Freyr - 01.04.1981, Blaðsíða 34
Árni G. Pétursson
hlunnindarádunautur
Framfarir heimalningsæðarunga á
Oddsstöðum 1980
í grein í 1. tbl. Freys 1981 um uppeldi œðarunga á Odds-
stöðum sumarið 1980, voru ekki gefnar neinar tölur um
vaxtarhraða ungannafrá klaki tilsleppidags. Aðgefnu tilefni
skal orðið viðfonntni manna, hvað þetta varðar, þótt aðal-
atriði þessarar búskapartilraunar hafi alls ekki verið sá að
mœla vaxtarhraða á viðkomandi iingum heldur allt annars
eðlis, sem fram kemur í skrifi um um markmið tilraunarinn-
ar. Einnigþurfti að draga úrfóðri um skeið við elstu ungana
vegna ofvaxtar.
Ekki var skeytt um að vega
ungana nýkomna úr eggi, enda
ekki tiltæk það nákvæm vog að það
þjónaði þeim tilgangi. Vorið 1979
var meðalþungi unga í tilraun hjá
Rannsóknastofnun landbúnað-
arins nýskriðnum úr eggi um 60 g
(49—77g), og voru ungar á Odds-
stöðum 1980 nýútskriðnir ekki
annars eðlis en æðarungar almennt
gerast á þessu stigi. Ungum var
safnað á tímabilinu 7.—25. júní.
Þeim fór ört að, þótt um greini-
legan einstaklingsmun, hvað þetta
áhrærði, væri að ræða, og uxu örar
en ungar hjá RALA 1979. Þann
12. júlí var þungi unga á Odds-
stöðum er hér segir, en fram að
þeim tíma höfðu ungar fengið fóð-
ur að vild nema elstu ungarnir, en
hjá þeim var dregið úr fóðri um
skeið við þriggja vikna aldur. Elstu
ungarnir 4V2—5 vikna gamlir voru
þennan dag 1100—1150 g þungir,
4 vikna ungar 800—900 g þungir
og ungar teknir úr hreiðri 15. júní
voru að meðaltali 750 g þungir.
Tveir ungar frá 25. júní 17 daga
gamlir voru annar Litlikútur 350g
og Labbakútur 500 g þungir.
RALA ungar voru 1979 að með-
altali 341 g 17 daga gamlir.
Þann 22. júlí, 10 dögum seinna,
en þá var aðeins byrjað að draga úr
fóðri við ungana, voru elstu ung-
arnir 5V2—6V2 vikna gamlir frá
1150 upp í 1400 g þungir eða um
1330 g að meðaltali, sem er sami
þungi og var á RALA ungum 73
daga gömlum eða mánuði eldri
1979. Ungar fæddir 15. júní voru
nú 1000 g að meðaltali, eða höfðu
þyngst um 25 g á dag frá 12. júlí.
Litlikútur var nú 550 g og Labba-
kútur 700 g. Allra elstu ungarnir
frá 7. og 9. júní höfðu bætt minnst
við sig í þunga á þessu skeiði, enda
voru þeir nú í löngum lónaferðum.
Einnig var nú farið að bera á, að
ungaskarinn var farinn að amast
við Kútunum tveimur. Þann 3. ág-
úst voru ungarnir sem teknir voru
7.—-11. júní frá 1200 til 1600 g
þungir og þeir frá 15. júní 1300 g
að meðaltali Labbakútur var nú
1000 g og Litlikútur 700 g. Lýs-
ismenguðum ungum fór lítið að á
þessu skeiði.
í grein um unga uppeldið segir:
„Ungar uxu með margföldum
hraða miðað við það sem gerist í
náttúrunni.“ Ekki voru neinir
villiungar vigtaðir og mér vitan-
lega ekki tiltækar íslenskar tölur
hvað þetta varðar, en til sjónsam-
anburðar voru hafðir ungar með
kollum sem héldu til heima við á
lónakrika allt tilraunaskeiðið. Þeir
ungar voru að ganga fyrir sér sem
næst allan sólarhringinn, en voru
samt langt á eftir í þroska.
Ungar í uppeldi hjá RALA
1979 voru vigtaðir þétt fram að 17
daga aldri, en þá kom eyða fram til
6 vikna aldurs. Nýklaktir voru þeir
að meðaltali 60 g, vikugamlir 100
g, lOdaga 170 gog 17 dagaeinsog
áður er getið 341 g. Átta vikna (57
daga) gamlir eru þeir 1083 g, tíu
vikna (73 daga) 1333 g og 25. okt-
óber (18 vikna einn ungi) 1500 g á
þyngd.
Við samanburð á þessum upp-
eldisathugunum á Oddsstöðum og
RALA virðist vera ljóst að sjávar-
beitin er mjög til bóta því ungar
hjá Rannsóknastofnun landbún-
aðarins árið 1979 fengu fóður að
vild.
274 — FREYR