Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1981, Síða 29

Freyr - 01.04.1981, Síða 29
að bæta byggingarlag Hólafjárins, en Smári sem virtist álitlegastur og var sagður bjartleitur, en ekki al- hvítur, virtist ekki geta bætt bygg- ingarlag eins mikið og Frosti og Bjartur. Þess vegna komu þessir hrútar ekki til álita, auk þess sem sæði náðist ekki úr Má og Smára þegar á reyndi. Því má bæta hér við, að lömb undan Rauð haustið 1980, 22 talsins, fengu einkunnina 6,14 fyrir gæruflokk. Til samanburðar má geta þess, að 9 sæðingalömb undan Bónda 940 frá Hjarðarfelli fengu einkunnina 1.67 fyrir gæru- flokk haustið 1980, en bús- meðaltalið var 7.75 stig. í lýsingu frá sæðingastöð er Bóndi sagður „bjartur á haus og fótum,“ með alhvíta ull. Einnig segir þar: „Bóndi er jafnvaxinn, samanrek- inn holdahnaus.“ Lömb undan honum reyndust líka mjög vel gerð. Ekki stefna allar þjóðir að lækkun fóta á fé sínu. Guðbjartur leggur mjög mikið upp úr þéttu byggingarlagi og lágum fótum við lambhrútaval. Hann virðist ekki vita, að lágir fætur eru síður en svo taldir keppikefli í sauðfjárrækt sumra landa. Ný-Sjálendingar, sem eiga í meiri samkeppni með dilkakjöt á heimsmarkaði en nokkur önnur þjóð, mæta harðnandi samkeppni við aðrar kjöttegundir með því að framleiða dilkakjöt með minni fitu en áður. Aðferða þeirra til að ná þessu marki er sú að velja til lífs og nota háfættari hrúta en áður var gert. Samanburður innan bús nauðsyn. Guðbjartur telur það veilu í rækt- uninni hjá mér að bera hrútana á Hólum saman innbyrðis. Hann virðist ekki vita, að það er eina aðferðin, sem vænleg er til árang- urs, þegar kynbæta á eiginleika sem umhverfi gripanna hefur mikil áhrif á. Þá eru gripirnir bornir saman við sem líkust umhverfis- skilyrði, leiðrétt er fyrir ýmsum atriðum, sem áhrif hafa á eigin- leikann, og síðan eru valdir til ásetnings og undaneldis þeir grip- irnir, sem best reynast, þegar hag- kvæmnin er notuð sem mæli- kvarði. Við slíka dóma er t. d. allt- af miðað við að gera samanburð innan bús, því að munur milli búa er oft mikill, og hann stafar oftast að langmestu leyti af mismun í fóðrun og ytri aðbúð. Athyglisverður samanburður við aðra hrúta 1970. Guðbjartur vill, að gerður sé sam- anburður á holdlitlum hálöppum á Hólum og lágfættum, þykkvöxn- um og holdgóðum hrútum annars staðar. Tilraunastarfsemin á Hól- um hefur að vísu fyrst og fremst verið tengd ullar- og gærugæðum, en þó er til nokkur samanburður á Hólahrútum og öðrum hrútum sem feðrum sláturlamba. í fyrsta lagi er til niðurstaða af rannsókn á 12 lambhrútum, sem seldir voru frá Hólum haustið 1969. Lömb undan þessum hrút- um voru borin saman við lömb undan 18 heimahrútum á 8 bæjum í Skagafirði og 2 bæjum í Eyjafirði haustið 1970. Útkoman úr þessari rannsókn var eftirfarandi: Lömb undan Hólahrútunum 221 talsins, voru með 0.16 kg þyngra fall heldur en 425 lömb undan heimahrútunum. Lömbin undan Hólahrútunum flokkuðust 0,4 stigum betur í slát- urhúsi heldur en lömbin undan heimahrútunum (I. fl. = 10, II fl. = 5 og II. fl. = 0 stig). Lömbin undan Hólahrútunum fengur einkunnina 3,25 fyrir hvít- an lit á gæru en lömb heimahrúta 1,65 (alhvítt = 10, gult á skæklum = 5 og gult á belg = 0). Þessi útkoma var því Hólahrút- unum í vil í öllum atriðum. Niðurstaðan úr þessari rann- sókn var birt fjölrituð á sauðfjár- ræktarráðstefnu Búnaðarfélags íslands, 1971, en hefur Iítið verið rædd síðan. Því má bæta við hér, að í þessari sömu rannsókn kom það fram, að I. verðlauna hrútar gáfu 0.92 kg léttara fall á lömbum heldur en II. og III. verðlauna hrútar, og var sá munur raunhæfur. Aðkeyptir hrútar rannsakaðir á Hólum. Haustið 1976 voru 5 lambhrútar keyptir að Hólabúinu og þeir af- kvæmarannsakaðir ásamt 4 lamb- hrútum sem settir voru á heima sama haust. Útkoman úr þeim samanburði var sú, að aðkeyptu hrútarnir fengu 101,2 í kynbóta- einkunn fyrir lifandi þunga lamba, þar sem leiðrétt var fyrir mismun í kjötprósentu, en heimahrútar 97,5 að meðaltali. Útkoman úr þessari rannsókn var því aðkeyptu hrút- unum í vil. Tveir þessara aðkeyptu hrúta voru í fjárhúsunum á Hólum í fyrravetur. Niðurstaða afkvæma- rannsóknanna á Hólum þetta ár var birt í fjölriti RALA nr. 23, 1978. Hólahrútur borinn saman við heiðursverðlaunahrút. Einn heimahrútanna, sem af- kvæmaprófaður var í ofangreindri rannsókn féll út, fyrir það hve létt lömb hann gaf haustið 1977, hét Dreki 237. Kynbótaeinkunn hans fyrir þunga lamba á fæti, leiðrétt fyrir mismun í kjötprósentu, var 96. Föll af lömbum undan Dreka virtust áberandi fitulítil, og þess vegna var ákveðið að nota hann í tilraun á Möðruvöllum í Hörgár- dal næsta vetur og haust á móti sérstaklega þéttbyggðum og holdmiklum hrút í Þríhyrningi í Eyjafirði, Gretti 76-201. Grettir var undar Anga 68-875 freyr — 269

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.