Freyr - 01.07.1985, Qupperneq 24
Hans Pedersen.
Loödýrabúin
í næsta mánuði — ágúst.
Lausleg þýðing á grein ráðunautarins, Hans Pedersen, Nordyllands Pelsdyravlerforen-
ing, sem birtist í Dansk Pelsdyravl, nr. 7, 20. júlí, 1984.
Síðari hluti sumars er tvímælalaust
sá tími þegar minnst annríki er á
loðdýrabúunum, að því leyti að öll
þau verk sem þá eru unnin mega
kallast „rútínuvinna“
Mikilvægasta verkefnið er að
tryggja að hvolparnir þrífist vel.
Nú er liðinn sá tími sem mestu
ræður um að tryggja okkur stór
skinn. Tilraunir hafa sýnt að það
er mjög sterkt samhengi milli
þunga hvolpanna við átta vikna
aldur og endanlegrar lengdar
skinnanna. Fjörutíu gramma
aukning í þunga við átta vikna
aldur hefur reynst bæta að meðal-
tali einum sentimetra við lengd
högnaskinna sem þýðir hækkun á
skinnaverði sem nemur a. m. k.
fimm dönskum krónum. Séu dýrin
létt við fráfærurnar virðist því ekki
unnt að bæta það upp síðar á
vaxtartímanum.
Ef menn eru óöruggir við að
meta hvort dýrin vaxa eðlilega er
skynsamlegt að velja hóp dýra til
að vigta reglulega, t. d. eitt dýr
við aðra hverja stoö í hverri búra-
röð. Þannig fæst nokkur viðmiðun
til að meta hin dýrin á eftir. Þau
dýr sem valin eru í þessum tilgangi
verða að sjálfsögðu að vera sam-
bærileg hvað varðar fæðingardag
og gotstærð. Högnahvolpar, fædd-
ir 2. maí, úr 6 hvolpa gotum, gætu
hentað vel.
Eðiileg þyngd högnahvolpa er
sýnd á mynd 1.
Sjá má að í fyrstunni er vöxtur-
inn mjög ör en hægir síðan á sér
þegar líður á sumarið og „línan“
fyrir þyngingu er orðin mjög flöt
undir haustið. ímyndi maður sér
hliðstæða „línu“ sem í stað þyngd-
arinnar sýnir lengd dýrsins hefur
hún svipaða lögun en nær hámarki
fyrr en þessi. Búast má við að
dýrin hafi tekið út lengdarvöxt
sinn snemma í september. Til að
gefa nákvæmari upplýsingar er
sýnd í töflu 1. lágmarksþyngd
hvolpanna á hverjum tíma. Lögð
skal áhersla á að hvað þetta varð-
ar er mismunur milli litarafbrigð-
anna.
Ástæðan fyrir því að við viljum
hafa dýrin nokkuð stór er auðvit-
að að við sækjumst eftir stórum
skinnum og þar með hærra verði.
Sem dæmi má nefna að á síðasta
uppboðstímabili (1983/1984) mun-
aði 30 dkr. að meðaltali á milli
stærðarflokka hjá Scanblack
(svörtum), Saga Selected högnum
(mismunurinn var frá 3 til 54
dkr.). Hjá læðum af sama lit og
gæðaflokki var munur milli stærð-
arflokka 40 dkr. að meðaltali (frá
1 til 82 dkr.).
Þegar stærðin hefur svona mikil
áhrif á verðið og það er sannað að
vöxtur hvolpanna fyrstu vikur
ævinnar ræður mestu um endan-
lega stærð skinnanna verður að
sjálfsögðu að leggja mjög mikið
upp úr mjólkurlagni læðanna. Því
það er mjólkurlagni þeirra sem er
allsráðandi um hve vel hvolparnir
vaxa á þessum tíma. Þessi þáttur
verður því að vega þungt í kyn-
bótastarfinu. Til þess að fá sem
besta yfirsýn yfir mjólkurlagni
mæðranna ætti á kerfisbundinn
hátt að grandskoða alla
systkinahópana þegar þeir eru ná-
kvæmlega fjögurra vikna gamlir.
En vöxtur hvolpanna til þess tíma
ræðst eingöngu af því hve vel
móðirin nrjólkar þeim. Athuga-
semdir um þetta atriði á að sjálf-
sögðu að skrá bæði á læðu- og
Tafla 1. Lágmarksþyngd og daglegur vöxtur högnahvolpa.
daglegur
Dagsetning þyngd, g vöxtur, g
l.júlí ..................................... 850 15 — 16
15. júlí ................................... 1100
1. ágúst.................................... 1350 12 — 16
15. ágúst................................... 1550
l.september................................. 1750 7 — 8
15. september............................... 1900
l.október................................... 2000 6 — 7
15. október................................. 2100
1. nóvember ................................ 2200
512 Freyr