Freyr - 01.07.1985, Síða 11
búfjárrækt sagði okkur frá
nautgriparækt skólabúsins. Þar á
búinu voru sl. ár 45,3 árskýr,
meðalnyt er 5047 kg. Nythæsta
kýrin (nr 218) mjólkar 7400 kg á
ári. Þarna var fyrstakálfskvíga sem
bar í október og komst í 25 kg en
mjólkaði um það leyti (23. febr.)
18 kg á dag. Magnús sagði að hver
kýr fengi rúm 1000 kg af kraftfóðri
að meðaltali á ári og 3 kg af
heykögglum daglega.
Fjárhúsin á Hvanneyri eru á efri
hæð gripahússins í Þórulág. Húsið
brann árið 1968, en var endurreist
og því breytt en það er þó ófull-
nægjandi. Hesthúsið er á neðri
hæðinni.
Nú var farið í fjárhúsin undir
leiðsögn Guðmundar Hallgríms-
sonar bústjóra og Grétars Einars-
sonar. Þar sagði Grétar m. a. frá
húsvistartilraunum með sauðfé,
sem gerðar hafa verið og gerðar
eru á Hvanneyri. Frá þessum til-
raunum segir í Fjölritum Rala nr.
68 og 73. Gemlingar á Hvanneyri
eru rúnir strax er þeir eru teknir á
hús og fékkst í fyrra haust af þeim
2,1 kg af ull að meðaltali, sem
seldist á 170 kr. kg.
Á Hvanneyri voru um þetta
leyti 36 hestar, allir í eigu eða
vörslu nemenda. Margir þeirra
voru í tamningu. í hesthúsinu hitt-
um við fjögur ungmenni sem voru
að sýsla við hesta sína, þau Stefan-
íu Jónsdóttur frá Selfossi, Sól-
veigu Eysteinsdóttur frá Horna-
firði, Jónas Karlsson frá Patreks-
firði og Þröst Óskarsson frá
Hornafirði. Öll létu þau vel af
skólavistinni.
Af rannsóknum á Hvanneyri.
Á rannsóknastofu skólans sem er
á fjóslofti í þröngu húsnæði eru
efnagreind sýni til tilrauna og þar
eru gerðar jarðvegs- og heyefnag-
reiningar fyrir bændur, m. a. á
meltanleika heys. Nemendur Bú-
vísindadeildar eru þar löngum
stundum við að æfa sig í verklegri
efnafræði. Forstöðumaður rann-
sóknastofunnar er Jónína Vals-
dóttir.
Skoðaðir smíðagripir nemenda. T. v. kennararnir Hilmar Hálfdánarson og Gísli
Sverrisson.
/ Hvanneyrarfjósi. Ásgeir Bjarnason virðir fyrir sér gripina.
Síðan bauð Sveinn Hallgríms-
son skólastjóri til síðdegiskaffis.
Meðan setið var undir borðum
kynntu kennarar nám og kennslu í
bændaskólanum. Runólfur Sigur-
sveinsson ræddi um bóknám, en
Sigtryggur Björnsson um verk-
námskennslu. Báðir lögðu þeir
áherslu á nauðsyn þess að bænda-
stéttin sé vel menntuð ekki aðeins
Freyr 499