leiðir í sauðfjárrækt krefjast meiri
leiðbeininga og starfs vegna kynbóta. Breytt
viðhorf í fóðurbætismálum krefjast meiri
leiðbeininga, á sviði fóðrunar.
Reyndar hefur að mínu mati nú, vegna
aukinnar þekkingar skapast grundvöllur fyrir
því að leggja enn meiri áherslu á það að fram-
leiða af heimaafla. Við þurfum að hamra á því að
bæta ræktunina, bæta fóðurverkunina og bæta
fóðrunina.
Við megum heldur ekki hætta að rækta, við
eigum að nota hléið í bygjgingarframkvæmdum
til að rækta meira og betur.
Svona mætti lengi telja. Verkefnin eru
hvarvetna fyrir hendi.
Ég læt í Ijós ósk mína um gott samstarf við
Búnaðarþing.“
J. J. D.
Afkvæmasýningar
á sauðfé 1981
Á komandi hausti verða haldnar afkvæmasýningar á sauðfé á Norður- og
Austurlandssvæði og Suðurlandssvæði frá Eyjafirði austur og suður um land
að Hvalfirði. Sýna má bæði hrúta og ær með afkvæmum. Hverjum hrút þurfa
að fylgja að minnsta kosti 22 afkvæmi, þar af tveir hrútar veturgamlir eða
eldri og 10 lömd, og af þeim a. m. k. tveir lambhrútar.
Hverri á þurfa að fylgja a. m. k. 5 afkvæmi, þar af einn hrútur veturgamall
eða eldri. Fjáreigendur á ofangreindum svæðum, sem óska eftir afkvæma-
sýningum, sendi Búnaðarfélagi íslands eða héraðsráðunautum búnaðar-
sambanda á greindum svæðum tilkynningu fyrir 1. ágúst n. k.
Búnaðarfélag íslands,
— sauðfjárrækt —
248 — FREYR